Samvinnan - 01.12.1952, Blaðsíða 28
á íslandi, þar sem hann sagði meðal
annars: „Allar hersveitir eru hérmeð
aðvaraðar um það, að hér verður ekki
hörfað úr neinu virki. Hver varðstöð
skal verða varin til síðasta rnanns og
síðasta skots.“
Núverandi foringi varnarliðsins,
Brownfield, sagði nýlega, að varnar-
liðið væri hér til að verja ísland og
einskis mundi verða látið ófreistað til
að fullnægja því hlutverki.
Sameinuðu
þjóðirnar
(Framh. af bls. 17)
vera ótíndur ævintýramaður, nýslopp-
inn úr fangelsi, og hafði þá reynslu
eina af sjó að hafa verið hjálparkokk-
ur á fljótabát í stuttan tíma. — Einn-
ig heyrði ég dæmi þess, að þessir al-
þjóðlegu starfsmenn féllu fyrir tilboð-
um alþjóðlegra smyglhringa, enda
sleppa slíkir menn oftast við landa-
mæraeftirlit sem erindrekar Samein-
uðu þjóðanna. En þetta eru undan-
tekningar frá miklu, nytsömu og
dyggilegu starfi deildarinnar.
Sjötta deildin er svo deild almennr-
ar þjcnmstu fyrir fundi og ráðstefnur.
Dagskrárundirbúningur, skýrslugerðir
ýmsar og fleira falla þar undir.
Sjöunda deildin tekur aðeins til
mdla innan stofnunarimiar sjálfrar. Er
það deild, er fjallar um starfsmanna-
hald og fjármál skrifstofunnar.
Áttunda aðaldeildin er upplýsinga-
deildin, sem vinnur ákaflega mikið
starf. Undirdeildir hennar gefa út alls
konar pésa og tímarit, halda stöðugu
sambandi við blöð og útvarp, reka
upplýsingastöðvar í hininn ýmsu lönd-
um og reyna á allan hátt að útbreiða
þekkingu og auka velvild í garð Sam-
einuðu þjóðanna.
Af persónulegum ástæðum tef ég
síðasta, en ekki sízta, lögfrœðideildina.
Hún skiptist í þrjár undirdeildir. Al-
menna deild, sem leiðbeinir stofnun-
um S. Þ. og ritaranum um lagaleg at-
riði, kveður á um túlkun stofnskrár
sanrbandsins, aðstoðar við samningu
alþjóðlegra sáttmála, kemur fram sem
lögfræðilegur samningsaðili og sak-
sóknari S. Þ., ef á þarf að halda, og
margt fleira. Önnur undirdeildin er
deild, sem skráir alla milliríkjasamn-
inga, og vinnur að og verndar alþjóð-
leg réttindi starfsmanna bandalagsins.
— Þriðja undirdeildin er ef til vill sú
deild, senr nresta þýðingu hefur með
tilliti til franrtíðarinnar. Er það deild
sú, sem vinnur að þróun og samræm-
ingu alþjóðaréttar; hún vinnur beint
að rannsókna- og vísindastörfum á því
sviði, og þjónar um leið einnig lrinni
alþjóðlegu lögfræðinganefnd, sem alls-
herjarþingið hefur stofnsett í því
sanra skyni.
Ég hef nú reynt að draga upp nokkra
nrynd af þeinr störfum, sem unnin
eru í aðalbækistöðvunr Sanreinuðu
þjóðanna, og langar mig nú til þess
að nrinnast á fólkið, senr störfin vinn-
ur.
Til þess að öðlast trúnað allra með-
limaríkja S. Þ. lrlýtur skrifstofan að
þurfa að hafa mjög alþjóðlegan blæ,
enda leggur stofnskráin ríka áherzlu
á þetta atriði. Hún segir, að starfs-
fólkið skuli lrvorki leita né taka á
móti fyrirmælum frá nokkurri ríkis-
stjórn, né lreldur frá nokkru yfirvaldi
utan skrifstofu S. Þ. Til þess að skrif-
stofan fái þennan alþjóðlega blæ,
verður að reyna að hafa starfsfólkið
frá sem flestum löndum heimsins,
enda er nú starfsfólk skrifstofanna frá
meira en 60 þjóðlöndum. Reyndar
eiga ekki öll meðlimaríki starfsmenn
í skrifstofunum, en hins vegar eru
starfsmenn þar frá mörgum ríkjum,
sem standa utan S. Þ.
Starfsmenn í New York eru upp
undir 3500, en í Genf uin f200. Vita-
skuld er ekki hægt að velja allan þenn-
an fjölda frá fjarlægari löndum. Vél-
ritunarstúlkur og hraðritarar, sendi-
sveinar og hvers konar þjónustulið allt
er ráðið úr næsta nágrenni. Sérmennt-
aðir menn eru hins vegar ráðnir eins
og hægt er eftir landfræðilegri skipt-
ingu, hlutfallslega eftir stærð þjóð-
anna. Þannig hafa t. d. íslendingar
rétt til að hafa 3 starfsmenn, en hafa
aðeins 2. Þarna blandast því saman
fólk frá öllum þjóðlöndum og reynir
að mynda óskipta heild. Félagslíf er
mikið meðal starfsfólksins, það hefur
sérstakt sjúkrasamlag, vísi að barna-
skóla og mánaðarblað, en sérstakur
dómstófi dæmir um þrætur, sem verða
milli starfsfólks og stofnunar.
Fastir íslenzkir starfsmenn hjá S. Þ.
eru nú þau Kristín Björnsdóttir, er
vinnur við deiid þá, er sér uin al-
menna þjónustu fyrir fundi og ráð-
stefnur, og Ivar Guðmundsson blaða-
maður, er vinnur við upplýsingadeild-
ina. Þriðji fasti, íslenzki starfsmaður-
inn var Eyjólfur K. Sigurjónsson, end-
urskoðandi. — Ennfremur vinnur þar,
svo sem flestum mun kunnugt, Daði
Hjörvar, útvarpsþulur og fréttamaður.
Oddamaður þessarar miklu stofn-
unar er, svo sem öllum er kunnugt,
Norðmaðurinn Trygve Lie, og býr
hann svo sem vera ber á efstu hæð
skýjakljúfsins. Hann er nokkurs kon-
ar framkvæmdastjóri skrifstofunnar og
hefur úrslitavald um allar mannráðn-
ingar og allt starfsskipulag. En hann
hefur ekki aðeins þetta framkvæmda-
vald, heldur hefur liann ýmsar póli-
tískar skyldur gagnvart S. Þ. í lieild
og gagnvart allsherjarþinginu. Hann
kemur fram sem ritari við fundi alls-
herjarþingsins og ráðanna, og hann
semur árlega skýrslu um störf banda-
lagsins til allsherjarþingsins. Hann
hefur vald til þess að setja atriði á
dagskrá öryggisráðs, og hann getur
kallað sarnan aukaþing allslierjarþings-
ins, ef meiri hluti ríkja í öryggisráði
fer þess á leit, og í sérstökum tilfellum
hefur hann fjárveitingavald, sem ann-
ars aðeins er hjá allsherjarþinginu.
Það gefur því að skilja, að mikil
ábyrgð hvílir á þessum manni, enda
skiptast mjög skin og skúrir á í lífi
hans. Er hann til dæmis beitti sér
fyrir því, að alþýðuríkið í Kína fengi
sæti Kína hjá S. Þ., var hann úthróp-
aður sem versti kommúnisti í Banda-
ríkjunum, og var þar mjög haft á orði
að neita að styðja hann til endurkjörs.
Síðan Kóreustríðið brauzt út aftur á
móti, er liann mjög vinsæll þar vestra,
en Rússar viðurkenna hann hinsvegar
ekki lengur sem aðalritara.
Að þessu sögðu er það vonandi les-
andanum eitthvað ljósara, að þrátt fyr-
ir rifrildi og málþóf á allsherjarþing-
inu, deilur og beitingu neitunarvalds
í öryggisráðinu, fer á hverjum degi
fram rnikið og öruggt starf til eflingar
alþjóðaheill fyrir atbeina S. Þ. En bet-
ur má, ef duga skal. Gerum okkur því
ljóst, að við erum allir alheimsborg-
arar, og á sérhverjum okkar hvílir sú
skylda að stuðla að friði í heiminum
og bæta úr skorti náungans. En þetta
er einmitt höfuðverkefni Sameinuðu
þjóðanna.
28