Samvinnan - 01.12.1969, Side 54
frelsi þjóða sinna annarsstaðar en í byssu-
hlaupinu. Eins er hugmyndin um æðri og
óæðri hópa ekki ein nægileg til að hægt sé
að tala um fasisma. Þorri íslendinga lítur
vafalítið 'Svo á að þeir séu Grænlendingum
æðri að ýmsu leyti. En þarsem samskipti
þjóðanna eru nánast engin, þá reynir aldrei
á hina þættina tvo.
Hlutföll þessara þriggja þátta geta verið
með ýmsu móti. En allt bendir til að hug-
myndin um æðri og óæðri hópa sé upp-
spretta hinna tveggja. Fasisminn sem hug-
myndafræði og hreyfing mótast svo af því
hversu sterk og hvers eðlis þessi hug-
mynd er.
Auk þessara þriggja höfuðþátta má greina
ótal smáþætti sem geta við vissar aðstæður
— einn eða fleiri saman — orðið til að kalla
fram einhvern þessara þriggja. Þeir helztu
eru: þjóðrembingur, valdsækin þjóðernis-
hyggja, foringjadýrkun, kynþáttafordómar,
stéttafordómar, trúarbragðafordómar, andúð
á menntamönnum, dýrkun á líkamskröftum
og hetjudáðum, íhaldssamar siðgæðiskröfur
til æskufólks, rík áherzla á lög og reglu, rík
áherzla á nauðsyn refsingar, tilhneiging til
að gera hópi manna upp annan vilja en hann
„í rauninni" hefur, hugmyndin um að betra
sé að hugsa kórrétt en að hugsa frjálst, rík
áherzla á takmarkanir skynseminnar, skýrar
línur milli þess normala og þess ónormala,
rík áherzla á réttmæti valdsins.
Meðal þessara smáþátta má oft finna
byrjunareinkenni fasismans. En enginn einn
þeirra getur kallazt fasismi. Ekki heldur gæt-
um við talað um fasisma þó þeir væru allir
saman komnir á einum stað. Þeir eru aðeins
fylgifiskar höfuðþáttanna þriggja.
3
Það ætti að vera hverjum manni ljóst að
margir ofantalinna smáþátta eru þegar orðn-
ir nokkuð áberandi á Vesturlöndum (Sovét-
ríkin og leppríki þeirra meðtalin). En höf-
uðþættirnir þrír liggja kannski ekki eins
í augum uppi.
Stórveldin tvö halda ekki á loft neinni
fasískri hugmyndafræði. Bandaríkin fremja
ekki þjóðarmorð í Víetnam í nafni fasism-
ans, heldur í nafni lýðræðisins. Sovétríkin
ráðast ekki inní Tékkóslóvakíu í nafni fas-
ismans, heldur í nafni sósíalismans. En þau
hafa fasíska hugmyndafræði engaðsíður.
Bæði hafa að engu ákvörðunarrétt smá-
ríkja. Bæði svífast einskis til að skara eld
að sinni efnahagslegu köku. Báðum mistekst
að leyna köllun sinni til alþjóðlegra lög-
reglustarfa. Bæði hampa hernaðarmætti sín-
um og hika ekki við að beita honum. Þetta
verður ekki dulið bakvið faguryrði einsog
sósíalisma, frelsi og lýðræði. Ef yfirlýsingar
og gerðir stórveldanna eru lesnar niðrí kjöl-
inn, þá blasir við sú hugmynd að þau séu
öðrum ríkjum æðri.
Hér skilur í veigamiklu atriði á milli sí-
vaxandi fasisma stórveldanna og þýzka naz-
ismans. Nazistarnir voru svotil frá byrjun
sannfærðir um yfirburði aríska kynstofnsins
og messíasar-hlutverk þýzku þjóðarinnar.
Skoðanir þeirra áttu að verulegu leyti ræt-
ur að rekja til þjóðernislegrar minni-
máttarkenndar. Skoðanir ráðandi manna
stórveldanna eiga ekki rætur að rekja
til þjóðernislegrar minnimáttarkenndar,
öllu nær væri að kalla það þjóðernis-
Franskt mótmœlaspjald frá maí-róstunum.
legt mikilmennskubrjálæði. Og þó margt
bendi til meiri og víðtækari kynþáttafor-
dóma hjá stórveldunum en virðast kann í
fljótu bragði, þá sitja þau ekki ennþá uppi
með neitt í líkingu við það sambland af
vitskerðingu og barnaskap sem aría-hug-
myndir og þjóðrembingur nazistanna voru.
Það eru fyrst og fremst valdayfirburðir stór-
veldanna sem fæða af sér þá hugmynd að
þau séu öðrum ríkjum meiri og þarafleið-
andi æðri. Þau gnæfa yfir önnur ríki í efna-
hagslegu og hernaðarlegu tilliti. Vald þeirra
er svo mikið að þau geta sýnt smáríkjum
takmarkalaust tillitsleysi án þess að bíða við
það teljandi efnahagslegan og hernaðarlegan
hnekki. Þau þurfa ekki að spyrja önnur ríki
hvort valdbeiting þeirra sé rétt eða röng.
Hún er rétt, af því þau hafa vald til að
beita henni. Hún er líka rétt, af því að hún
þjónar hagsmunum þeirra sjálfra. Þau setja
samasem-merki á milli valdayfirburða og
valds til að ákvarða hvað sé rétt og hvað
rangt. Og þau setja líka samasem-merki á
milli valds og getu til pólitísks skilnings. Af
því þau hafa ótvíræða valdayfirburði yfir
önnur ríki, af því þau þurfa ekki að taka
tillit til annarra ríkja nema að takmörkuðu
leyti, þá hafa þau líka ótvíræða yfirburði
til að dæma um hvaða pólitískur skilningur
33 réttur og hver rangur. Og um leið og þau
játa þetta í verki, þá eru andstæð smáríki
ekki lengur bara smá eða smærri, þau eru
líka óæðri. Þau eru óæðri af því þau hafa
rangan skilning á eigin högum. í stuttu
máli: Sá sterki er ekki bara þeim veika
æðri vegna þess að hann er sterkari, hann
er honum líka æðri vegna þess að hann
hefur höndlað réttari skilning á sjálfum sér
og öðrum en hann. Og hann hefur höndlað
réttari skilning, af því hann er sterkari.
Brésneff-kenningin svonefnda afhjúpar
sig á skemmtilegan hátt. Hún gerir ráð fyrir
rétti eins sósíalisks ríkis til að skipla sér
af innanríkismálum annars sósíalísks ríkis, ef
það álítur að sósíalisminn standi þar höllum
fæti. Þannig er innrásin í Tékkóslóvakíu
réttlætt. En segjum nú svo að Tékkóslóvak-
ar komist á þá skoðun að sósíalisminn í
Sovétríkjunum standi höllum fæti. Hafa
þeir þá rétt til að ráðast inn í Sovétríkin?
Spurningin er fjarstæða, því forsenda inn-
rásar eins ríkis í annað er ekki rétturinn til
þess, heldur hernaðarmátturinn. Tékkóslóv-
akar hafa ekki hernaðarmátt til að ráðast
inn í Sovétríkin. Og þarafleiðandi engan
„rétt“. Pólitískur skilningur sovétmanna er
rétthæiri en pólitískur skilningur Tékkó-
slóvaka. Hann er rétthærri, af því að Sovét-
ríkin eru máttugri. Brésneff-kenningin er
ekki annað en kenning um rétt þess sterkari
til að níðast á þeim veikari, rétt þess æðri
til að níðast á þeim óæðri.
Víetnam og Tékkóslóvakía ættu að nægja
sem dæmi um fasisma stórveldanna tveggja
gagnvart smáríkjum. í báðum tilfellum
ræðst sterkur á veikan. í báðum tilfellum
gefur sá sterki sér rétt til að hlutast til um
málefni þess veika, af því hann álítur sig
hafa réttari skilning en hann. Sá sterki er
því ekki bara sterkur og sá veiki veikur, sá
sterki er auk þess æðri og sá veiki óæðri.
í báðum tilfellum er beitt vopnuðu ofbeldi,
m. a. til að sanna mátt þess sterka og mátt-
leysi þess veika, og þarmeð staðfesta réttan
skilning þess sterka og rangan skilning þess
veika. í öðru tilvikinu má tala um tilraun
til skipulagðrar útrýmingar fólks á stórum
landsvæðum. í báðum tilfellum slakar sá
sterki á þeim siðferðiskröfum sem hann
gerir til sjálfs sín þegar smærri einingar
eigin hóps eiga í hlut.
Þennan fasisma er reynt að fela á bakvið
orð. Ráðamenn stórveldanna álíta sig ekki
eingöngu hafa réttari skilning á öllum hlut-
um en allir aðrir, þeir hafa einnig einkarétt
á merkingu hugtaka einsog frelsi, lýðræði,
sósíalismi og bræðralag. Ef við sættum okk-
ur við þessa einokun á orðum, munum við
brátt fá að lifa þann dag að lýðræði merki
arðrán með sprengjum og sósíalismi kúgun
og fasískt gerræði. Bandaríkin eru ekki lýð-
ræðisleg nema að takmörkuðu leyti. Þau
eru fyrst og fremst kapítalísk og heims-
valdasinnuð. Þau virðast á góðri leið með
að ganga af eigin lýðræði dauðu, einmitt í
nafni lýðræðisins. Sovétríkin eru ekki sósí-
alísk nema að takmörkuðu leyti. Þau eru
fyrst og fremst ríkis-kapítalísk og heims-
valdasinnuð. Þau virðast á góðri leið með
að ganga af eigin sósíalisma dauðum, ein-
mitt í nafni sósíalismans.
4
Þó ríkjandi fasismi sé ógnvekjandi á
margan hátt, þá bendir flest til að hann sé
barnaleikur hjá því ástandi sem reikna má
með í náinni framtíð. Hér gefst ekki rúm
til að ræða sívaxandi fasisma innan stór-
veldanna sjálfra og annarra vestrænna ríkja,
hér verður aðeins stuttlega vikið að þeirri
fasísku meðferð sem hugsanlegt er að ríki
heimurinn, með stórveldin í broddi fylking-
ar, beiti fátæka heiminn. Þessi fasismi er
þegar fyrir hendi, og hefur reyndar verið
allt frá því nýlendukúgun hófst, en hann
verður sífellt tæknilegri og áhrifameiri.
Þau lönd sem hér eru kölluð ríki heimur-
inn til hægðarauka og einföldunar, en eng-
anveginn að ástæðulausu, eru N-Ameríka,
54