Samvinnan - 01.12.1970, Síða 29

Samvinnan - 01.12.1970, Síða 29
Verksmiðjur samvinnumanna á Akureyri. skinnhönzkum úr leðri og skinnum frá sútunarverk- smiðjunni. Árið 1947 kaupir Sambandið Prjónastofu Ás- gríms Stefánssonar á Akureyri, sem þá var lítið en vel rekið fyrirtæki. Þessi verksmiðja heitir nú Fataverksmiðjan Hekla og er starfrækt í tveim- ur deildum, prjónadeild og vinnufatadeild, með mjög fjöl- þætta fatnaðarframleiðslu. Þess má geta, að Sambandið starfrækti i Reykjavík á ár- unum 1939—1945 prjónastofu, sem vann mest sokka úr is- lenzku ullarbandi frá Gefjuni. Fyrri hluta árs 1947 keypti Sambandið Vélsmiðjuna Jötun og starfrækti í nokkur ár vél- smiðju, en hún var lögð niður. Árið 1953 var sett upp í húsa- kynnum Jötuns rafhreyfla- verksmiðja, sem fyrst og fremst átti að bæta úr skorti á einfasa súgþurrkunarmótorum fyrir sveitirnar. Slíka mótora var erfitt að fá frá útlöndum, en víðast hvar lagðar einfasa rafstöðvar um sveitirnar. Þessi verksmiðja hefur þvi fram á þennan dag gegnt mikilvægu þjónustuhlutverki fyrir bændur landsins. Árið 1960 var stofnsett á Húsavík Fataverksmiðjan Fífa, sem framleiddi aðallega vinnu- skyrtur og vinnufatnað, og 1963 var sett á stofn í Borgarnesi Verksmiðjan Vör, sem fram- leiddi aðallega sjófatnað og regnfatnað. Báðar þessar verk- smiðjur áttu það sameiginlegt að vinna úr innfluttu efni, og voru þær fyrst og fremst stofn- settar til að bæta úr atvinnu- leysi á þessum stöðum, en það sorglega skeði, að fella varð niður starfsemina vegna mik- illar samkeppni við innflutn- inginn. Sú stefna virtist rikjandi hjá ráðamönnum þjóðfélagsins á árunum 1964 til 1967, að ekkert vit væri í að starfrækja smá- iðnað í landinu, hann ætti eng- an rétt á sér, vörurnar skyldu keyptar erlendis. Það var gert og með þeim afleiðingum, að mörg af litlu fyrirtækjunum hurfu af sj ónarsviðinu, og neyddist Sambandið til að loka Fífu árið 1966 og Vör árið eftir. Þegar svo að því kom, að veru- lega fór að bera á atvinnuleysi á árunum 1967 og 1968, kippt- ust menn illa við og sáu hvers virði smáiðnaðurinn raunveru- lega hafði verið þjóðarbúinu, en óhappið var skeð. Nú aftur á móti er stefnan sú, að fátt geti betur bjargað þjóðinni en mik- il iðnaðarframleiðsla, og þá helzt til útflutnings. Það eru viss sannindi í þessu, en hafa verður i huga, að íslendingar njóta engra sérréttinda um verðlag á framleiðsluvörum sínum á hinum erlenda mark- aði. Þar er spurt um lægsta verð og gæði vörunnar, og sá sem bezt getur boðið hefur viðskiptin. Það má ekki heldur gleyma því, að hollt er að búa sem mest að sínu, og það er engu síður mikilvægt að fram- leiða fyrir heimamarkað. í ársbyrjun varð iðnaður Sambandsins fyrir miklu áfalli, þegar tvær af verksmiðjum þess urðu eldi að bráð, skó- verksmiðjan og sútunarverk- smiðjan. Strax var tekin ákvörðun um að endurbyggja verksmiðjurnar. Skóverksmiðj- an er nú fyrir nokkru aftur komin í fulla starfrækslu, stærri og betur búin vélum en áður. Verksmiðjan getur fram- leitt 200 þúsund pör af skóm á ári. Hafizt var handa um byggingu nýrrar sútunarverk- smiðju 7. júní 1969, og tók verk- smiðjan til starfa á miðju sumri 1970. Verksmiðjan er að grunnfleti 3.800 fermetrar og talin ein fullkomnasta verk- smiðja, sem til er, til vinnslu á gærurn. Nú er ennfremur í undirbúningi að hefja aftur starfrækslu í Borgarnesi um n. k. áramót, og verður fram- leiðslan kuldahúfur úr pelsa- skinnum frá Iðunni. Hér hefur í stuttu máli verið rakin þróunarsaga verksmiðju- reksturs Sambandsins, sem nú er orðinn það stór, að hann skipar þýðingarmikinn sess í samvinnubyggingunni og er um leið til mikilla hagsbóta fyrir alla þjóðina. Þess ber að minnast, að i síðustu heims- styrjöld var oft erfitt að ná í vörur frá útlöndum. Verk- smiðjur samvinnumanna bættu þá verulega úr vöruskortinum. Tekið var upp einskonar skömmtunarfyrirkomulag til þess að vörunum væri sem réttlátast dreift um landið. IÐNAÐARDEILDIN Verksmiðjurnar hafa einnig rennt styrkum stoðum undir heimilisiðnað í landinu, sem aukizt hefur allverulega hin síðari ár og verið heimilunum drjúg búbót, þegar lítið hefur verið um atvinnu úti við. Mörg fyrirtæki hafa einnig fengið vörur frá verksmiðjunum til fullvinnslu á hinn margvisleg- asta hátt. í ársbyrjun 1949 var Iðnað- ardeild Sambandsins sett á stofn, og þá var um leið allur verksmiðjuiðnaður Sambands- ins sameinaður hjá deildinni, en áður heyrði hann undir Út- flutningsdeild eða Innflutn- ingsdeild, eftir því hvort unnið var úr innlendum eða erlend- um hráefnum. Verksmiðjur, sem nú heyra undir Iðnaðar- deildina, og helztu framleiðslu- vörur þeirra eru þessar: ULLARVERKSMIÐJAN GEFJUN: Vörutegund: Eining 1969 Dúkar m 152.901 Band og garn kg 165.001 Lopi og plata — 78.334 Dralon prjónaband — 15.638 Ullar- og stoppteppi stk. 43.848 Dralonsængur — 967 Dralonkoddar — 1.645 Svefnpokar — 366 Utanyfirpokar — 89 SKINNAVERKSMIÐJAN IÐUNN: Vörutegund: Eining 1969 Sútað: Hrosshúðir stk. 5.655 Nautgripahúðir — 724 Sauðskinn — 0 Ýmis skinn — 1.100 29
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.