Fréttablaðið - 09.07.2009, Blaðsíða 40
28 9. júlí 2009 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Nú þegar konungur poppsins er fallinn frá og stórstjörnurnar eru
búnar að hylla hann á glæsilegri minningarhátíð þá er hægt að staldra
við og spá í hvað fráfall hans raun-
verulega merkir. Michael Jackson
var einstakur. Snillingur, fullkomn-
unarsinni og öfgamaður. Hann
hafði mikla hæfileika og gerði
nokkrar frábærar plötur. Hann
var samt ekki einn af atkvæða-
mestu tónlistarmönnum sögunnar
og staðreyndin er sú að hann hafði
ekki gert neitt sem skipti máli tón-
listarlega í tæpa tvo áratugi þegar
hann kvaddi. En þó að hann hafi
ekki verið áhrifamesti eða öflugasti
tónlistarmaðurinn þá
var hann stærsta
stjarnan. Það
þekkir hann
nánast hvert
einasta mannsbarn á jörðinni og hann á mest
seldu plötu sögunnar, Thriller.
Thriller er eina platan í heiminum sem
hefur selst í yfir hundað milljónum eintaka.
Næstu plötur ná ekki fimmtíu. Það er næsta
víst að engin plata mun nokkurn tímann slá
hana út. Tónlistariðnaðurinn hefur dreg-
ist saman um meira en helming síðan árið
2000. Kakan er að minnka og viðmiðin að
lækka. Í Frakklandi þurfti að selja 500
þús. plötur til að komast í gull, en nú
þarf að selja 75 þús. svo dæmi sé tekið.
Framboðið er meira nú og fleiri
fá þess vegna bita af kökunni. Nú
selja menn í auknum mæli beint
með hjálp netsins, en þó að vef-
svæði eins og MySpace eða Gog-
oyoko geti í framtíðinni vonandi
brauðfætt marga tónlistarmenn
þá munu þau aldrei búa til gíga-
stjörnur. Tímarnir hafa breyst.
Og svo er Michael enn að
selja grimmt. Þegar þetta er
skrifað á poppkóngurinn 13
af 20 mest seldu plötunum
á Amazon.co.uk, þar á meðal
þær fjórar efstu. Kóngurinn er
fallinn, en forskot Thrillersins er
enn að aukast …
Met sem ekki verður slegið
BREYTTIR TÍMAR Sölumet Thriller verður
sennilega aldrei slegið.
Nýja plata Bibio, öðru nafni
Stephen Wilkinson, er á
lista yfir áhugaverðar nýjar
plötur hjá Pitchfork og
All Music Guide. Hún ber
nafnið Ambivalence Avenue
og er önnur plata hans á
árinu. Fréttablaðið ákvað að
kynna sér þennan vaxandi
listamann frekar.
Stephen Wilkinson lærði hljóð-
listir við Middlesex University í
London. Þar kynntist hann raf-
tónlist og heillaðist sérstaklega af
Boards of Canada og öðrum raf-
tónlistarmönnum tíunda áratugar-
ins auk þess að laðast að breskri
þjóðlagatónlist frá miðri seinustu
öld. Áhrifa gætir frá hvoru tveggja
í tónlist hans. Fyrsta platan leit
dagsins ljós með hjálp Marcus
Eoin úr Boards of Canada árið
2004. Sú bar nafnið Fi og var vel
tekið. Var Bibio hrósað fyrir ein-
stakan hljóm, þýðan eins og mosa-
grænn steinn.
Tveimur árum síðar kom platan
Hand Cranked. Sú var þjóðlaga-
megin við þá línu sem Bibio dans-
ar almennt og þótti heldur einsleit.
Bibio vann sem upptökustjóri eftir
það og gerði eina plötu með starfs-
bræðrum sínum, Andy Harber og
Richard Roberts. Hann lagði gít-
arinn á hilluna fyrir hljómborð á
stuttskífunni Ovalds and Emer-
alds, 2008.
Fyrri plata ársins, Vignetting
the Compost, vakti verðskuldaða
athygli fyrir fjölbreytni, en þar
sneri Bibio sér aftur að seiðandi
gítar-elektróník. Þótti þá útséð
á hvaða hillu Bibio ætlaði sér að
vera, en honum hefur verið líkt
við Borko, múm og Grizzly Bear
og ekki að ástæðulausu.
Ambivalence Avenue kemur
aðeins fimm mánuðum á eftir Vign-
ette the Compost og kynnir alveg
nýja hlið á Bibio. Þar má heyra
fönk riff, tilbrigði við hip hop og
teknó í bland við indí-rokk. Mælir
undirrituð sérstaklega með laginu
Jealous of Roses. Þjóðlaga-raftón-
listin sem einkennt hefur feril hans
hefur verið gædd nýju lífi og fær
Bibio sértaklega hrós fyrir sönginn
á plötunni. Í dómi Pitchfork gengur
gagnrýnandinn svo langt að segja
að „einn fyrirsjáanlegasti raftón-
listarmaður samtímans sé skyndi-
lega orðinn óútreiknanlegur“. Saga
Bibio er því hvergi nærri búin.
kbs@frettabladid.is
Ferskur, öllum að óvörum
KEMUR Á ÓVART Bibio glæðir tónlistarferill sinn nýju lífi með stórgóðri nýrri plötu.
MYND/ANDREW HARPER
> Plata vikunnar
Stefán Karl - Í túrett og moll
★★★★
„Í túrett og moll er fín fjöl-
skylduplata. Orðhengilsgrínið
hans Gísla Rúnars er fyrsta
flokks og Stefán Karl syngur
og leikur öll hlutverk af stakri
snilld.“ -TJ
Þær tvær plötur sem eru hér til
umfjöllunar eiga það sameiginlegt
að innihalda skemmtipopp spilað
á hljómborð. Hermigervill gerir
sínar útgáfur af gömlum íslensk-
um popplögum, en DJ flugvél og
geimskip býður upp á 17 ný lög.
Hermigervill er listamannsnafn
Sveinbjörns Thorarensen. Platan
hans inniheldur ellefu íslenska
smelli í instrúmental útgáfum.
Þar á meðal eru Dans dans dans,
Glugginn, Starlight, Hótel Jörð,
Garden Party og Þorparinn. Svein-
björn spilar lögin aðallega á gamla
hljóðgervla og útkoman er oft
skemmtileg, til dæmis í lögunum
Starlight, Garden Party og Þorp-
arinn.
Meginforsendan fyrir því að
tökulagaplötur séu áhugaverð-
ar er að útsetningarnar séu ólík-
ar upprunalegu útgáfunum. Það
á vissulega við hér og oft hljóma
þessir gömlu syntar yndislega.
Samt skilur þessi plata ekki mikið
eftir sig og sum lögin eru óþarf-
lega tilþrifalítil fyrir minn smekk,
til dæmis Í bláum skugga, Vegir
liggja til allra átta og Hótel Jörð.
Eftir tvær frábærar plötur (Lausn-
in og Sleepwork) þá eru þetta smá
vonbrigði.
DJ flugvél og geimskip er auka-
sjálf Steinunnar Harðardóttur.
Hún er að eigin sögn undir miklum
áhrifum frá skemmtaradrottning-
unni Sigríði Níelsdóttur sem hefur
gefið út plötur í takmörkuðu upp-
lagi og selt í 12 tónum.
Rokk og róleg lög er hennar
fyrsta plata. Tónlistin er einfalt
og frumstætt hljómborðspopp og
minnir í senn á fyrrnefnda Sigríði
og á gamalt syntapopp, jafnvel Der
Plan eða Residents. Söngurinn er
oft skemmtilega hrár, allt að því
pönkaður. Lögin eru stutt (platan
er innan við hálftími) og þó að þau
séu ekki öll tær snilld þá er þetta
samt mjög skemmtileg plata sem
ratar aftur og aftur í spilarann.
Trausti Júlíusson
Úr töfraveröld hljómborðsins
TÓNLIST
Rokk og
róleg lög
DJ flugvél og
geimskip
★★★
Einfalt, frum-
stætt og skemmtilegt.
TÓNLIST
Hermi-
gervill leik-
ur vinsæl
íslenzk lög
Hermigervill
★★★
Hljóðgervlaútgáfur af íslenskum
smellum, sumar vel heppnaðar.
Útgáfutónleikar Leav-
es verða á Nasa í kvöld.
Plata sveitarinnar We
Are Shadows hefur feng-
ið góða dóma hvarvetna
en hún kom út 11. maí síð-
astliðinn. Hvers vegna
var beðið svona lengi með
útgáfutónleikana? „Við
vorum aðeins of fljót-
ir á okkur,“ segir Andri
Ásgrímsson hljómborðs-
leikari. „Það er búið að
vera svolítið mikið að gera
hjá okkur síðan þá. Arnar
eignaðist barn þarna rétt á eftir og Hallur
fór að hitta Mikka Mús í Flórída. En núna er
allt að fara á fullt.“
Leaves spilaði á Græna Hattinum í
gær. Þá er lag af We Are Shadows, All the
Streets Are Gold, komið
í spilun. „Þetta er hresst
lag. Landinn tekur von-
andi vel í þetta.“ Andri
segir sumarið óráðið
hjá hljómsveitinni hvað
varðar spilerí. „Það á
bara eftir að koma í ljós.
Við erum reyndar allir
orðnir fullorðnir menn
með krakka, þannig að
við höfum ekki endalaus-
an tíma eins og í gamla
daga, en við reynum.“
Nokkur vel valin eldri
lög verða í bland við nýju lögin á tónleikun-
um, en Snorri Helgason hitar upp. Þá bætir
hljómsveitin við sig blástursleikara í fyrsta
skipti. Tónleikarnir hefjast klukkan tíu og
kostar 500 krónur inn. - kbs
Leaves spila á Nasa
FULLORÐNIR OG ÞROSKAÐIR Nýjasta plata
Leaves gefur hinum ekkert eftir.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
> Í SPILARANUM
Florence & the Machine - Lungs
Jarvis Cocker - Further Complications
Magnolia Electric Co - Josephine
Major Lazer - Guns Don´t Kill People...Lazers Do
Slow Club - Yeah So?
Doves - Kingdom of Rust
FLORENCE &
THE MACHINE
DOVES
Tilvalið í ferðalagið
Án viðbætts salts!Án viðbætts sykurs!
Kjarngóð næring í þægilegum umbúðum barnamatur.is