Samvinnan - 01.05.1953, Side 11
Óánægjan með rekstur Kaupfélags
Ólafsvíkur og Hraðfrystihússins verða
því að miklu leyti þess valdandi, að
stofnað er nýtt kaupfélag í þessu litla
þorpi.
Fyrstu daga ársins 1943 ganga á-
hugamenn á milli vinstri manna
þorpsins og ræða hin nýju viðhorf.
Þann 4. janúar 1943 er boðað til
undirbúningsfundar að stofnun kaup-
félags í Ólafsvík. Fundurinn var hald-
inn í Garðarshúsi á heimili Víglundar
Jónssonar útgerðarmanns. Þar mættu
39 menn. Framsögu um málið höfðu
þeir Sveinn Einarsson og Kristján
Jensson. Margir tóku til máls og var
einhugur um stofnun kaupfélags, er
ræki verzlun og ynni að stofnun
brauðgerðar, saumastofu og hrað-
frystihúss. Skyldi leitað til S.Í.S. um
fjárhagsaðstoð til kaupanna og öllum
undirbúningi hraðað. Kosin var und-
irbúningsnefnd, skipuð þessum mönn-
um: Þorgils Stefánssyni, Sveini Ein-
arssyni, Kristjáni Jenssyni, Alexand-
er Stefánssyni og Tryggva Jónssyni.
Einnig voru þeir Stefán Kristjánsson,
Víglundur Jónsson og Jónas Þor-
valdsson kosnir til þess að eiga við-
ræður við F.G.L. og tryggja húsa-
kaupin.
Næstu mánuði var unnið að ýms-
um undirbúningi málsins. Þann 15.
marz kom Olafur Jóhannesson lög-
fræðingur til Ólafsvíkur á vegum
S.Í.S. Átti hann viðræður við undir-
búningsnefndina og kynnti sér að-
stæður allar. Með honum skrifar
nefndin bréf til Sambandsins, þar sem
hún lýsir þörfinni fyrir kaupfélags-
stofnun og fer fram á fjárhagsaðstoð
til kaupa á húseignum F.G.L.
Þann 30. marz berst svohljóðandi
símskejrti frá S.Í.S.:
„Sambandið veitir væntanlegu
kaupfélagi í Ólafsvík 65 þúsund krón-
ur til kaupa á eignum F.G.L. með eft-
irtöldum skilyrðum: I. Kaupfélagið
setji eignirnar að veði fyrir láninu að
fyrsta veðrétti. II. Kaupfélagið út-
vegi með framlagi frá félagsmönnum
eða á annan hátt 35 þúsund krónur
til reksturs félagsins og nauðsynleg-
ustu viðgerða á húseign.“
Daginn eftir, 31. marz, er svo boð-
að til stofnfundar. Fundurinn var
haldinn á sama stað og undirbúnings-
fundurinn. Þar mættu allir, er verið
höfðu á fyrri fundinum, að undan-
teknum tveimur piltum, er farizt
höfðu í sjó um veturinn: Það voru
þeir sjómennirnir Trausti Guðmunds-
son og Friðjón Helgason. Minntist
fundarstjórinn, Stefán Kristjánsson,
þeirra í upphafi fundarins. Tveir eða
þrír höfðu bætzt við.
Þorgils Stefánsson skýrði fiá störf-
um undirbúningsnefndar. Var sem
fyrr algjör einhugur um félagsstofn-
unina og tjáðu menn sig fúsa til þess
að láta fé af hendi rakna, þrátt fyrir
mjög þröngan efnahag flestra. Félag-
ið skyldi reka verzlun, vinna að
stofnun brauðgerðar, saumastofu og
hraðfrystihúss. Samþykkt var, að fé-
lagið gengi í S.Í.S. eins fljótt .og kost-
ur væri. Félagið hlaut nafnið „Kaup-
félagið Dagsbrún“. Stofnendur voru
40. Fyrstu stjórn skipuðu: Stefán
Kristjánsson, Guðmundur Jensson,
Lárus Sveinsson, Víglundur Jónsson
og Þorgils Stefánsson. Varastjórn:
Kjartan Þorsteinsson, Kristján Jens-
son og Tryggvi Jónsson. Endurskoð-
endur: Jónas Þorvaldsson og Þórður
Kristjánsson.
Lárus Sveinsson og Sigurður bróð-
ir hans fórust með skipi sínu í sept-
ember 1947, báðir efnilegir atorku-
menn, er voru byggðarlaginu harm-
dauði. í stað Lárusar var kosinn
Sveinn Einarsson og síðar, er hann
baðst undan endurkosningu, var
Kristján Jensson kjörinn. Stefáni og
Víglundi var falið prókúruumboð til
bráðabirgða. Stefáni var falið að fara
til Reykjavíkur og ganga frá kaup-
um húseignanna, undirskrifa láns-
(Frh. d bls. 18).
11