Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1952, Side 31

Samvinnan - 01.12.1952, Side 31
Sulpir óamtt&i cirmanna: BHAVE, lærisveinn Gandhis Fer fótgangandL um Indland, ber sættir milli manna og skiptir jarhnæði mitli fátækra Þeir Einar héldu á eftir í bátnum og tókst þeim að koma öllu fénu út í svonefndan Einbúatanga. Þar gafst það allt upp af þreytu og þyngslum eftir sundið. Létu þeir félagar féð leggjast þar og aflýjast. Má geta þess sem dæmi um elju Einars, að hann notaði sér þá stund til að skjóta 3 seli þarna í firðinum. Héldu svo tveir af þeim félögum á bátnum heimleiðis með selina, en hinir tveir ráku féð yfir Fannalág, fjallið milli Lónafjarðar og Hrafns- fjarðar, og svo alla leið heim. Þegar þeir komu að Dynjanda um kvöldið, á Páll Halldórsson að hafa sagt við Engilráð, konu Einars, að þeir kæmu nú með 40 fjár og 3 seli heim, en það væri Einari hennar ein- um að þakka, án hans hefðu þeir kom- ið alveg tómhentir. Ótrúlegt, en satt. I annað sinn bar svo við seint um haust, er kominn var snjór og harð- fenni yfir allt, að þeir Einar og Páll fóru inn í Lónafjörð ásamt fleiri mönnum. Voru þeir á báti. Þegar þeir réru inn með Einbúa að vestanverðu, sjá þeir kind í fjallinu, uppi undir klettum. Varð það að ráði, að þeir lentu þar neðan undir, og bjóst Ein- ar til uppgöngu. Var það þó lítt fýsi- legt vegna hörku, en þó var lítið föl ofan á gaddinum. Er ekki að orð- lengja það, að Einar kemst þarna við illan leik neðan til kindarinnar og nær henni í hengju, sem var undir klett- unum. Eins og fyrr er sagt, er hlíðin þarna afar brött, og gengur djúpt Lónið inn í hana, einmitt þar niður undan, sem Einar náði kindinni, en að því eru háir klettar. Einar sá brátt, að engin leið var að leiða kindina þarna á brott, en hins vegar þótti honum lítilmannlegt að ganga frá fenginni veiði. Á kletta- röndinni yfir Lóninu sá Einar stein- nibbu allþriflega standa upp úr snjón- um, og varð það fangráð hans að renna sér flötum beinum niður hlíð- ina með kindina í fanginu og hnit- miða á það að staðnæmast klofvega á steinnibbunni. Þetta tókst farsæl- lega, en svo sagði Páll Halldórsson síð- ar frá, að hann hefði ekki afborið að horfa á aðfarir Einars, heldur litið undan, svo fífldjarft fannst honum úrræði hans. EINN AF NEMENDUM hins mikla Gandhis í Indlandi virðist feta dyggi- legar í fótspor meistara síns en aðrir. Hann fer nú fótgangandi um land sitt, klæddur einni skikkju, og hvet- ur til friðar og mannástar. En fram- ar öllu öðru hvetur hann hina auð- ugu til að gefa fátækum hluta af landi sínu og þar hefur honum orðið ótrúlega mikið ágengt. ÞESSI MAÐUR heitir Archarya Vi- noba Bhave. Hann er ekki mikill fyr- ir manni, vegur aðeins 90 pund, en yf- irlit hans allt er alvarlegt og virðu- legt. Bhave er 57 ára að aldri og naut slíkrar virðingar, er hann var nem- andi Gandhis, að hann var til þess valinn að láta Breta handtaka sig fyrstan 1940. Það var ekki fyrr en eftir dauða Gandhis, að Bhave kom fram á sjónarsviðið til að halda áfram starfi meistarans. FRÆGÐ BHAVES hófst snemma á síðastliðnu ári. Þá voru róstur mikl- ar í Telegana í Hyderabad, þar sem átta milljónir bænda búa við hina hörmulegustu landkúgun. Varð kom- múnistum þar mjög ágengt í áróðri sínum og héraðið var talið á barmi byltingar. Þá tók Bhave sér fyrir hendur að fara óvopnaður og fót- gangandi um sveitir þar sem jafnvel altýgjaðir hermenn uggðu um öryggi sitt. Vakti för hans mikla athygli og fylgismenn hópuðust til hans. Al- þýðufólk stráði pálmagreinum á leið hans og kallaði hann „Guðinn, sem gefur land“. MERKASTA STARF Bhaves er að skipta landi milli fátækra bænda. Fyrst tókst honum með krafti sann- færingarinnar að fá ríka menn til að gefa sér land, sem hann aftur skipti á milli fátækra. Svo fékk hann menn sem skiptu landi milli sona sinna til að gefa ávallt einn hlut til land- lausra, sem væru þeir einn sonurinn. Þannig hafði hann fengið 35.000 ekr- ur lands, þegar stjórnin fékk honum yfirráð yfir 1.000.000 ekra i sama til- gangi, og jafnvel forseti Indlands til- kynnti, að hann myndi gefa allmikið af eigin jörðum sínum. BHAVE byrjar hvern dag, eins og Gandhi, klukkan 3 árdegis. Þá hefst hálfs annars tíma bænastund og í-_ hugunar, áður en lagt er upp í göngu dagsins. Bhave er röskur göngumað- ur og gengur að meðaltali 8 km. á klst. Um hádegi er hann venjulega kominn. til áfangastaðar síns, og þá fyrst fyrst neytir hann matar. Er það grænmetismáltíð, en hvorki drekkur hann kaffi né te. Eftir mál- tíðina er hvíld til kl. 3 síðdegis, en þá heldur Bhave einskonar leiðaþing og hlýðir á vandamál og raunir íbú- anna. Vald hefur hann að sjálfsögðu ekki annað en sannfæringarmátt sinn og virðuleik, en honum tekst daglega að leysa illdeilur, sætta erkióvini, knýja atvinnurekendur til að greiða ógreidd laun o. s. frv. KLUKKAN FIMM heldur Bhave daglega bænafund. Þá les hann úr helgum ritum allra helztu trúar- bragða, sem til eru á Inddlandi, þar á meðal kristninnar. Líður þá senn að því, að dagsverkinu er lokið, enda hefst nýr dagur árla. INDVERSKA STJÓRNIN hefur sýnt starfi Bhaves mikinn áhuga. Hún bauð honum til höfuðborgarinnar, Nýju Delhi, og reisti bambushreysi fyrir hann skammt frá þeim helga stað, þar sem líki Gandhis var brennt. Ekki þýddi að bjóða honum annan gististað. Gerðist það nú, sem sýnir virðingu þá, er Bhave nýtur, að for- seti, forsætisráðherra og fleiri tignir menn gengu á fund Bhaves, en hann ekki á fund þeirra. Pandit Nehru átti til dæmis margar viðræður við hann. BHAVE hefur sett sér það mark að skipta milli fátækra 50.000.000 ekrum lands. Með þessu raunhæfa starfi hefur hann ráðizt á geigvænlegasta vandamál Austurlanda, misskiptingu jarðnæðis. Vonandi verður honum vel ágengt. 31

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.