Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1952, Qupperneq 16

Samvinnan - 01.12.1952, Qupperneq 16
* Islendingur í aðalstöðvum S.Þ. Ungur lögfræðingur segir frá starfi sameinuðu þjóð- anna, sem er annað og meira en málþóf og deilur Oftast, er fólk hugsar til Samein- uðu þjóðanna, rennir það helzt liuga til þeirra tveggja stofnana S. Þ., sem mest er getið í fréttum og útvarpi, það er öryggisráðsins og allsherjar- þingsins. Er það efalaust vegna mál- þófs þess og deilna, er því miður ein- kenna svo oft störf þessara tveggja stofnana, að maður heyrir oft hjá fólki í almennum umræðum ótrú á framtíð S. Þ. eða jafnvel níð um starf- semi þeirra. En í raun réttri vita allir, að starfsemi S. Þ. er víðtækari, þótt fæstir átti sig á því, hve geysi víðtæk hún er. Fastastofnanir S. Þ. eru sex. Alls- herjarþingið og öryggisráðið, sem fyrr voru talin, efnahags- og félagsmála- ráðið, gæzluverndarráðið, alþjóðadóm- stóllinn í Haag og skrifstofurnar í New York og Genf. Fólki mun al- rnennt að einliverju leyti kunnug starfsemi pólitísku stofnananna, alls- herjarþingsins og ráðanna, og enn- fremur starfsemi alþjóðadómstólsins í Haag. En sízt mun fólki kunnugt um störf og starfshætti í sjöttu rnegin- stofnuninni, aðalskrifstofunni. Því er það, að mig langar til þess að fara nokkrum orðum um starfsemi og starfsfólk í skrifstofu Sameinuðu þjóðanna, enda var ég svo lánsamur að hljóta síðastliðið sumar dvöl hjá bandalaginu um nokkurt skeið við nám og starf. Skrifstofan er staðsett í New York, eða nánar sagt á miðri Manhattan- eyju, og fer vel á því, að höfuðstöðv- ar heimsins séu í rniðri stærstu borg heimsins. Rockefellerstofnunin í New York gaf S. Þ. lóð undir sarfsemi sína á bökkum Austurár, en á sú skiptir löndum milli tveggja stærstu hverfa borgarinnar, Manhattan og Brook- lyn. Lóð þessi er þegar fullskipulögð, og mikið komið af byggingum þar. Eftir Svein Hauk Valdimarsson Sem dæmi um það, hve lóðir í New York eru gernýttar, má geta þess, að undir torgi því, sem er fyrir framan skrifstofubygginguna, eru tvær iiæðir eingöngu ætlaðar bílastæðum, og eru undirheimar þessir geysivíðfeðmir, með umferðalögregluþjónum og allt hvað eina. í einni af byggingunum á lóð þess- ari eru aðalskrifstofur Sameinuðu þjóðanna. Er það skýjakljúfur, er tel- ur 39 hæðir ofanjarðar og þrjár neð- an, og er skýjakljúfur sá oft kallað- ur manna í millum „eldspýtustokk- urinn" eða „glerhúsið“. Er liann kall- aður þetta annars vegar vegna þess, Starfsfólk sameinaðu þjóðanna er frd yfir 60 þjóðum og er i vali þess ekkert tillit tekið til hörundslitar eða uppruna. Hér sést hópur starfsmanna i aðalstöðvunum i New York. að langl að séð lítur lnisið út eius og eldspýtustokkur, reistur upp á encl- ann, en hins vegar vegna þess, að báð- ar hliðar byggingarinnar eru nærfellt einn gluggi. Hús þetta er eins og nærri má geta ákaflega fullkomið, svo til eingöngu gert úr stáli, marmara og gleri, og var það fyrst tekið í notkun í ágúst 1950, hálfu öðru ári eftir að hafin var smíði þess. Auk skrifstofanna eru í húsinu alls kyns þjónustustofnanir fyrir starfsfólk og fulltrúa, t. d. banki, heilsugæzlustöð, blaðamannabæki- stöðvar, útvarps- og sjónvarpssalir, mjög fullkominn matsalur, setustofa og margs konar funda- og ráðaher- bergi. Dettur mér í liug í því sam- bandi, að hópur sá, er ég var hluti af síðastliðið sumar, kom oft saman í fundaherbergi, er herforingjaráð ör- yggisráðsins notaði að jafnaði, og spannst oft hið mesta skop af því, er meinleysislegustu menn sátu í sætum, merktum rússneska hernum, kín- verska flughernum o. s. frv. Annars má gera nokkra grein fyrir fullkomnun byggingarinnar með því dæmi, að til starfsmannaflutninga einna eru stöðugt í notkun 18 lyftur í byggingunni, þó að frómt frá sagt hafi mér, sveitamanninum frá Reykja- vík, þótt hvað mest til koma ýrnissa smáþæginda, sjálfhreyfandi stiga, mjög fullkontinna hreinlætisher- bergja og fleira slíks. Aðalskrifstofuna má með réttu kalla nokkurs konar stjórnarráð Sam- einuðu þjóðanna. Þar fara fram hin stjórnarfarslegu störf, þar eru fram- kvæmdar og samræmdar ákvarðanir bandalagsins og veitt hvers kyns þjón- usta og aðstoð við aðrar meginstofn- anir S. Þ„ þó að undanteknum al- þjóðadómstólnum í Haag. í stuttu máli sent þessu er vitaskuld 16

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.