Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1947, Page 12

Samvinnan - 01.04.1947, Page 12
Frá tvílugu til sextugs: Húsmœður i leikfimitíma Konsum i Stokkhólmi. „Frúifl er í 30.000 sænskar húsmæður gleyma áhyggjum hversdagslífsins í leikfimiflokkum samvinnufélaganna EKKERT í heimilishaldi félags- mannanna er neytendahreyf- ingunni óviðkomandi." Þannig svar- aði ungfrú Elly Löfstrand þeirri spurningu, hvernig það liefði atvik- ast, að samvinnuhreyfingin tók að skipuleggja leikfimiflokka kvenna á 12 stríðsárunum. Eg varð að viðurkenna, að stutt heimsókn í útbreiðsludeild sænska samvinnusambandsins virtist staðfesta þessi ummæli fullkomlega. Sigrar sænsku samvinnufélaganna á sviði verzlunar- og framleiðslumála á undanförnum árum eru alkunnir. Hver hringurinn af öðrum hefur orð- ið að láta í minni pokann, þegar inætti samvinnuhreyfingarinnar hefur verið beitt að því marki, að hnekkja ein- jkunaraðstöðu á sviði verzlunar eöa framileiðslu. Hverri starfsgreininni af annarri hefur verið bætt við fjölþætt- an rekstur sambandsins og kaupfélag- anna. Hitt er e. t. v. ekki eins kunnugt utan Svíþjóðar, að hin félagslega upp- bygging hefur ekki verið látin dragast aftur úr. Tala félagsmanna eykst jafnt og þétt. Og samvinnufélögin reyna að stuðla að því, að hinir nýju félags- menn séu ekki aðeins dauðir tölustaf- ir á félagsskrám, heldur lifandi, virkir, áhugasamir þátttakendur í starfi sam- vinnuhreyfingarinnar. Til þess að na þessu marki er rekin umfangsmikil félags- og útbreiðslustarfsemi á veg- um sambandsins og einstakra fe- laga. Blaðaútgáfa samvinnumann- anna sænsku er mikil og til fyrirmynd- ar um margt. Aðalblað þeirra er nu lang-útbreiddasta og fjölbreyttasta vikublað landsins. Bókaútgáfa er mik- il og menningarleg. Bæklingar eru gefnir út í milljónatali. Skólar og námskeið eru mikil starfsgrein. Allt er vel skipulagt og rösklega frarn- kvæmt. Þessi þáttur starfseminnar hefur á að skipa fjölmennu og hæfu starfsliði, og til hennar er varið miklu fé. Það þykir borga sig í Svíþjóð. Hver er annars þessi ungfrú Löf- strand? Eg rakst á hana af tilviljun á dögunum, er eg átti þess kost að staldra við einn dag hjá útbreiðslu- deild sænska samvinnusambandsins i Stokkhólmi. Eg kom þar inn í deild, sem einkum á að sinna hagsmunamál- um húsmæðranna, hafa lífænt sam- band við þær og stuðla að því, að sam- vinnuhreyfingin taki nægilegt tillit til reynslu þeirra og þekkingar, og vinnur jafnframt að því, að kynna húsmæðr- um landsins hina miklu þýðingu, sem samvinnufélagsskapurinn hefur fyrn' heimili þeirra og hamingju. „Já, þarna er ungfrú Löfstrand, sagði leiðsögumaður minn. Eg var jafnnær. „Jú,“ hélt hann áfram, „hún er fræg fyrir að hafa fundið upp hús- mæðraleikfimina." „Hvað er það? spurði eg. „Það er bezt, að ungfrú Löf- strand segi þér það sjálf,“ sagði leið- sögumaðurinn. Þannig hófst samtal okkar, og þannig kynntist eg hus- mæðraleikfiminni í Svíþjóð, og hrip-

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.