Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1947, Blaðsíða 9

Samvinnan - 01.04.1947, Blaðsíða 9
TTANN var náttúrufræðikennari, en hún kenndi tungumál. Þau stóðu í ganginum í)TÍr utan kennarastofuna og spjölluðu sam- an- Nokkrir nemendur gengu fram hjá þeim °g hneigðu sig. Skólaþjónninn gekk til og opnaði glugg- ann. Mild golan blés inn, svo að lokkar henn- ar flögruðu. Hann dró djúpt andann og gekk að glugg- anum. Eg held bara, að vorið sé komið, sagði hann, °g gleðiblærinn í röddinni var í engu sam- við grámuggulegan og alvarlegan gang- inn. Já, sagði liún. Þetta er fyrsti vordagurinn. Hún gekk að glugganum líka og stóð svo ná- la:gt honum, að hann fann straum fara um sisr allan. Eg er laus og liðugur það sem eftir er dags- *ns, sagði hann. Eg líka, sagði hún. Það væri gaman að fá sér göngu út í Lysti- Sarð, sagði hann. Já, sagði hún. Ertu með? spurði hann. Já, svaraði hún. A sama augabragðinu sá hann eftir þessu. Hvað álpaðist eg til að segja? spurði hann sjálfan sig. Það á ekki við, að kennari og ennslukona við sama skóla fari saman í gönguferðir á vorin. Og þar að auki hef eg ósköp að gera. Heill bunki af stílabókum Our mín heima, og eg er kominn yfir ertugt. A mínum aldri rjúka menn ekki út í l'ona vitleysu. En héðan af verður þessu ekki reytt, og það ætti nú annars að vera allt í agt að taka sér dálitla skemmtigöngu. VOR í Smásaga eftir Strax og hún hafði goldið jáyrði sitt við spurningunni, varð hún hálf kvíðin. Það væri 1 Hga alls ekki rétt af henni að vera að ganga þetta út með honum. Ef hann hefði e 'ki verið kennari, þá hefði allt verið í bezta agt- En hann var kennari við sama skóla! Að ugsa sér, ef þau mættu nú einhverjum nem- endtnn! Það væri voðalegt! En þó var það 6 ki eingöngu þetta, sem olli kviðanum. Það 'ar dálítið annað, sem erfitt var að gera sér g^ein fyrir, ekki sízt af því að hún var mála- ^ennari. Ef hún hefði kennt náttúrufræði, ^jefði það ef til vill verið léttara. Hún dró OJuPt andann, — og henni fannst nú þrátt Hir allt, að lífið væri dásamlegt, þó að það erfitt á stundum. Honum fannst, — á meðan þau stóðu við ° oggnnn og lokkarnir flögruðu fyrir golunni, a® hún væri bara sæt. Og henni fannst, að a"n væri myndarlegur. Svo héldu þau af a ut á gönguferðina. v onuna fannst hann vera ungur, og hann ar léttur í skapi og léttur upp á fótinn við APRÍL Ivar Ahlstedt hliðina á henni. Hann vingsaði stafnum og var hinn ræðnasti. Eg er ekki nema fertugur, hugsaði hann, og léttur á mér eftir aldri. Á degi sem þessum gæti eg gengið endalaust, án þess að verða þreyttur. Er þetta ekki dásamlegur staður? sagði hann. Jú, sannarlega, sagði hún; færðin er bara ekki sem bezt. Hún batnar, þegar við komum i Lystigarð- inn, sagði hann. Hann sagði henni frá æskuárum sínum, og hann benti á jakana sem voru úti á víkinni og sagði: Þegar maður var ungur, var maður ekkert smeykur við að fara í jakahlaup. Nú eru aðrir tímar. Enginn mannskapur í strákunum. Jakahlaup er hættulegt, sagði hún. Æskan teflir á tvær hættur, sagði hann. Það er henni eiginlegt. Ojá, ojá! Þú talar eins og þú sért orðinn öldungur. Já, sagði hann. Æskan er horfin. O sussu, aldurinn hefur ekki svo mikið að segja fyrir karlmanninn, sagði hún og stundi við. Þegar eg var hérna í jakahlaupi, varst þú enn í vöggu, sagði hann. Þetta var nú of mikið sagt, en henni þótti samt vænt um að heyra það. Það er svo sem ekki mikið að vera tæpra 35, hugsaði hún með sér. Við garðshliðið stóð maður og seldi „ball- óna“. Hann keypti einn og sleppti honum strax, til þess að sjá hvernig hann flygi. Þetta er asnaskapur, sagði hann, því að bráðum springur hann og er ekki til sem slík- ur. En hann hefur þó lifað og flogið í nokkr- ar mínútur. Hann hefur lifað og verið til eins og vorið, sagði hún. Vorið er eilíft, sagði hann og tók hana und- ir arminn, þvi að nú voru þau komin inn í garð. Henni var heitt af göngunni — og svo var henni órótt, af því að hann leiddi hana. Hún leit allt í kringum sig, til þess að vita, hvort hún sæi nokkurn sem hún þekkti. En hún varð miklu öruggari, þegar þau komu lengra inn í skóginn. Henni stóð líka á sama um færðina, en það var rétt, sem hann hafði sagt, jörðin varð þurrari, er lengra kom inn í garðinn. Oryggistilfinningin varð þess valdandi, að hún þrýsti armi hans að sér og hallaði sér upp að honum. Allt í einu sleppti hann armi hennar og féll á kné. 9

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.