Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1952, Blaðsíða 5

Samvinnan - 01.12.1952, Blaðsíða 5
fleygt út til að binda enda á hávað- ann. Af einhverjum ástæðum minnir þetta atvik okkur á hin grimmilegu barnamorð Heródesar. Loks kemst friður á. Það er þögn í tíu til fimmtán mínútur. Þá heyrast nokkur riffilskot hvert á fætur öðru. Það virðist hafa komið til árekstra við markalínuna milli Gyðinga og Araba — þrátt fyrir vopnahléð — en línan liggur gegnum borgina miðja. Nú gefum við upp alla von um svefn, því að gistihúsið og borgin fyrir utan eru að vakna til lífsins. Fyrstu götu- /alarnir hrópa upp ágæti vöru sinnar. Það er barið harkalega að dyrum hjá okkur og svartskeggjaður Arabi sting- rr inn höfðinu til að bjóða okkur nýtt brauð. Þegar við komum út í blindandi sólskinið, þekkjum við varla borgina frá nóttinni áður. Á götunum er krökkt af fólki og ber mest á mönn- urn í marglitum skikkjum. Blæju- huldar konur ganga kattmjúkum skrefum fram og aftur í þvögunni. Aragrúi af tötrum klæddum börnum leikur sér á götunni — eða betlar. Hungraðir hundar snuðra í eitt og annað. Asnar með þungar byrðar eru reknir áfram með hrópum og köllum. Nýju grænmeti utan úr sveitinni hefur verið raðað á götusteinana til sölu, en varla verður sagt að það sé lystilegt. Ivjötvörur eru einnig lagð- ar fram til sölu, en urmull af svört- um flugum leggst á þær. Ýmis kon- ar réttir eru matreiddir á götunni og boðnir þar fram. Götusalarnir draga að sér athyglina með því að slá sam- an málmkastanettum og hrópa há- stöfum. Úr hátölurum berst arabisk tónlist, jass og fyrirlestrar um hvað eina. Því hærra, sem sólin stígur, því hærri verður hávaðinn á götunum og því verri ólyktin í þessum yfirfulla borgarhluta. Við göngum aftur eftir Via Dolorosa, máttlaus af hitanum og það liggur við, að okkur klígi af ó- þefnum. Við göngum undir steinboga, þar sem Pontíus Pílatus stóð. Við göngum sömu leið og Kristur gekk með krossinn — og staðnæmumst uppi á Golgatahæð, skammt frá hvítu hvolf- þaki Kfrkju hinnar heilögu grafar. Þaðan liggur krókótt gatan að hinu ævaforna Damaskusldiði. Stórir dúkar hafa verið hengdir upp utan Þannig er nu umhorjs d Via Dolorosa og Golgatahœð í Jerúsalem. húsanna til að skapa skugga af sólu. Við göngurn gegnum þröng manna og dýra, og komumst út á Damaskus- torgið. Hér eru mörkin milli Gömlu og Nýju Jerúsalemborgar. Það er gadda- vírsgirðing eftir markalínunni og herverðir báðum megin hennar. Að- eins nokkrir útvaldir, sem liafa við- eigandi vegabréf, fá að fara yfir lín- una, en margir horfa löngunaraugum inn í nýborgina, þar sem gnótt er góðra íbúða. Einhvers staðar á þess- um slóðum voru skotin í nótt. Átök- unum um Jerúsalem er engin veginn lokið. Göturnar i ganila borgarhlulanum i Jerúsalem eru dimmar og rakar og viða engum jarartœkjum fœrar. Síðastliðið haust dvöldust hér á landi sænsk hjón og tóku kvikmyndir af landi og þjóð fyri’r efnahagsstofn- unina í París. Er þetta hluti af kvik- myndatökum víða í Vestur-Evrópu og verða myndirnar sýndar með textum á ýmsum málum. Wahlgren hjónin hafa áður ferðazt um fjölda landa og tekið kvikmyndir, en einnig safnað efni í blaðagreinar, er birzt hafa víða um lönd. Meðan þau dvöldust hér á landi keypti Samvinnan tvær greinar af frúnni, aðra um stutta dvöl í Jerú- salem, en hina um samvinnustarf á kaffiekrum Austur-Afríku. — Fyrri greinin birtist hér með. 5

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.