Samvinnan - 01.10.1957, Page 12
Guðjón Finnbogason er fæddur í Skálatanga í
Innri- Akraneshreppi 2. des. 1927, en fluttist ung-
ur til Akraness. Hann hefur í 13 ár starfað hjá
Veiðarfæraverzlun Axels Sveinbjörnssonar. Kvænt-
tir er hann Helgtt Sigurbjömsdóttur frá Akra-
nesi og eiga þau eina dóttur. Guðjón var í liði
Akurnesinga í fyrsta sinn, sem þeir tóku þátt í
Islandsmóti meistaraflokks 1946. Hann hefut
leikið 14 landsleiki. Hann leikur vinstri fram-
vörð t lðii Akumesinga.
Jón Leósson er fæddur 23. febr. 1935 á Akra-
nesi, en er ættaður af Skipaskaga. Hann lauk
gagnfræðaprófi 1952, en hóf nám í múraraiðn
árið 1956. Kvæntur er Jón Erlu Björgheim frá
Færeyjum og eiga þau einn ungan son. Jón man
vart eftir sér án fótboltans eins og margir fleiri
félagar hans. Hann var fyrst í liði Akurnesinga
á íslandsmóti meistaraflokks 1955 og þrisvar
hefur hann verið í landsliði. Hann er vinstri
bakvörður Akurnesinga.
Guðmundur Sigurðsson er fæddur ta. okt. 1935
á Akranesi. Hann varð gagnfræðingur 1952 og
hóf nám í vélvirkjun árið eftir hjá Vélsmiðju
Þorgeirs og Ellerts á Akranesi. Hann er ókvænt-
ur. Hann lék fyrst í fyrrasumar með liði Akur-
nesinga á Islandsmóti meistaraflokks, en hóf
ungur að fást við knöttinn eins og flestir knatt-
spyrnumenn Akurnesinga. Hann leikur hægri
bakvörð í liðinu. Guðmundur hefur i hyggju að
fara í Vélstjóraskólann í framtíðinni.
Kristinn Gunnlaugsson er fæddur 12. júlí 1934
á Akranesi, en er ættaður úr Dölum og frá Bol-
ungavík. Hann hóf nám í húsasmíði 1954 og
vinnur nú í sementsverksmiðjunni. Hann er
enn ókvæntur, en trúlofaður Ólínu Bjömsdótt-
ur símamær á Akranesi, og eiga þau eina unga
dóttur. Kriitinn tók þátt í íslandsmóti meist-
araflokks í fyrsta sinn árið 1954 og í landsliði
Islendinga hefur hann leikið 7 sinnum. Hann
leikur miðframvörð.
Halldór Sigurbjörnsson er fæddur 3. okt. 1934-
á Akranesi. Hann nam netagerð hjá Nótastöð-
inni h.f. 1954 og hefur unnið þar siðan. Kvænt-
ttr er Halldór Hildi Sigurðardóttur frá Borgar-
nesi og eiga þau einn ungan son. Halldór varð
fyrir því slysi á s.l. vori, að netahnífur stakkst
í handarkrika hans og er hann máttfarinn í
hendinni síðan. Hann keppti fyrst árið 1950 á
íslandsmótinu og hefur leikið 8 landsleiki. —
Hann leikur hægri útherja i liðinu.
Pétur Georgsson er fæddur 5. júní 1931 á
Akranesi. Hann lauk gagnfræðaprófi 1948 og var
síðan í tvö ár til sjós. Arið 1950 hóf hann nám i
netagerð hjá Nótastöðinni h.f. og hefur unnið
þar síðan. Kvæntur er hann Emelíu Jónsdóttur
frá Akranesi og eiga þau þrjár dætur. Pétur lék
fyrst í liði Akurnesinga á Islandsmóti meist-
araflokks 1949 og fimm sinnum hefur hann leik-
ið í landsliði íslendinga. Hann leikur vinstri
innherja.
12 SAMVINNAN