Samvinnan - 01.10.1957, Blaðsíða 5
götuhornum, hafði þó farið fram áður,
er til þessa fundar var boðað.
Ungur piltur, héðan heimanað. Þór-
arinn Pétursson að nafni, hafði þá
nýkominn úr Samvinnuskólanum, —
vakið máls á því við ýmsa góða menn,
þá strax um vorið, hversu mikla nauð-
syn bœri til að stofna hér verzlun — og
það á samvinnugrundvelli, til að freista
þess að bæta úr því ófremdarástandi
sem hér ríkti í verzlunarmálum. — Ar-
angurinn af „spjalli“ þessa unga manns,
var þessi fundur, sem boðaður hafði ver-
ið sem stofnfundur Kaupfélags Hellis-
sands.
Innan þessa fámenna hóps má sjá
ýmsa við aldur, með sæbarin andlit og
sigggrónar hendur, — aðra yngri. vart
á miðjum aldri, en allir eiga það sameig-
inlegt að vera hertir af harðri lífsbar-
áttu í skóla lífsins.
Er við skyggnumst betur um, getum
við séð þarna bændur, sjómenn og verka-
menn hlið við hlið.
Þarna er Þorvarður í Skuld, Agúst
bóndi á Saxhóli, Þorsteinn Þorsteinsson.
Pétur Kr. Pétursson á Ingjaldshóli, Guð-
laugur skóari, Jón á Kjalveg, Guðmund-
ur í Klettsbúð, bræðurnir Guðbjörn og
Danelíus Sigurðssynir, Hjörtur Cýrus-
son. Magnús í Asgarði, Hans á Selhóli.
Pétur í Artúni og allmargir fleiri.
Rúm 60 ár voru þá liðin frá því, að
félag manna hér við Breiðafjörð gerði út
skip til Björgvinjar með íslenzkan varn-
ing — en fékk aftur útlendan til að
verzla með hér heima — en hálf öld var
liðin síðan þingeyskir bændur stofnuðu
kaupfélag fyrstir manna hérlendis.
Lög fyrir Kaupfélag Hellissands voru
samþykkt og undirrituð af hinum 20
stofnendum — og stjórn kjörin, en hana
skipuðu:
Form. Þorvarður Þorvarðsson, vara-
form. Agúst Þórarinsson, ritari Þor-
steinn Þoi’steinsson, meðstjórnendur Pét-
ur Kr. Pétursson og Guðlaugur Sigurðs-
son.
I varastjórn voru kjörnir: Jón Þ. Jó-
hannesson, Pétur Guðmundsson og
Guðbjörn Bergmann Sigurðsson.
Endurskoðendur: Ilans Jónasson og
Magnús Jónsson, til vara: Magnús 01-
afsson og Danelíus Bergmann Sigurðs-
son.
Þetta voru fyrstu embættismenn hins
nýstofnaða kaupfélags.
Á þessum stofnfundi var samþykkt að
senda þá Þorvarð Þorvarðsson og Þór-
arin Pétursson til Reykjavíkur til við-
ræðna við stjórn SÍS — um viðskipti fé-
lagsins og SÍS í framtíðinni — og einnig
Þannig var umhorfs i Rifi áður en framkvcemdir hófust þar.
Þessi mynd er tekin á sama stað og myndin að ofan og f>ar sést, hvernig Landshiifnin i Rifi
litur nú út.
SAMVINNAN 5