Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1944, Blaðsíða 11

Samvinnan - 01.04.1944, Blaðsíða 11
4. HEPTI SAMVINNAN KRISTIJÍX A HÍÚPI: Þýðing landbúnaðarins fyrir þjóðfélagið Kristinn Guðlaugsson bóndi að Núpi í Dýra- firði hefur sent ritstjórn Samvinnunnar eftirfarandi grein, sem er. merkileg athugun á verðgildi framleiðsluvara landbúnaðarins. En sökum þess að ekki nema lítill hluti landbún- aðarvaranna er fluttur út, er þvi oft ekki veitt athygli, hve mikil verðmœti landbóndinn legg- ur af mörkum i þjóðarbúið. Höfundurinn, sem alla sína œvi hefur unnið fyrir málefni sveit- anna af einlœgni og öfgalaust, gerir hér grein fyrir þeim niðurstöðum, sem hann hefur komizt að með allmiklum athugunum. Landbúnaðarframleiðslan hefur aldrei látið mikið yfir sér í verzlunarskýrslunum, og hlutfallstala henn- ar, miðuð við aðrar útfluttar vörur, hefur farið smá- lækkandi. Um síðustu aldamót var verðmæti út- fluttra landbúnaðarvara rúm 20% af verði allra út- fluttra vara, 1939 14% og 1941 aðeins tæp 5%. Þetta stafar annars vegar af stóraukinni framleiðslu sjávar- afurða, en hins vegar af mjög aukinni innanlands- notkun landbúnaðarvara, einkum síðan setuliðið kom. Það er að vonum, að ýmsum hafi þótt útfluttu landbúnaðarvörurnar veigalítill þáttur í þjóðarbú- skapnum. En þess er oft ekki nægilega gætt, hver þátt- taka landbúnaðarins er í því, að fæða og klæða þjóð- ina. Um það liggja ekki fyrir fullkomnar skýrslur. Má þó vel, með nokkurri fyrirhöfn, fara nærri um það. Hafa og tilraunir, í þá átt, verið gerðar. Minnist ég þar meðal annars greinargerðar skipulagsnefndar at- vinnumála, er hún birti í áliti sínu og tillögum 1936. Sigurður Sigurðsson búnaðarmálastjóri samdi og yfir- lit um þetta efni og form. Búnaðrafélags íslands vék greinilega að því í útvarpserindi, ekki alls fyrir löngu. Þetta vaktist allt upp fyrir mér, er ég hlustaði á hið ágæta útvarpserindi forseta Fiskifélags íslands 18. febr. s. 1., um þýðingu sjávarútvegsins fyrir þjóðar- búskapinn. Kom þar í ljós, eins og vænta mátti, glæsilegur árangur af starfi hinnar fræknu og fram- sýnu sjómannastéttar landsins. sem samvinnufélögin hafa vald yfir, léti nokkurt tækifæri ónotað til að fræða félagsmenn um þessar undarlegu og óvenjulegu aðgerðir, sem óvinveittur upplausnarlýður beitir móti þeim og réttmætum bjarg- ráðum þjóðarinnar J. J. Allt þetta leiddi til þess, að ég gerði tilraun til at- hugana um það, hver heildarframleiðsla landbúnað- arins mundi vera að magni og verðupphæð, nú um þessar mundir. Vegna vöntunar á skýrslum um þessi efni gat ég þó ekki orðið nærtækari en það, að miða við árið 1941. Enda þótt ég viti, að þessari tilraun sé all ábótá- vant að ýmsu, leyfi ég mér þó að birta hana. Hún getur máske gefið öðrum, sem til þess hafa betri að- stöðu en ég, tilefni til að íhuga þessi mál, sem vitan- lega eru háð miklum árlegum breytingum, og getur þá hver reist athuganir sínar á þeim grundvelli, er hann telur tryggastan. Mér er ljóst, að hér eru mörg vafaatriði, um vörumagn og verð, má þar mjög deila um, hvað mrrni sanni næst. Þá eru og nokkrar fram- leiðsluvörur, sem vafi getur verið um, hvort telja beri til landbúnaðar eða annarra atvinnugreina. Þessi áætlunartilraun mín lítur þannig út: I. Sauðfjárafurðir. 1. Kjöt. Árið 1941, telja búnaðarskýrslurnar mylk- ar ær 451437. Samkvæmt skýrslum fóðurbirgðafélags- ins hér í Mýrahreppi, árin 1940—1942, er meðal kjöt- þungi eftir ána 16—17 kg. Þykir mér líklegt, að það sé eigi yfir meðaltal, miðað við allt landið. Ég áætla því 16,5 kg. eftir ána. Fást þá alls eftir áðurnefnda ærtölu 7.448.710 kg. Fullorðið fé, sem slátrað er, læt ég mætast móti dilkum, sem aldir eru til viðhalds; mun það mjög ríflegt. Verð kjötsins, og ýmissa ann- arra afurða er nefndar verða, miða ég við útsöluverð í Reykjavík haustið 1941. Er þar einkum farið eftir skýrslum í blaðinu „Frey“. Þó dreg ég 20% frá því verði. Að ástæðu til þess verður vikið síðar. Sam- kvæmt þessu geri ég verð kjötsins kr. 3,20 kg. Verður það þá alls kr. 23.835.872. 2. Mör úr dilkum, mun víða reynast um 11% af kjötþunganum. En þar eð dálítið af sláturfénu er geldar ær og sauðir, tel ég sanni næst, að áætla hann 12%. Verður mörinn þá alls 893845 kg. Hver kg. áætla ég kr. 3,75. Alls kr. 3.351.918. 3. Gœrur. Hér er ærtalan lögð til grundvallar. Með tilliti til þess, að dilkar munu nokkru fleiri en ærnar og að í stað dilka þeirra, sem aldir eru til viðhalds, er slátrað fullorðnu fé, hygg ég eigi um of, að áætla gæruþunga fyrir hverja á 3 kg. Verður hann þá alls 1.354.311 kg. Samkvæmt verzlunarskýrslunum 1941, 111

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.