Samvinnan - 01.12.1970, Page 25

Samvinnan - 01.12.1970, Page 25
Sveinn Björnsson Gunnar J. Friðriksson Harry Frederiksen Otto Schopka Þorvarður Alfonsson Þórir Einarsson Guðmundur Magnússon Steingrímur Hermannsson Stefán Bjarnason Pétur Pétursson Hjalti Kristgeirsson Aburðarverksmiðja ríkisins í Gufunesi. híutdeild iðnaðarins i atvinnu- framfærslu úr 11,3% 1920 í 18,9% 1930. KREPPA OG HEIMSSTYRJÖLD Svona stóðu málin, þegar áhrif heimskreppunnar mikiu fóru að ge:a vart við sig upp úr 1930. Verðlag á islenzkum útflutningsafurðum féll, og skortur eriends gjaldeyris fór að segja til sín samfara at- vinnuieysi. Undir þessum kringumstæðum hófst ör vöxt- ur smáiðnaðar, sem framleiddi neyziuvarning fyiir heima- markað. Utanaðkomandi kiingumstæður urðu þannig til þess, að skriður komst á þróun iðnaðar í landinu, og stjórn- arvöldin gerðu sitt til að efla þessa þróun með þvi að tak- marka innflutning; verndar- tollum var komið á, og á árun- um 1935—1941 voru í gildi lög, sem undanþágu ný iðnfyrir- tæki sköttum fyrstu þrjú árin. Árið 1937 er fyrsta meirihátt- ar rafstöðin (Sogsvirkjun) tek- in i notkun til afnota fyrir Suðvesturland, og síðan fylgja aðrar virkjanir, og batna þá enn skilyrði fyrir þá iðnaðar- þróun, sem þegar var hafin. Nokkrum árum áður, eða 1930, hafði verið byggt frysti- hús í Reykjavík, og reyndist það fyrirboði stórkostlegrar efiingar fiskiðnaðarins. Má segja, að hraðfrystiiðnaðurinn hafi um margt haft algjöra sérstöðu í þróun iðnaðar á ís- iandi, einkum að þvi er snertir hlutdeild hans í útflutningi. Svo sem vænta mátti, hafði síðari heimsstyrjöldin í för með sér róttæk áhrif á allt efna- hagslíf þjóðarinnar. Skyndi- lega skapaðist mikil eftirspurn eftir vinnuafli í stað atvinnu- leysis, sem gætt hafði talsvert undanfarandi áratug; og það var ekki aðeins að eftirspurn stórykist eftir útflutningsfram- leiðslu hennar, heldur hækk- uðu afurðirnar stórlega í verði. Samfara auknum kaupmætti landsmanna annars vegar og takmörkuðu vöruframboði hins vegar, hlutu nú að skapast skilyrði til framleiðslu á rnarg- víslegum iðnaðarvarningi inn- anlands, enda þótt erfitt reyndist um vik að byggja upp iðnfyrirtæki og búa þau nauð- synlegum vélurn og tækjum, er styrjöidin geisaði. Engu að síð- ur er þróun iðnaðarins á þessu tímabili slík, að hlutdeild hans í atvinnuframfærslu eykst úr 21,3% árið 1940 í 32,5% árið 1950, og var þessi atvinnuveg- ur þar með orðinn stærstur í þessu efni. Vegna óhagstæðrar gjaldeyr- isstöðu gagnvart útlöndum lengst af, allt frá 1947 til 1960, og ráðstafana til að draga úr eftirspurn erlends gjaldeyris, voru aðstæður fyrir þróun iðn- aðar til framleiðslu á neyzlu- vörum fyrir innanlandsmarkað að ýmsu leyti hagstæðar þessi ár. Þó ber að leggja áherzlu á, að yfirleitt voru þessar ráð- stafanir ekki gerðar iðnaðarins vegna, heldur til tekjuöflunar fyrir ríkissjóð og til að draga úr eftirspurn erlends gjaldeyr- is. Kom þetta fram í þvi m. a., að iðnaðurinn varð mjög fyrir barðinu á þessum höftum í sambandi við innflutning véla og hráefna; verulegs ósam- ræmis gætti i tollun hráefna og fullunninna vara, og fjár- festing í iðnaðarbyggingum var háð strangri skömmtun. STAÐAN í DAG Áður fyrr hætti mönnum til að deila um það, hvort íslenzk- ur iðnaður ætti rétt á sér. Þvi var jafnvel haldið fram, að hann væri baggi á þjóðarbúinu og þrifist eingöngu í skjóli hárra tollmúra. Sj ávarútvegur og landbúnaður væru ásamt þjónustugreinum og bygging- arstarfsemi þau atvinnusvið, sem hentuðu landi og þjóð. Sem betur fer tilheyra fánýt- ar deilur um tilverurétt iðnað- arins liðinni tíð. í þjóðfélagi nútímans með allri sinni verkaskiptingu og tæknivæð- ingu verður ekki fullyrt um það, að ein atvinnugrein sé annarri rétthærri eða sjálf- sagðari. Búi atvinnugreinarn- ar við nokkurn veginn jöfn starfsskilyrði innbyrðis í sam- keppninni um fjármagn og 25

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.