Samvinnan - 01.10.1957, Síða 23
Eftir styrjöldina var Aljechin mein-
uð þátttaka í skákþingi í Englandi,
og hélt hann þá suður á Pyrenea-
skaga, þar sem enn fundust menn, er
fengust til að tefla við hann.
Birtust nú varnargreinar frá hans
hendi í brezkum skáktímaritum, þar
sem hann skýrir nánar þvingunarráð-
stafanir Þjóðverja, greinir frá sinni
erfiðu aðstöðu og afneitar raunar
ýmsum greinum, er birtust með hans
nafni í skákritum nazista.
Brátt tók að mildast sá kali, er
skákmenn ólu í brjósti í garð Aljech-
ins, og snemma árs 1946 var ákveðið,
að hann skyldi heyja einvígi við
Rússann M. Botvinnik um heims-
meistaratitilinn. Ur því varð þó eigi.
I marz sama ár lézt hann á hóteli einu
í Lissabon og er talið, að hann hafi
svipt sig sjálfur lífi. Þar með lauk ævi
eins mesta skáksnillings, sem heimur-
inn hefur alið.
Hér hefur ekki verið minnzt þess
atburðar í lífi Aljechins, sem er í
sjálfu sér lítill atburður á stórbrotn-
um æviferli þessa víðförla manns, en
mun þó vera íslendingum minnis-
stæðastur.
Það var, er hann heimsótti ísland
árið 1931 og tefldi hér fjöltefli, sýn-
ingarskákir og blindskákir við ís-
lenzka skákmenn. Aljechin stóð þá á
hápunkti skákferils síns, og hér varð
að sjálfsögðu lítið um vamir gegn of-
urmenninu. Þó lét Aljechin svo um
mælt, að á Islandi hefði hann fyrir-
hitt meiri almennan skákstyrkleika en
hann hefði vænzt; og einstaka skák-
manni heppnaðist að bera sigurorð af
heimsmeistaranum í fjölteflum hér,
þótt flestar skákimar ynni hann með
næsta litlu erfiði.
Hér birtist sýnishorn frá skiptum
Aljechins við íslendinga. Er skákin
tefld í fjöltefli jafnhliða 39 öðmm.
Andstæðingur Aljechins er hinn þjóð-
kunni skákmaður, Asmundur Asgeirs-
son, en hann var þá skákkóngur Is-
lands.
Hvítt: Aljechin. Svart: Ásmundur.
Frönsk vörn.
1. e2—e4 e7—e6
2. d2—d4 d7—dS
3. Rbl—c3 Rg8—f6
4. Bcl—g5 Bf8—e7
5. BgSxf6
(Byrjunarkerfið nefnist frönsk vörn.
Með síðasta leik sínum bregður Al-
jechin út af því afbrigði byrjunarinn-
ar, sem þó er sérstaklega kennt við
hann: 5. e5 og 6. h4).
5. ------- Be7xf6
6. Rgl—f3 0-0
7. Bfl—d3 Hf8—e8?
(Þekking íslenzkra skákmanna á
byrjunum hefur vaxið mikið síðan
þessi viðureign fór fram. 7. leikur As-
mundar er rangur, þar sem hann gef-
ur heimsmeistaranum færi á að blása
til sóknar á kóngsvæng fyrr og með
betri árangri en ella var mögulegt.
Rétti leikurinn var 7.-cS, leikur,
sem í flestum afbrigðum franskrar
varnar er nauðsynlegur sem allra
fyrst. Á þann veg nær svartur skjót-
ustu mótvægi í baráttunni um mið-
borðið.)
8. e4—eS Bf6—e7
9. h2—h4!
(Oveður í aðsigi! Ásmundur á nú
erfitt með að finna fullnægjandi vörn,
þar sem 9. - - - h6 eða 9. - - - g6
mundi veikja kóngsstöðuna ískyggi-
lega mikið.) 9.-----c7—c5
10. Bd3xh7t!
(Það er lærdómsríkt að sjá, hvernig
Aljechin notfærir sér ónákvæmni and-
stæðingsins. Hann fórnar manni til að
opna h-línuna og sundra lífverði
svarta kóngsins.)
10. ------. Kg8xh7
11. Rf3—g5t Be7xg5
(Ef 11. - - Kg6 12. Dd3, f5 13. exft,
Kxf6 14. Df3t Kg6 15. Df7t Kh6 16.
g4 og hvítur mátar í næsta leik.)
12. h4xg5t Kh7—g8
13. Ddl—h5 Kg8—f8
14. 0-0-0 a7—a6
(Óeðlilegur leikur. Eðlilegra var að
leika drottningarriddaranum strax
út.)
15. g5—g6 Kf8—e7
16. g6xf7 He8—f8
17. d4xc5
(Opnar d-línuna til sóknar og undir-
býr nýjar fórnir.)
17. ------ Rb8—d7
18. Hdlxd5! Dd8—a5
(Eftir 18. - - exd5 19. Rxd5t næði
hvítur óstöðvandi sókn.)
19. Dh5—g5t Ke7xf7
20. Hhl—h7 Hf8—g8
21. Hd5—d4 Da5xc5
(Nú kemur ný og óvænt fóm, sem
gerir út um taflið á fljótvirkan hátt.
22. Hd4xd7t! Bc8xd7
23. Rc3—e4 Dc5—b4
24. Re4—d6t Kf7—f8
25. Dg5—f6t!
Loks er drottningunni fórnað. —
Svartur gafst upp, þar sem mát í
næsta leik er óverjandi.
Þótt skák þessi sé verulega gölluð
sökum veikrar taflmennsku af hálfu
landa okkar, sýnir hún þó glöggt hinn
sóknþrungna stíl, hugkvæmni og leik-
töfra þessa mesta skákmanns, sem
stigið hefur á íslenzka grund.
Sveinn Kristinsson.
Ríma
Þó að frjósi foldarsvæði
fögur kjósa lögin má.
Nú skal hrós í nýju kvæði
Norðurljósagyðjan fá.
Aðeins hefur einu sinni
augum gefist þig að sjá,
skal þó ef ég kveða kynni
kyngistef sú gyðja fá.
Þegar ennisleifrin Ijóma
lifnar enn mitt kvæðahrós.
Man ég þennan meyjablóma
meðan brenna himinljós.
Oft í náð á aldinkvistum
elskir kváðu fuglar dátt,
ætti ég ráð á Ijóðalistum
léki ég bráðum slíkan þátt.
Lífsins krefst mín lundin bráða
Ijóðið hefst í brjósti mér.
Gyðjan efsta dýrra dáða
dásemd gefst í fylgd með þér.
Lék að sprettum leifturfimin
logaglettin eina stund,
svifalétt um hugarhimin
hvarflar nett á ljóðs míns fund.
Birtureikull bjarminn skæri
bregður á leik um huga minn,
líkt og feykifaldur væri
fagurbleiki kjóllinn þinn.
Þegar glansinn allra öfga
auga mannsins hverfur frá,
burt þú dansar harmahöfga
hugarlands míns fjöllum á.
Sveinbjöm Benteinsson.
SAMVINNAN 23