Samvinnan - 01.04.1947, Blaðsíða 5
KAUPFÉiLAG ÁRNESINGA er
stotnað alþingishátíðarárið 1930.
^ðtt félagið sé ekki eldra, er það nú
eiu stærsta kaupfélag landsins. Starf-
semi þess er mjög margþætt, eins og
°ú skal að vikið, þótt aðeins verði í
örfáum höfuðdráttum.
Arla vors 1945 var hafin bygging
niikils verzlunarhúss fyrir Kaupfélag
Arnesinga. Ennþá er sú bygging í smíð-
Urn, en búizt við, að henni verði lokið
^eð sumrinu. Er hér um að ræða eitt
•stærsta og myndarlegasta hús sinnar
tegundar hér á landi. Það er 40 m. að
^engd og 131/2 m. að breidd, tvær hæðir
fyrir utan kjallara og ris. en einnig þar
er hið glæsilegasta húspláss, enda er
Því fyllilega ætlað sitt hlutverk í fram-
tíðinni.
Umhverfis allt jretta stóra hús á að
Verða mikil steinsteypt stétt með þrem
k°gadregnum útskotum, sem vita að
gotu. Á tveimur þeirra, sínu á hvoru
horni, verður komið fyrir fánastöng-
um. Þar munu í framtíðinni þjóðfán-
Frá Kaupfélagi Árnesinga: Efri mynd: Nýja verzlunarhúsið (bakhl.) t. h., og vörugeymsla.
Neðri mynd: Frá bifreiöaverkstœöinu.
MARGÞÆTT STARFSEMIKAUPFÉLAGS ÁRNESINGA
Eftir 17 ára starf er það orðið eitt af
öflugustu kaupfélögum landsins
rnn og samvinnufáninn blakta hlið við
in á hátíðlegum stundum og vekja
Vegfarendur til sérstakrar umhugsun-
A miðútskotinu verður reistur Ijós-
. astari. Hann mun lýsa framhlið bygg-
'ngarinnar svo vel að af beri langt
a'engdar. Það er annars alls ekki ætl-
Unin að lýsa hinu nýja verzlunarhúsi
.' til nokkurrar hlítar að þessu
Slnni. Slíkt verður vafalaust gert. þeg-
ar það er fullbúið og verður tekið til
otkunar, svo sem til er ætlast. Aðeins
’Oá til viðbótar geta þess, að þegar eru
s rifstofur félagsins fluttar á þá hæð-
ina, sem þeim er
ætluð, og á búða-
hæðinni niðri er
búið að koma fyr-
ir mjög myndar-
legri bóka- og
skrautgripaverzl-
un. Alls munu
sérdeildir verða 5
eða 6. Saumastofa,
ESM Thon
arensen.
sem félagið hefir rekið í leiguplássi, er
nú fliut í framtíðarhúsnæði á rishæð
nýja hússins.
Þessi tnikla og réttnefnda framtíðar-
höll Kaupfélags Árnesinga stendur á
fallegum stað. Suðvesturhorn hennar
allt að því ,,kyssir“ norðurhorn gamla
verzlunarhússins. Hér fæst þó ekki
,,typiskt“ dæmi um „gamalt og nýtt“,
að því leyti, að eldra húsið mun ekki
vera mjög gamalt, enda hið snotrasta
og alls ekki lítið, þótt svo virðist vegna
stórhýsisins í slíku ,,návígi“.
Árið 1939 hóf Kaupfélag Árnesinga
rekstur eigin bifreiðaverkstæðis. Hefir
sú starfsemi félagsins vaxið mjög ört
og er nú svo yfirgripsmikil, að þar
vinna um 70 manns í fjölda bygginga,
þar sem fyrir er komið hinum ýmsu
verkstæðum, sem hvert hefur sín sér-
verkefni með höndum. Fyrir utan sjálf
bifreiðaviðgerðarverkstæðin eru starf-
rækt þarna yfirbyggingarverkstæði fyr-
ir bifreiðar, landbúnaðarvélaverk-
stæði. eldsmiðja, rennismiðja, log- og
rafsuðuverkstæði, auk smurnings-
stöðvar og benzínafhendingar. Fyrir
öll verkstæðin eru svo sérstakir, stórir
lagerar, þar sem geymdir eru hvers
konar varahlutir og efni til smlíða.
Verkstæðishverfi K. Á. samanstend-
ur af mörgum húsum af tvenns konar
gerð aðallega, og liggur á eystri bakka
Ölfusár, nokkuð norðan við brúna,
beint vestur af verzlunarhúsunum.
Verkstæðisbyggingunum er mjög hag-
anlega komið fyrir, þannig, að nokkurs
konar húsagarður myndast á milli
þeirra, en þetta hefir ýmsa kosti með
tilliti til skjóls o. fl. — og minnir helzt
á húsaskipan norrænna herragarða. —
Þarna gefur að líta annað stærsta bif-
reiðaverkstæði landsins.
Kaupfélag Árnesinga á nú sjálft 17
bifreiðar, en hefir samtals 39 í rekstri.
einkum vegna Mjólkurbús Flóa-
manna. Þar fyrir utan kemur svo að
sjálfsögðu til greina bifreiðaeign ann-
arra Ámesinga. Sést af þessu, að verk-
efnin hljóta jafnan að vera mörg.
Árið 1940 byggði K. Á. myndarlegt
(Framhald á bls. 20).
5