Samvinnan - 01.05.1953, Page 27
Andrés átti sjötugsafmæli og bauð
til sín nokkrum kunningjum. Er hóf-
ið hafði staðið fram yfir miðnætti,
þótti mönnum rétt að haldin væri
ræða fyrir minni afmælisbarnsins.
Sveinn stóð upp og mælti á þessa
leið:
„Við ættum nú eiginlega að hrópa
ferfalt húrra fyrir afmælisbarninu, en
ég er hræddur um, að við mundum
vekja alla nágrannana. í þess stað
legg ég til, að við höfum þögn í eina
mínútu!“
—o—
Tveir menn voru að tala um starfs-
fólk fyrirtækja sinna.
— Ég hef konu á skrifstofunni, sem
hefur orðið gráhærð í okkar þjón-
ustu, sagði annar.
— Ég hef stúlku á minni skrifstofu,
svaraði hinn, sem hefur orðið skol-
hærð, ljóshærð, rauðhærð og dökk-
hærð í okkar þjónustu, og það á að-
eins einu ári!
I samkvœmi.
— Afsakið, hvaða kerlingarskass er
þetta í rauða kjólnum?
— Það er konan mín.
— Fyrirgefið, mér hafa orðið mis-
tök á!
— Mér líka.
r
Aðalritarar S.Þ. ræðast við
Fyrir skömmu urðu húsbóndaskipti i aðalstöðvum sameinuðu þjóðanna i
New York, og tók Sviinn Dag Hammarskjöld við af Norðmanninum Trygve
Lie. Báðir fengu þeir starfið af þvi að stórveldin gátu ekki komið sér sam-
an um aðra, og kosning Hammarskjölds var eitt fyrsta stórmálið um langt
skeið, sem Rússar og vesturueldin voru sammála um. Hér sjást aðalritar-
arnir ræðast við i New York.
Maður nokkur þurfti að fara í
ferðalag sömu dagana, sem kona hans
átti von á fyrsta barninu. Þeim kom
saman um að nota dulmál og skyldi
orðið „kanna“ tákna afkvæmið. Þeg-
ar konan hafði alið tvíbura, sendi hún
svo fellt skeyti til mannsins:
„Tvær könnur komnar. Önnur
með stút.“
Það var plága fyrir rithöfundinn
Mark Twain að þurfa að lesa öll þau
kvæði og allar þær sögur, sem hinir
og þessir sendu honum til að fá um-
sögn hans um. Eitt sinn fékk hann
geysilangt og lélegt kvæði, sem nefnt
var: „Af hverju lifi ég?“
Mark Twain svaraði skáldinu:
„Af því að þér komuð ekki sjálfur
með kvæðið til mín!“
Samband sænsku samvinnufélag-
anna (KF) hefur tilkynnt, að tala
félagsmanna innan samtakanna sé nú
komin yfir eina milljón. I fyrra bætt-
ust við 31.000 félagsmenn og komst
heildartalan þá upp í 1.024.000. Var
það 3,1% aukning. Fyrir tuttugu ár-
um var félagsmannatalan 513.000.
Stærsta kaupfélag Svíþjóðar er
Konsum í Stokkhólmi, sem hefur
151.000 félagsmenn og verzlaði fyrir
414 milljónir sænskra króna í fyrra.
Hinn kunni sænski samvinnumað-
ur, Thorsten Ohde, sem íslendingar
minnast fyrir bók þá, er hann skrif-
aði um samvinnu á íslandi, hefur nú
tekið við starfi í París sem ráðunaut-
ur gagnkvæmu öryggisstofnunarinn-
ar, MSA, í París. Mun hann einbeita
kröftum sínum í þá átt að bæta vöru-
dreifingu í álfunni.
27