Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1952, Side 3

Samvinnan - 01.12.1952, Side 3
V Söíuvika íslenzkrar iðnaðarvöru í síðasta hefti Samvinnunnar var fram borin nokkur gagnrýni sökum þess, að ekki hafði verið gert sérstakt átak til þess að selja íslenzkar iðnaðarvörur í sambandi við Iðn- sýninguna. Þessi gagnrýni hefur ekki reynzt með öllu réttmæt, því að nokkru eftir sýninguna var efnt til sölu- viku íslenzkrar iðnaðarvöru og þá reynt á margvíslegan hátt að vekja athygli á íslenzku vörunni og auka sölu henn- ar. Mun þessi viðleitni liafa gefið góða raun, enda þótt auðsætt sé, að hljómgrúnnur meðal fólksins hljóti að hafa verið meiri sömu vikurnar og Iðnsýningin var haldin. í þessu sambandi er rétt að beina því sérstaklega til kaupfélaganna um allt land, og þá ekki sízt afgreiðslufólks í búðum þeirra, að ekki dugir að halda eina slíka viku hátíðlega, heldur verða þessir aðilar öðrum frernur að styðja íslenzka iðnaðinn í baráttu sinni. Það skiptir ekki litlu máli, að afgreiðslufólkið íhugi þessi mál, kynni sér íslenzku vöruna og benda fólki á kosti hennar, og geta fá orð á þeim vettvangi haft veruleg áhrif á sölu einstakra vörutegunda. Sérstaklega ætti starfsfólk kaupfélaganna að sýna framleiðslu samvinnuverksmiðjanna áhuga, kynna sér hana og halda henni fram. Þær vörur eiga ekki alls stað- ar upp á pallborðið, og eiga því fyllilega skilið, að þær njóti eigenda sinna. Það hefur reynzt svo, að íslenzkar iðnaðarvörur hafa staðið stórum betur að vígi í samkeppni við hinar erlendu, þegar þær liafa fengið snotrar umbúðir, þægileg nöfn og þeim er haldið fram með fögrum gluggasýningum og skyn- samlegum upplýsingum. En á þessu sviði verða íslenzk iðn- fyrirtæki enn að sækja sig verulega, og ná þar árangri, enda þótt aðstaða til þess að gera slíka hluti vel sé engan veginn sambærileg hér á landi við önnur lönd. Ein samvinnuverzlun í landinu gat stært sig af því, þeg- ar söluvika íslenzka iðnaðarins stóð yfir, að hjá henni væru „52 íslenzkar vikur á ári“. Flestar verzlanir hafa þó ekki slíka aðstöðu, og enginn ætlast til þess, að erlendum vör- um, sem fluttar eru inn í samkeppni við íslenzkar, sé ekki sýnd full sanngirni. En hingað til hafa þær heldur þótt njóta meira en jafnréttis. Nú er vantrú þjóðarinnar á eig- in iðnaðarvörum hins vegar ört minnkandi, og því verða iðnfyrirtækin að njóta fulltingis verzlunarinnar í baráttu sinni. Með hverju iðnfyrirtæki, sem stendur í blóma, trygg- ir verzlunin sjálfri sér hóp viðskiptavina. SAMVINNAN óskar lesendum sínum og öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsæls nýárs! 3

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.