Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1961, Blaðsíða 18

Samvinnan - 01.09.1961, Blaðsíða 18
SigurSur Gunrnrsson, gjaldkeri, telur peninga. Kristín Eggertsdóttir símadama raðar víxlum milli þess er hún svarar í símann. Mitt í hjarta höfuðborgarinnar, þar sem Hafnarstræti, Hverfisgata, Kalk- ofnsvegur og Lækjartorg mætast, hafa, samvinnumenn búið sparisjóði sínum samastað. í næsta nágrenni eru ekki ómerkari byggingar en Stjórnarráðið, Útvegsbankinn, Nýja Bíó, gamla Hekla (áður en hún var rifin), Ferðaskrifstofan, Hreyfill og Söluturninn, sem um áraraðir hafa sett svip sinn á umhverfið. Sjálfur er Samvinnusparisjóðurinn til húsa í hinni gömlu Kauphöll, sem margir munu kannast við. Yfir þessu svæði, þar sem börn höfuðborgarinnar og gestir hennar sinna hinum flóknustu málum mannlegs athafnalífs meðan sól er á lofti, eða leita sér skemmt- unar margvíslegrar, þegar kvölda tekur, vakir fyrsti landnámsmaður- inn efst á Arnarhóli og horfir til sj ávar. Hér í landnámi Ingólfs hefur Sam- vinnusparisjóðurinn numið land. Það er stutt síðan það gerðist. Hann var stofnaður 1. september 1954 og var fyrsta starfsárið í Sambandshúsinu en flutti undir áramótin 1955 í nú- verandi samastað. Var fyrst í tveim herbergjum, litlum, en fljótlega óx starfsemin og þrengdist um í hinu litla húsnæði. Á síðasta ári losnaði töluvert pláss í húsinu, þegar að verzl- un Dráttarvéla flutti að hluta til að Snorrabraut 32, Var það tækifæri notað, húsakynni sparisjóðsins stækk- uð og gerðar á þeim miklar endur- bætur. Eru þau nú hin vistlegustu og þægileg mjög fyrir starfsemina. Starfsmenn sjóðsins voru aðeins 2 fyrsta árið en nú eru þeir 9. Fyrsti í; Elín Flnnbogadóttir er drjúg á svip yfir víxlaskránni. Elín Hjartar leggur saman tölur á viðskiptamannaskrá. 18 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.