Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1952, Blaðsíða 33

Samvinnan - 01.12.1952, Blaðsíða 33
Sc amumniA, ^réttir Samkvæmt skýrslum frá innan- ríkisráðuneyti Bandaríkjanna eru þar í landi 70 samvinnufélög fiski- manna, og starfa þau í 17 fylkjum. Þau hafa til meðferðar um 1000 milljón pund af fiski árlega og er verðgildi þessa afla talið 69 000 000 dollara. -k CCA, stærsta neytendasamband Bandaríkjanna, telur nú innan sinna vébanda 449 000 fjölskyldur, og gengu 32 kaupfélög í sambandið á síðastliðnu ári. Veltan.var 74 millj- ónir dollara árið, sem leið, en það er þó aðeins 5% af smásölu þeirra ríkja, sem sambandið nær til. Þrír starfsmenn dönsku kaupfé- laganna fóru n}llega með fjölskyld- um sínum til Grænlands til að taka við stöðum hjá Grænlandsverzlun- inni, og hafa þá alls sjö danskir sam- vinnumenn farið til Grænlands til slikra starfa. Málgagn danskra kaupmanna, „Dansk Handelsblad“, sér miklum ofsjónum yfir þessu og hefur skrifað um stórkostlega hættu, sem sé. á því, að danskir samvinnu- menn leggi undir sig Grænlandsverzl- unina! ★ Vetrarmynd frá Norður-SviþjóS. HB, kaupfélagið í Kaupmanna- höfn, bætti við sig 15 000 nýjum fé- lagsmönnum á síðastliðnu ári og jók veltuna um 22%, svo að hún komst upp Á 82,5 milljónir danskra króna. Félagið á 203 verzlanir. ★ Ungir samvinnumenn hafa nú rnyndað með sér alþjóðlegt sam- vinnusamband og hefur miðstjórn þess nýverið haldið fyrsta fund sinn í Basel í Sviss. Þetta æskulýðssam- band mun hafa náið samstarf við ICA og gangast fyrir margvíslegu starfi til að efla samvinnuhreyfing- una meðal æskumanna og kvenna um heim allan. Bandaríkjaþing hefur samþykkt að heimila ríkislánastofnuninm (RFC) að lána 30 milljónir dollara til samvinnubygginga, og er þar með greitt úr brýnni þörf þeirra fyrir lánsfé. ★ L. R. Boulware, sem stjórnar starfsmannahaldi ameríska fyrirtæk- isins Gereral Electric, hefur sagt, að starfsfólkið virðist miklu þreyttara á mánudagsmorgni eftir langa og stranga helgi en það er, þegar það fer úr vinnunni á föstudagskvöldi! McDonald leitaði ráða hjá vini sínum McPerson. „Eg get ekki á- kveðið“, sagði hann, „hvort ég á að giftast ríku ekkjunni, sem ég elska ekki, eða fátæku stúlkunni, sem ég elska.“ „Þú skalt giftast stúlkunni, sem þú elskar,“ sagði McPersoon strax. „Það er rétt. Ég held ég giftist henni og fylgi rödd hjartans,“ sagði McDonald.. „Úr því að svo er,“ sagði McPer- son,“ gætir þú gefið mér heimilis- fang ríku ekkjunnar!“ 33

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.