Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1947, Qupperneq 32

Samvinnan - 01.04.1947, Qupperneq 32
*||lllllllllllllllllllllllll|||||l|ll||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||t||||||||||||||||||ll|||ll||l||||||||||tl|||||||||||||||||||||||||MII|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||l|l||l|||M||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||llllllllllllllllllll|lllllll|il,|> Orðsending til bifreiðaeigenda Að gefnu tilefni viljum vér hér með taka fram: Ástæður fyrir því, að vér sjáum oss fært að taka upp þá nýbreytni í bifreiðatryggingum, að lækka iðgjöld á þeim bifreiðum, er sjaldan valda tjóni, eru meðal annars: Ódýr og hagkvæmur rekstur. Framúrskarandi hagkvæmir endurtryggingarskilmálar. Að hagnaður, sem kann að verða af tryggingarstarfseminni, verður notaður til þess að lækka iðgjöldin, en ekki til þess að greiða háan arð til hluthafa, svo sem tíðkast í tryggingarhlutafélögum. Samvinnutryggingarnar gerðu endurtryggingarsamning við sænsku samvinnutrygg- ingarfélögin, og eru þessir samningar sérstaklega hagkvæmir, enda byggjast þeir ekki á gróðavon endurtryggjenda, heldur samhjálp fyrir góðu málefni. Samningarnir eru gerðir til margra ára og tryggja afkomu Samvinnutrygginga eins vel og hægt er. Það má geta þess, að hin sænsku samvinnutryggingarfélög greiða sænskum bifreiðaeigendum allt að 50% afslátt af iðgjaldi fyrir þær bifreiðar, sem ekki hafa orðið fyrir tjóni í 4 ár. Samband ísl. samvinnufélaga hefur tryggt afkomu Samvinnutrygginga með 500.000 kr. framlagi í tryggingarsjóð. Hafi orðið tap á bifreiðatryggingum hjá þeim félögum, sem rekið hafa þá starfsemi hér á landi, hefir slíkt tap orsakað iðgjaldahækkun, samanber hækkun þá, er Almennar Tryggingar h.f. og Sjóvátryggingarfélag íslands auglýstu fyrir nokkrum dögum. Umferðamálin hér á landi eru mjög aðkallandi vandamál. — Daglega koma fyrir um- ferðaslvs og ekki ósjaldan berast fregnir um dauðaslys á mönnum. Þegar Samvinnutrygg- ingar tóku upp hið nýja fyrirkomulag um iðgjaldaafslátt, vildu þær stuðla að auknu ör- yggi í umferðamálum. Fyrirkomulag þetta er mjög algengt erlendis og gefst alls staðar vel. Er ekki sanngjarnt, að eigendur þeirra bifreiða, er sjaldan valda tjóni, fái ó d ý r a r i tryggingu? ; SAMVINNUTRYGGINGAR iiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiniii|mimmiimmiiM|M|i|i| iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii 111111111111111111111111111111111 •iiiiiiiiiiiiiii'aiiiiiiiiiiiiiii"iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinm1 32

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.