Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1961, Page 12

Samvinnan - 01.09.1961, Page 12
vera farin að hugsa um hjú- skap — auk þess elskaði hún hann ekki. Þá gerði hann nýja skyssu í fáti sínu og úrræðaleysi. Hann tók til að útlista fyrir henni, hve efnaður faðir sinn væri, og þar sem hann væri eina barn hans, ætti hann framundan mjög örugga fjárhagslega framtíð. Þá setti hún upp þóttasvip, hló og sagði: Ég er ekki til kaups. Árum saman hafði hann munað þennan svip hennar og hlátur. Og hann hafði oft síðan hugsað um það, að ef til vill hefði allt farið öðruvísi, ef hann hefði ekki verið svona bráðlátur í stað þess að fara að öllu með lagi og bíða. En þá var of seint að sjá það. — Og nú var hann sjálfur kvæntur ágætis konu, sem hann hafði margsagt — og einnig sjálfum sér og öðrum — að hann elskaði, svo það hlaut að vera satt. En róman- tík! Hvað var rómantík ann- að en grillur í unglingum? Þannig hugsaði hann alla jafn- an, enda þótt það henti jafn- vel enn þann dag í dag, eink- anlega ef hann hafði fengið sér í staupinu, að honum varð hugsað til Dísu. Og þá varð rómantík ekki lengur hlægileg, því að Dísa var ekki hlægileg. — Hún hafði gifzt brezkum hermanni og alið honum son daginn áður en hann yfirgaf þetta kalda land ásamt öðru herliði hennar hátignar Breta- drottningar. Og að stríði loknu fór hún til Skotlands, þar sem maður hennar átti heimili. ís- lendingar í Edinborg, sem hann hafði spurt um hana, vissu ekkert um hana nema helzt það, að hún vildi ekki hafa neitt samband við landa sína. Þeir höfðu frétt, að hún ætti orðið þrjú börn og væri fátæk, enda væri maður henn- ar víst óreglusamur. — Já, það væri ekki ólíkt henni að forð- ast landa sína, ef svo væri . . .) Rauðhærði írinn og stúlk- an hans stóðu út við borð- stokkinn og köstuðu brauð- molum upp í loftið handa mávunum, sem gripu þá á lofti. Þetta voru mjög slyngir mávar. Þau hlógu. Hann liélt þau myndu vera mjög ham- ingjusöm. Og svo opnuðu þeir barinn. íslendingurinn, sem var í verzlunarerindum í Bretlandi, hafði skyndilega tekið þá á- kvörðun að skreppa yfir til Ir- lands, og af því að allt var fullt á fyrsta farrými, neyddist hann til að ferðast á öðru farrými. Hann hafði sagt við sjálfan sig, að það væri hreinasta skömm að því fyrir íslending, sem ferðaðist oft til Bret- lands, að hafa aldrei séð ír- land. Kannske var líka orsök- in sú, að hann hafði drukkið nokkur staup af viskí um dag- inn, kannske einhver önnur. Hvort sem var, þá var hann hér. Hann gekk inn í veitinga- salinn og fékk sér viskí og sóda, því að honum fannst nauðsynlegt að halda við áfengisáhrifunum. Hann vissi sjálfur, að hann var fremur vínhneigður. Hins vegar var hann nægilega hagsýnn og nægilega elskur að stöðu sinni í þjóðfélaginu til þess að sleppa sér ekki út í andvara- lausan drykkjuskap. Sú hugs- un vakti sífellt með honum — jafnvel þótt hann væri drukk- inn — að hann yrði að gæta sín — gæta sín. Hópur skozkra stúdenta flykktist inn í salinn, talandi og hlæjandi. Sá háværasti þeirra, búlduleitur og þrek- vaxinn unglingur, lýsti því yf- ir með raddblæ og látbragði sem væri hann að boða mikið fagnaðarerindi, að nú væri laugardagskvöld og nú skyldu menn drekka. Síðan tíndust fleiri inn í veitingasalinn. Skarpholda maður með herða- kistil og vinnulegar hendur kom einn sér, leit snöggvast í kringum sig, áður en hann gekk rakleitt að barborðinu og pantaði stórt glas af einiberja- brennivíni og kollu af öli. Brennivínið hvarf ofan í hann í fáum sopum. Að því búnu settist hann við borð með ölið og fór sér ekki eins óðslega. Þetta virtist vera almúgamað- ur, vafalaust ölkær. En hann hafði falleg, greindarleg augu. íslendinginn minnti, að hann hafði einhvern tíma áður séð hann, en kom ekki fyrir sig hvar. Tvær ungar dömur, fransk- ar, settust við næsta borð, og honum fannst tilvalið að kynna sig fyrir þeim, sagðist vera íslendingur. Þær brostu við honum, tjáðu sig aldrei fyrr hafa hitt íslending og töl- uðu enskuna hægt og nokkuð bjagað. Samt skildi hann þær furðanlega. Þæi höfðu pantað sér ávaxtadrykk og afþökkuðu hæversklega, þegar hann bauð Allt í einu er drengsnáði, á að gizka átta til níu ára, kominn í dyragætt- ina og kallar: Pabbi. þeim vín. Furðulegir Frakkar, sem ekki vildu drekka vín, fannst honum. Þær hlógu, sögðust hafa sérstakan áhuga á heilbrigðu líferni. Önnur sat með handavinnu sína og heklaði, hin með skáldsögu eftir Somerset Maugham. Þæi voru vel heima í frönskum og enskum bókmenntum. höfðu jafnvel lesið bækur eftir ís- lenzka höfunda. Þegar hann fann, að þær voru honum of- jarlar á bókmenntasviðinu, beindi hann talinu að tónlist, sem hann vissi meira um. Fyrstu stundarfjórðungana var tiltölulega rólegt í veit- ingasalnum. En eftir því sem fleiri ferðir voru farnar að bar- borðinu til aðdrátta, tóku ýmsir að gerast fyrirferðar- meiri. Svo hófu stúdentarnir upp söng, byrjuðu á stúdenta- söngvum. Náunginn með herðakistilinn hafði fengið sér annað staup. Það var eins og réttist úr honum og hann var ekki lengur niðurlútur, glampi í augum. Hann fór að gefa sig að stúdentunum. Þeir tóku honum með fyrirvara, enda leyndist þeim ekki, að þetta var bara verkamaður. Einhver þeirra fann upp á að kalla hann ,,kroppinbak“, en það gerði hann ekki upphátt. En svo henti atvik, sem vakti áhuga þeirra á honum. Einum stúdentanna hafði verið feng- ið viskístaup, sem hann virtist ekki kæra sig um, þegar til kom. Hann stóð með það í annarri hendinni, vandræða- legur, unz honum hugkvæmd- ist að rétta kroppinbak það. Hvort hann vildi ekki gera svo vel og drekka það fyrir sig? Og gulur vökvinn hvarf inn um varir hans í einum teyg, eins og hefði það verið tesopi. Þá uppgötvuðu þeir, að þetta var maður, sem vert var að veita athygli, úr því að hann gat gleypt viskí jafnauð- veldlega og loft. Stúdentasöngvarnir gengu til þurrðar, og þeir tóku til að syngja hvað sem var. Á með- an komu æ fleiri inn í salinn, og brátt var setið í hverju sæti. Barþjónarnir kepptust við að afgreiða og höfðu ekki undan. Allt í einu er drengsnáði, á 12 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.