Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1961, Side 17

Samvinnan - 01.09.1961, Side 17
lentl m. a. á brúarvfgsluhátfSinni f Horna- firSi. Þa'u buSu okkur með, kaupfélags stiórahjónln. Við komum í 11 hafnir á 10 dögum. — Hvert fer skipið næst? — Tfl Rússlands. — Þú ætlar ekki þangað? — Nei, svo sannarlega ekki, mig langar ekkert þangað. Viltu ekki annars tylla þér, gjörðu svo vel, hér eru sfgarettur. Og þannig hófst viðtaiið, við skipstjóra- frúna en ekki skipstjórann. Frúna grun- aði ekki erindi mitt og við spjölluðum um heima og geima. En sérstaklega var þó rædd sú hliðin er að sjómannskonunni snýr og hlut- ið upp þessa mynd af honum? Áttuð þið enga betri? Hann er svo hörkulegur á myndinni. Annars var ég að segja honum elskan mín, að það væri hræðilegt að hafa þig aldrei heima. En það er að sama skapi gaman að fara með í siglingu, að maður tali nú ekki um þegar hann er helma, þá eru jól hjá manni. Ég er stundum að segja Hirtr að þeir þurfi að fá miklu lengra frf, helzt fjóra mánuði, það er nú allt í gamni, þú skilur. Annars hefir Hjörtur verið voðalega sætur við mig og undir- niðri skilur maður að þetta verður svona að vera og við því verður ekkert gert. Hvenær byrjaðir þú á samvinnuskipunum, Arnór? en ánægjulegast þó að vera langdvölum með eiginmanninum. — Frúin segir að það sé erfitt að gæta bús og barna, hafandi ekki eiginmanninn til að- stoðar nema endrum og sinnum og þá helzt bréfleiðis. En segðu mér Arnór, finnst þér ekki erfitt að þurfa að vera langdvölum burtu og fela konunni alla forsjá, þótt góð sé. — Það er afieitt að geta ekki fylgst með frá degi til dags, aiveg afleitt, sérstaklega þeg- ar börnin fara að vera stáipuð. Annars skrif- umst við mjög mikið á. Það er mjög mikils virði. Svo hefí ég tekið dæturnar, við eigum tvær litlar dömur, 10 og 13 ára, með í siglingu. Framhald á bls. 21. skipti hennar í lífinu. Kom glöggt í ljós, þótt hún væri stolt af manni sínum og þeirri stöðu er hann gegnir, þá saknar hún þess að hafa hann ekki alltaf í landi hjá sér, þótt hún á hinn bóginn njóti þess að geta á stundum siglt með honum til fjarlægra landa og skoðað sig um í heiminum. — Þú átt sem sé erfitt með að sætta þig við hinar löngu fjarvistir bóndans? — Ó, það er hræðilegt, biátt áfram hræði- legt, ég get aldrei sætt mig við það. í þessu snarast lágur maður vexti, en hvat- legur inn úr dyrunum og kenndi ég strax að þar var kominn Arnór skipstjóri. — Hvað er svona hræðilegt, spyr Arnór um leið og hann lítur mig hornauga. Ég gef Arnóri strax þá skýringu, til þess að fyrirbyggja allan misskilning, að ég sé þangað kominn frá Samvinnunni, í fréttaleit. Hafi ég hitt konuna fyrsta og þótt bera vel í veiði að heyra viðhorf sjómannskonunnar, eigi síður en sjómannsins sjálfs, og hið hræðilega væri það, að hún hefði hann svo sjaldan hjá sér í landi. Væru það hin beztu meðmæli fyrir hann sem eiginmann og mætti hann vel við una. Lyftist þá brúnin á hinum víð- förla heimilisföður og fékk hann sér rólegur sæti. Og heldur nú samtalið áfram: — Hvaða voðaleg fart er þetta á hlutunum? Skipadeild 15 ára. Mér finnst Skipadeiid hafa nýlega verið 10 ára. Voruð þið ekki að skrifa eitthvað um það um daginn? — Við höfum verið með myndir af skip- unum í þremur síðustu blöðum, vegna verð- launasamkeppninnar, en hún er einmitt tengd afmælinu. Og í fyrsta blaðinu vorum við með myndir af ykkur skipstjórunum. Það var apríl- maí biaðið. —Já, ég man eftir því. Hvar gátuð þið graf- — Það var á Hvassafelli 1949. — Ég var þar fyrsti stýrimaður, hafði verið undanfarin 4 ár á Laxfossi í Borgarnessigling- um, það sem sjómenn kaila ferskvatnsrútuna. Sú nafngift bendir víst til að þeim þyki hún heldur ósjómennskuleg. Annars féll mér vel á Laxfossi. Þessi eini túr á Hvassafelli, eins og ég hafði lofað konunni að hann yrði, varð að 18 mánuðum, síðan var ég tvö ár fyrsti stýrimaður á Arnarfelli. Tók svo við Dísarfelli '53 og var með það til '56, er ég tók við Jökul- felli hinn 17. ágúst í Hamborg. Ég á sem sagt fimm ára skipstjórnarafmæli hér um borð í mánuðinum. — Þú hefir þá bara verið á þessum tveim- ur skipum samvinnumanna? — Hann er búinn að vera skipstjóri á þeim öllum, svona inn á milli. Var síðast með Hamra- feliið. Fóru héðan 7. desember sl. til Batúm. Þaðan fóru þeir til Svíþjóðar og þar tók hann sér far með Jökulfelli heim. Já, finnst þér það ekki sniðugt, farþegi á skipinu sínu heim. — Það er nú ekki nefnt fínu nafni meðal sjómanna að flækjast á milli skipa, svo þetta er ekkert til að státa af. — Hvað kalla þeir það? — Þú myndir aldrei prenta það, þetr kalla slíka menn skipaskækjur. — Þú hefir farið víða á löngum sjómanns- ferii. — Ég hef komið austast til Batúm og vest- ast til Savannah í Georgíu í Bandaríkjunum og eitthvað þar á milli. Það er svo sem ekkert til að tala um. — En frúin, hún hefir farið víða. — Ég hef komið til Englands, Þýzkalands, Hollands, Danmerkur og Svíþjóðar, það hefur verið ánægjulegt að koma til þessara landa. Hvassatell, Akureyri Arnarfell, Húsavik Jökulfell, Reyðarfirði Litlafell, ísafirði Dísarfell, Þoriákshöfn SAMVINNAN 17

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.