Samvinnan - 01.12.1970, Side 19

Samvinnan - 01.12.1970, Side 19
Þarfasti þjónninn FRIGG bóndi! Það gat varla minna verið. Um sjónvarpið fjalla 5 menn; enginn úr alþýðustétt, enginn utan af landsbyggðinni. Um þéttbýlisþróunina skrifa 8 menn: 2 viðskiptafræðingar, 2 hagfræðingar, 3 bæjarstjórar og 1 fulltrúi. Að sjálfsögðu kemur ekki fram, hverjum augum sveitamenn líta á þau mál. Um unga fólkið og samtíðina leggja upp undir 30 ungir karl- ar og konur (þó ekki nema 4 konur) orð í belg. Enginn þeirra ætla ég að sé fulltrúi ungra bænda né heldur ungra verkamanna. í hópi þeirra 15 manna, sem skrifa um „Líf og list“, er eng- inn bóndi, enginn verkamaður. Má vera, að eigi taki því að leita álits þess konar fólks um svo háleitt efni. Um efnið „Verkalýðshreyfing og kjarabarátta" í siðasta hefti fjalla 10 menn: 1 alþingismað- ur, 1 hagfræðingur, 1 sagn- fræðingur, 1 lögfræðingur, 1 prentari, 1 hagræðingarráðu- nautur, 1 erindreki, 1 ritstjóri, 1 framkvæmdastjóri, 1 bóndi — og enginn verkamaður; verður þó naumast talið, að öðrum sé málið skyldara. En nú er víst mál að linni — og mætti þó enn halda áfram i sama dúr. En þótt ég sé með þessar aðfinnslur — og þær eru fjarri því að vera ástæðu- lausar — þá er skylt að einnig hitt komi fram, að Samvinnan flytur margt, sem fengur er í, og verður það að teljast stór- um þyngra á metum. Sjálfur skrifar ritstjórinn hressilega og hispurslaust, svo að ánægju- legt er að lesa, þótt skoðanir fari eigi ávallt saman. Vinsamlegast. Gísli Magnússon. MIÐSTÖÐVARKATLAR — LOFTHITARAR VATNSHITARAR framleiddir í verksmiðju okkar. • FRAMKVÆMUM alls konar vélaviðgerðir og járnsmíði s. s. skipaviðgerðir, hita- og kælilagningar. • UMBOÐ FYRIR díselvélar, dælur, blásara, utanborðs- hreyfla, rafsuðuvélar, gufugildrur, frystivélar, rafstöðvar,flutninga- bönd, eyrna- og höfuð- hlífar, öryggisskó o. fl. • VARAHLUTIR — VIÐGERÐAR- ÞJÓNUSTA. \7tomajfiey, Loftbarkar Armstrong miðstöðvardælur Loftblásarar Vélsmiðjan DYNJANDI SKEIFUNNI 3h — REYKJAVÍK — SÍMI 82670 19

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.