Samvinnan - 01.12.1969, Qupperneq 71

Samvinnan - 01.12.1969, Qupperneq 71
AÐRAR FYLLINGAR í staðinn íyrir reykt ílesk er tilbreyting að hafa eftirfarandi fyllingar: 1. Hangikjöt eða léttreykt svínakjöt, sem skorið er í mjóar ræmur. 2. Brúnaða sveppi og lauk. 3. Reykt flesk, saxaðan lauk og ost. 4. Blandaða úvexti (sem áður eru lagðir í bleyti). APPELSÍ NUKOSSAR 3—4 appelsínur 2 egg % dl sykur Safi úr M> sítrónu og 1 appelsínu (um. 1 dl safi) 4 blöð matarlím 2% dl rjómi Vínber eða kirsuber (cocktailber). Skeriö appelsínurnar í sneiðar og raðið helmingnum á fat. Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn, vindið það upp úr vatninu og bræðið yfir gufu. Þeytið rjómann og eggin með sykrinum. Kælið matar- límið með safanum og blandið því í eggjaþykknið. Þegar búð'ingurinn er farinn að þykkna er rjómanum bætt í hann (2—3 msk eru teknar frá til skreytingar). Látið bíða á köldum stað um stund. Setjið eina skeið af búðingi á hverja appelsínusneið og hvolfið hinum sneiðunum yfir. Skreytið með rjómatoppum og vínberjum eða hálfum kirsuberjum. SÚKKULAÐIKREM 1 dl sykur 1 dl vatn 3 eggjarauður 100 g smjör (eða jurtasmjör) 50 g súkkulaði 1 tsk vanilla eða líkjör %—% tsk neskaffiduft. Sjóðið saman sykur og vatn í 10—12 mín. við hægan hita, þar til það fer að þykkna. Hrærið eggjarauðurnar og hellið sykurleginum smátt og smátt saman við. Þeytið stöðugt þar til kremið fer að þykkna. Hrærið þá linu smjöri og bræddu súkkulaði saman við, ásamt bragð- efnum. Kljúfið kökuna og smyrjið þriðjungi kremsins á milli. Þekið hana síðan með afganginum og stráið grófu kókósmjöli yfir. DRAUMKAKA 150 g smjörliki 3 dl sykur 'k appelsina (saji og rifið hýði) 2 tsk lyftiduft 3 dl hveiti 1 Vz dl mjólk 3 eggjahvítur. Hrærið smjörlíkið vel ásamt sykrin- um, appelsínusafanum og rifna hýð- inu. Sigtið hveiti og lyftiduft, bland- ið þvi síðan saman við með mjólk- inni og síðast stifþeyttum hvítunum. Bakið kökuna við 175 gráðu hita í 50—60 mínútur. (Ath. smyrjið mótið vel og stráið brauðmylsnu í það). TVEIR KALDIR KJÖTRÉTTIR Á JÓLABORÐIÐ Köld tunga með fyllingu 200 g soðin tunga FYLLING: 1 'k dl rjómi 2 msk olíusósa (mayonaise) 1— llk msk rifin piparrót 2— 3 epli (skorin í smáa bita). Skerið tunguna í þunnar sneiðar. Þeytið rjómann og blandið olíusós- unni, piparrótinni og eplabitunum saman við. í staðinn fyrir nýja piparrót er hægt að nota piparrótarduft sem hrært er út í köldu vatni. (Ath. að piparrótarduft er sterkara en ný piparrót). Raðið helmingnum af tungusneiðunum á fat. Skiptið fyllingmini á sneiðarnar og leggið hinar sneiðarnar yfir. Skreytið með vínberjum, salatblöðum og stein- selju ef það er fyrir hendi. Grænmeti í olíusósu (ítalskt salat) eða ávaxtasalat er einnig gott með kaldri tungu. APRIKÓSUTERTA 4 egg 2 dl sykur 75 g kartöflumjöl 2 msk kakó 2 tsk lyftiduft Þeytið egg og sykur vel saman. Sáldrið kakó, kartöflumjöl og lyftiduft, blandið því varlega saman við. Bakið deigið í tveim tertumótum, við um 200 gráðu hita. Þeytið 4—5 dl af rjóma. Hellið %—1 dós af apri- kósum á sigti, takið yztu himnuna af þeim og merjið þær með gaffli. Biandið aprikósunum og súkkulaðibitum varlega saman við rjómann og frystið hann ef vill. Bleytið botnana með aprikósusafa og leggið þá saman með ís eða helmingnum af rjómanum. Látið hinn ísbotninn ofan á eða það sem eftir er af rjómanum. Kjöthlaup 200 g soðið léttreykt svínakjöt (skinka) eða hamborgarhryggur 200 g grœnar baunir 4 sneiðar ananas 4 msk hvitvín eða sherry 4 blöð matarlím. SÓSA: 100 g olíusósa (mayonaise) 1 msk franskt sinnep. Skerið kjötið í teninga og blandið baununum saman við. Blandið ananassafann með hvítvíni og vatni svo að það verði % lítri. Leggið matarlímið í bleyti, bræðið það og blandið því í safann. Hellið leginum yfir kjötið og baunirnar og látið það hálfstífna. Smyrjið fjóra bolla eða mót með matarolíu. Hellið hlaupinu í bollana og látið það standa á köldum stað 1—2 klst. Hvolfið hlaupinu á ananassneiðar og skreytið með salatblöðum, steinselju og tómatbátum. Hrærið olíusósuna með kryddi og sinnepi og berið sósuna með hlaupinu. BANANABÁTAR í barnaboð Skerið banana eftir endilöngu og skreytið þá sem hér segir: 1. Sprautið rjóma eftir endilöngum banananum, stingið bananasneið- um í og stráið rifnu súkkulaði yfir. 2. Stingið bananasneiðum og vín- berjum í bananahýðið. 3. Stingið pinna í gegnum kirsuber og vínber. Festið pinnana með jöfnu millibili í bananana. Búið til árar úr appelsínuhýði, svo að þetta líti út eins og bátur með róðrarkarla. 4. Sprautið rjóma á hýðið og skreytið með berjum og banana- sneiðum. 71
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.