Samvinnan


Samvinnan - 01.06.1950, Blaðsíða 15

Samvinnan - 01.06.1950, Blaðsíða 15
una um varnirnar gegn yfirganginum. Það voru fimmtu herdeildir starfandi í fyrri árekstrum, alveg eins og þær starfa í dag; það voru t. d. kaþólskir menn í Englandi árið 1588, stjórnar- byltingarmenn árið 1793 og fasistar árið 1940. Reglan hefur verið sú sama í öllum fyrri árekstrunr. En einstök þjóð hefur talið sig nógu sterka til þess að leggja undir sig heiminn, en bandalög þeirra þjóða, sem ekki liafa sætt sig við að tapa sjálfstæði sínu, hafa sigrað yfirgangsþjóðina áður en yfir lauk. í fyrri varnarbandalögunum hefur forustuþjóðin náð miklum sigrum, en ekki sózt eftir alheimsyfirráðum. Það sama á við í dag. Kommúnistar og vinir þeirra víðs vegar um heim tala að vísu hátt um ameríska heimsvelda- stefnu, en í Ameríku er hvergi nærri því eins mikil eindrægni og í Rúss- landi um að stofna alheimsveldi, sem stjórnað er frá einum og sama staðn- um, og í Bandaríkjunum er hvergi nærri svo mikil andúð á öllum öðrum stjórnarstefnum, og þeinr sem við lýði er í Washington, eins og sú andúð, sem er í Rússlandi á öllum öðrum stjórnarformum en þeinr, sem eru í Moskvu. Hugsjónalegar ástæður. Hugsjónalegu ástæðurnar fyrir nú- verandi vandamálum í lreiminum eru að einu leyti nrjög þýðingarmiklar, en að öðru leyti lireinustu loftbólur. I lrvert skipti, sem forsvar ákveðinn- ar hugsjónar er tengd afsökununr fyrir yfirgangi valdránsmanna, drukknar lrugsjónin í valdastreitu milli þeirra, sem stjórna hreyfingunni. Hugsjónin heldur að vísu áfranr að vera til, en er notuð til þess eins að afla yfirgangs- stefnunni fylgjenda nreðal almenn- ings. A sextándu öld var lrugsjón kaþólsk- unnar tengd lreimsveldisstefnu Spán- verja, en mótmælendalrugsjónin tengd ránunr og vígaferlum. Komu Napóle- ons til Ítalíu og Vestur-Þýzkalands var fagnað mjög nrikið á sínum tíma, vegna þess að hann var talinn bera uppi hugsjónir byltingarinnar. En það kom annað hljóð í strokkinn, er Napóleon setti bræður sína til valda og kallaði íbúana til lrerþjónustu i franska hernum. Þá var augljóst, að valdastreitan lrafði skotið hugsjónun- um um frelsi, jafnrétti og bræðralag ref fyrir rass. Og þannig er það einnig í dag í lrinunr kommúnistiska heimi: valdastreitan ræður gerðum forvígis- mannanna, lrugsjónirnar eru aðeins notaðar til þess að hæna almenning til fylgis við yfirganginn. Hvað er sögulega nýtt? Ætlun mín er samt ekki sú, að halda því franr, að það sé ekkert nýtt í sögu núverandi vandamála, að sagan sé að endurtaka sig á sama lrátt og áður. Þvert á móti: það er mjög margt nýtt í núverandi misklíð. Það fyrsta, senr nýtt er, er að komm- únisminn er róttækari og ísmeygilegri en hugsjónir fyrri lreimsveldisstefna. Hin reikula rökfimi (dialectic) Karls Marx hefur haft ekki ósvipuð áhrif á einstöku nrenntamenn og kenningar St. Páls höfðu á St. Ágústín á sínum tíma; kenningar Marx hafa líka tvö- faldan áróðursþunga, vegna þess að þær skírskota að nafninu til til skyn- seminnar, en í raun og veru skírskota þær til tilfinninganna. Þær bjóða hin- um óánægða, lrvar sem hann er, upp- reist og von um lrefnd á andstæðing- um sínunr, ínrynduðunr eða raunveru- legum; þær bjóða hverjum þeim, sem verður að þola ójöfnuð eða hvers kon- ar ranglæti, vonir um bætur, af því að á sinn ,,mystiska“ lrátt þykjast þær lrafa fundið hinar raunverulegu rætur óréttlætisins í heiminum. Annað nýtt sögufyrirbæri í þessu sanrbandi er liin undarlega fullkomna skipulagning á starfsemi konrmúnista. Jesúítarnir voru að vísu eins vel skipu- lagðir á sínunr tíma, og öll vitum við, lrverju þeir áorkuðu fyrir andsiðabót- ina. En Jesúítarnir voru fáir. Auk þess \oru fjölmargir kaþólskir menn utan Jesúítareglunnar hvergi nærri eins vel skipulagðir, og sumir þeirra voru beinlínis andstæðir starfsemi Jesúít- anna. — í þá daga var ekki eins auð- velt og nú að þurrka út alla „Trotsky- ista“. Það er að vísu rétt, að hin einstak- lega sterka skipulagning kommúnism- ans er farin að sýna sprungur hér og þar. Tito brauzt undan aga alþjóða- kommúnismans; — nokkrir brezkir kommúnistar gátu ekki á sínum tíma varið vináttusamning Hitlers og Sta- líns; margir ítalskir kommúnistar hafa átt erfitt með að skilja, hvernig Karl Iíjarni skoðana Russells i greininni, sem hér birtist, er: „Ríkar þjóðir og rikir einstaklingar taka yfirleitt afstöðu með Ameriku; fá- iœkar þjóðir og fátœkir einstaklingar taka yfirleilt afstöðu með Rússlandi.“ „Kenningar Karls Marx liafa tvö- faldan áróðursþunga vegna þess, að þrer skírskota að nafninu til til sliyn- seminnar, en í raun og veru skirskota þœr til tilfinninganna „Ef heegt verður að fyrirbyggja strið nœstu 10 árin, þá þarf ekki til styrjald- ar að koma við Rússa." „Vonin um frið felst i j>vi, að Vest- urveldin verði greinilega langtum her- sterkari en Sovétrikin þangað til nýtt andrúmsloft hefur skaþazt i alþjóða- málunum." „Það er ómögulegt að hugsa sér, að strið sé þess virði að heyja það nema það sé þess virði að vinna það með þeim vopnum (atom- og vetnis-sprengj- um), sem völ er á.“ Marx sannaði, að þeir ættu að láta kröfur sínar um Trieste niður falla. En satt er jrað, hingað til ber tiltölu- lega lítið á því, að hið járnharða skipulag sé að brotna niður. Hins vegar hlýtur sú spurning að vakna, hvort það verði eins sterkt framvegis og það hefur verið hingað til. Þriðja nýungin er sú, að nú eru aðeins tvö sterk stórveldi í heiminum. Og sú fjórða er eyðileggingarkraftur vopns þess, senr notað verður, ef „kalda stríðið" verður „lieitt stríð“. Brýzt styrjöld út? Verður kalda stríðið lreitt stríð? Ekki veit ég meira um jretta en hver og einn hugsandi blaðalesandi, sem vel fylgist með fréttum. En jrað eru eigi að síður nokkur atriði, sem ég vil benda á í Jressu sambandi. Eg er Jreirrar skoðunar, að það sé ógerningur að semja við valdhafana í Kreml. Þeir munu hefja stríð, hve- nær sem jreir telja aðstæðurnar sigur- vænlegar fyrir sig. „Spádómar konnn- únismans1' segja, að raunverulegur friður komist ekki á í heiminum fyrr en kommúnisminn hafi sigrað. Þenn- an ,,spádóm“ kommúnismans halda þeir Stalin og allir hans fylgjendur enn í lieiðri, enda þótt jreir hafi varp- að ýmsum greinum og „spádómum" kommúnismans fyrir l)orð. Við þetta (Framhald á bls. 19) 15

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.