Samvinnan - 01.10.1957, Qupperneq 20
Gamalt og nýtt úr Tálknafirði
Úr endurminningum Guðmundar
Jónssonar, Sveinseyri
Mér þykir fjörðurinn vinalegur, og
svo er um fleiri, þó að þröngur sé
hann og aðkrepptur nokkuð. Undir-
lendi er lítið, og allvíða örðugt til
ræktunar, enda löngum allt of mjög
vanrækt. En til sjósóknar er hann með
beztu fjörðum hér vestanlands. Höfn
er hér einhver sú bezta á landinu,
sjálfgerð af náttúrunnar hendi fyrir
innan Sveinseyrarodda, og víðar er hér
sæmilega gott til slíkra hluta, svo sem
á Suðureyri. Er Suðureyri yzti bær
sunnan megin við fjörðinn.
Um þær mundir sem Hollendingar
fiskuðu mest hér við land, höfðu þeir
aðalbækistöðvar sínar í Tálknafirði,
að því er tók til Vestfjarða. Sama máli
gegndi um Frakka á síðari hluta 19.
aldar. Komu hér þá einatt frönsk her-
skip inn á Hópið og lágu hér tímun-
um saman. Hefðu framsýnir og fram-
takssamir menn liafið hér verzlun þá,
er ekki ólíklegt að hér hefði smám
saman risið upp útgerðarbær og haft
að mörgu leyti eins góð skilyrði til að
dafna, eins og til dæmis Patreksfjörð-
ur, en haft það þó fram yfir að höfn
var hér sjálfgerð og örugg. Voru
framtakssamir menn farnir að koma
auga á þetta, þegar leið að lokum 19.
aldar. Thor heitinn Jensen, sendi
hingað skip, og kom sjálfur og verzl-
aði hér af skipsfjöl á síðasta tug ald-
arinnar, og einnig á Arnarfirði. Var
honum á báðum þessum stöðum tekið
fegins hendi, því að mikið þóttu við-
skipti við hann betri, en menn áttu
þá að venjast hjá kaupmönnum hér
vestra, enda erfitt til þeirra að sækja.
Thor Jensen verzlaði með allar nauð-
synjavörur, og tók svo fisk og ull að
haustinu eða seinni hluta sumars upp
í viðskipti sín. Ekki voru kaupmenn
hér vestra ánægðir með þetta og gengu
þá allhart eftir skuldum hjá þeim, sem
skiptu við Jensen. Einhverjar ráðstaf-
Eftir Sigurð Einarsson
í Holti
anir mun Thor Jensen liafa gert til
þess að fá keypt landssvæði hér fyrir
innan Sveinseyraroddann, og mun
hafa hugsað þar til einhverra fram-
kvæmda og verzlunar, en einhverra
ástæðna vegna varð ekkert úr því, og
hætti liann þá að koma liingað og
verzla.
Hvalveiðistöð settu Norðmenn hér
upp á Suðureyri 1893—94 og ráku
hana til 1911, er þeir hættu algerlega
og seldu þá stöðina, bæði hús og
bryggjur.
Þegar ég fluttist hingað árið 1900,
voru atvinnuvegir svipaðir hér, og þá
var í Ketildalahreppi, nokkrum ára-
bátum róið til fiskjar að vorinu, en
margt manna úr sveitinni til sjós á
þilskipum á Bíldudal og Patreksfirði.
Allmargir menn unnu og á hvalveiði-
stöðinni, en heldur virtist mér, sem
hún hefði dregið úr framtaki manna.
Menn komust upp á að fá þar ýmis-
legt til matar, svo sem hvalkjöt, sem
fékkst ókeypis og kornvöru og eldivið,
sem Norðmenn lágu þar með að vetr-
inum, seldu þeir, og einhvernveginn
komust margir upp á að varpa á-
hyggjum sínum á hvalveiðistöðina um
vinnu og annað. Aannars var hval-
veiðistöðin hér mikið fyrirtæki, hafði
fjóra hvalabáta til veiða og eitt stórt
flutningaskip, sem dró hvalinn að
sumrinu, þegar langt var að sækja
hann, og flutti að og frá stöðinni.
Fram yfir aldamót og til 1907—8 gekk
veiðin vel, en fór að tregast úr því.
En ósköp voru menn skammsýnir í
því, að nota ekki þenna mikla rekstur
hreppsfélaginu eitthvað til tekna og
viðreisnar. Árið 1903, þegar ég kom í
hreppsnefndina var útsvar á hvalveiði-
stöðinni 300 krónur, og hæsta útsvar
á bónda, þeim manni, sem bezt var
efnum búinn í hreppnum 8 krónur,
enda var ekkert lagt hér til fram-
kvæmda, né neins þess, er hreppsbú-
um hefði mátt verða til viðreisnar.
Þrátt fyrir aðstæður hér, sem að
mörgu leyti voru betri en annars stað-
ar, var fátækt ákaflega mikil. Ibúar í
hreppnum voru full þrjú hundruð, en
ómegð mikil, og fjöldi barnmargra
heimila sárfátækra. Víða höfðu verið
byggðir hér þurrabúðarkofar, sem
engir jarðarblettir fylgdu. Höfðu
bændur verið ófáanlegir til þess að
leigja þurrabúðarmönnunum nokk-
urn landsskika. Mátti heita að ólíft
væri í þessum þurrabúðum, og lögð-
ust þær smám saman niður. Bygging á
húsum var yfirleitt mjög léleg, er ég
kom hér, og ekki man ég eftir jám-
þaki á nokkru húsi, nema einni hey-
hlöðu.
Mér fannst fólkið hér þegar í stað
mjög viðkunnanlegt og léttur blær
yfir öllu. Vera má, að það hafi verið
vorhugur og vonir aldamótanna, sem
réðu því. Hér var þá allmargt af yngra
fólki á reki við mig, og nokkuð eldra
á bezta skeiði. Það voru að verða
þáttaskipti hér. í sveitinni höfðu um
langt skeið verið fjórir til fimm sæmi-
lega efnaðir bændur, allir miklir at-
orkumenn, enda ráðið flestu í hreppn-
um um langan aldur. Nú voru þeir
orðnir aldraðir og sumir að láta af
öllum störfum. Svo sem Jóhannes Þor-
grímsson á Sveinseyri, og Árni Bjarna-
son á Kvígindisfelli. Hafði hann um
langt skeið búið þar rausnarbúi, frá-
bær framtaks- og dugnaðarmaður.
Hafði hann og ræktað jörð sína ágæta
vel og stundað sjó af miklu kappi á
yngri árum. Hann var sonur Bjarna
Ingimundarsonar, er bjó á Sveinseyri
20 SAMVINNAN