Samvinnan - 01.12.1970, Blaðsíða 34
Kísilgúrverkamiðjan við Mývatn.
sem hefur þann tilgang að efla
og styðja innlendan veiðar-
færaiðnað. Ríkissjóður lagði
veiðarfæradeildinni til skulda-
bréf að upphæð 11,6 millj. kr.
sem stofnfé. Þá er lánadeild
veiðarfæraiðnaðarins tryggður
tekjustofn, sem er 1% verð-
jöfnunargjald, sem lagt er á
tollverð innfluttra veiðarfæra,
þ. e. veiðarfæra sem einnig eru
framleidd hér i landinu.
Veitt ián Iðnlánasjóðs á ár-
inu 1969 námu 128,9 millj. kr.,
og áætlað er, að lánveitingar
á þessu ári nemi 182,0 millj. kr.
Um síðastliðin áramót námu
útlán Iðnlánasjóðs svo sem hér
segir:
Vélalán 118,7 millj. kr.
Byggingalán 209,4 — —
Lausaskuldalán 63,4 — —
Hagræðingarlán 9,2 — —
Veiðarfæralán 5,3 — —
Samtals 406,0 millj. kr.
Iðnþróunarsjóður er stofnað-
ur samkvæmt sérstökum samn-
ingi ríkisstjórna Norðurlanda
og staðfestur með lögum nr.
9/1970. Hugmynd að þeim
samningi kom fram i viðræð-
um norrænna embættismanna
og st.'órnmálamanna varðandi
væntanlega aðild íslands að
Fríverzlunarsamtökum Evrópu.
Tilgangur Iðnþróunarsjóðs er
að stuðla að tækni- og iðnþró-
un íslands og auðvelda aðlög-
un iðnaðarins að breyttum
markaðsaðstæðum, vegna að -
ildar íilands að EFTA. Sjóður-
inn á að leggja áherzlu á þró-
un útflutningsiðnaðar á fs-
landi og aukna samvinnu á
sviði iðnaðar og viðskipta milli
íslands og hinna norrænu
landanna. Ennfremur er það
ve.kefni sjóðsins að efla sam-
keppnishæfni islenzka heima-
mar kaðsiðnaðarins.
Stofnfé Iðnþróunarsjóðs er
jafnvirði 14 milljóna dollara,
eða um 1230 millj. ísl. kr. Er fé
þetta lagt fram af fimm Norð-
urlöndum og skiptist þannig,
að framlag Svíþjóðar er jafn-
virði 5,4 millj. dollara, framlag
Danmerkur, Finnlands og Nor-
egs jafnvirði 2,7 millj. dollara
hvers um sig, og framlag ís-
lands jafnvirði 0,5 millj. doll-
ara.
Stofnfé sjóðsins er lagt fram
vaxtalaust og greiðist inn á
fyrstu fjórum árum eftir gild-
istöku samningsins. Frá tíunda
ári skal sjóðurinn eftir nánari
ákvörðun sjóðsstjórnarinnar
endurgreiða stofnframlagið á
næstu 15 árum, og er endur-
greiðslu þess þannig lokið að
enduðum 25 árum frá stofnun
sjóðsins.
Iðnþróunarsjóður veitir lán
til fjárfestingarframkvæmda í
iðnaði, auk þess sem hann
getur ábyrgzt lán, sem veitt eru
af þriðja aðila. í sérstökum til-
vikum getur Iðnþróunarsjóður
veitt lán með sérlega hagstæð-
um kjörum og styrki, meðal
annars til tækniaðstoðar,
rannsókna og markaðsathug-
ana. Slik lán eða framlög mega
þó samtals ekki nema meira
en 10% af stofnframlagi eða
um 120 millj. kr.
Stjórn Iðnþróunarsjóðs er
skipuð 5 mönnum, einum frá
hverju aðildarríki. Fer hver
stjórnarmaður með eitt at-
kvæði, en til ákvörðunar þarf
meirihluta atkvæða, og skal at-
kvæði íslenzka stjórnarmanns-
ins vera þar með. Stjórnin tek-
ur allar ákvarðanir um málefni
sjóðsins. Hún getur hins vegar,
eftir þvi sem hún telur heppi-
legt, falið framkvæmdastjórn
að taka ákvarðanir um starf-
semina. Framkvæmdastjórnin
er skipuð 6 mönnum. Eru 5
þeirra tilnefndir af Lands-
banka íslands, Iðnaðarbanka
íslands h.f., Iðnlánasjóði, Út-
vegsbanka íslands og Búnaðar-
banka íslands, en auk þess á
framkvæmdastjóri sjóðsins þar
sæti.
Starfsemi og starfshættir
Iðnþróunarsjóðs eru af eðlileg-
um ástæðum enn í mótun.
Fram að þessu hefur sjóðurinn
veitt Iðnlánasjóði lán að upp-
hæð 70 millj. kr., og ennfremur
hafði sjóðurinn í lok október
samþykkt lán til iðnfyrirtækja
að upphæð 45 millj. kr. Lán
þau, sem sjóðurinn veitir beint
til iðnfyrirtækja, eru með
gengisákvæði.
Gera má ráð fyrir því, að
sjóðurinn taki að veita lán með
sérstökum kjörum, sem yrðu
veitt til undirbúningsrann-
sókna vegna stofnunar fyrir-
tækja, sem eru nýjung hér á
landi. Þá eru styrkveitingar að
hefjast af hálfu sjóðsins til
markaðsathugana, og nýlega
hefur verið samþykkt styrk-
veiting til að standa straum
af sérfræðilegri könnun á fata-
iðnaði hér á landi. Til þess
verkefnis hafa verið ráðnir
norskir sérfræðingar. Það mun
verða meginregla í sambandi
við veitingu styrkja, að þeir
verða veittir til sameiginlegra
aðgerða af hálfu iðnfyrirtækja.
Þeir sjóðir, sem hér hafa
verið nefndir, Iðnlánasjóður og
Iðnþróunarsjóður, eru helztu
fjárfestingarlánastofnanir iðn-
aðarins í dag. Um nokkrar
lánveitingar til langs tíma hef-
ur verið að ræða af hálfu ann-
arra sjóða, svo sem Atvinnu-
leysistryggingasjóðs og At-
vinnujöfnunarsjóðs, en fyrir
þeim sjóðum verður ekki gerð
grein hér.
LOKAORÐ
Hin aukna iðnvæðing, sem
stefnt mun að hér á landi á
næstu árum, og þær skipulags-
legu breytingar í iðnaðarupp-
byggingunni, sem hljóta að
eiga sér stað, þegar tollalækk-
ana og aukinnar samkeppni
tekur að gæta, munu hafa í
för með sér verulega aukningu
fj ármunamyndunar í iðnaði á
næstu árum. Það veltur því á
miklu, að þess sé kostur að afla
þess fjármagns, sem til þarf.
í því sambandi skiptir að
sjálfsögðu miklu máli, að eðli-
leg myndun eigin fjármagns
geti átt sér stað í fyrirtækjun-
um sjálfum, en þess gerist
einnig þörf, að fyrirtækin
treysti fjárhagslega uppbygg-
ingu sína í formi hlutafjár. Til
þess að svo geti orðið, er nauð-
synlegt að stofnað sé til kaup-
þings, en ýmsar athuganir hafa
farið fram á vegum Seðlabanka
íslands til undirbúnings því
máli. Benda athuganir til, að
þess sé tæplega að vænta, að
viðskipti með hlutabréf og
sparnaður í formi hlutafjár
geti aukizt, nema breytingar
verði gerðar á skattalögunum,
sem hvetji til hlutabréfaeign-
ar og geri það sparnaðarform
eins eftirsóknarvert og önnur,
sem almenningur á kost á. Er
útlit fyrir, að þeirra breytinga
á skattalögunum sé að vænta.
Ekki verður annað sagt en að
iðnaðinum muni á næstu árum
verða allvel séð fyrir lánum
til fjárfestingarframkvæmda.
Gera má ráð fyrir, að með
vaxandi útlánagetu Iðnlána-
sjóðs og tilkomu Iðnþróunar-
sjóðs muni ný lán til langs
tíma til iðnaðaruppbyggingar
geta orðið 2.000—2.500 millj. kr.
á árunum 1970—1973. Er
ástæða til að ætla, að með
þessu fj ármagni verði unnt að
fullnægja eðlilegri eftirspurn
frá iðnaðinum eftir fjárfest-
ingarlánum.
Því fer þó fjarri, að hið stór-
aukna fjármagn sé eina lausn-
in á vandamálum iðnaðarupp-
byggingarinnar. Hún veltur
ekki sízt á hugmyndum, fram-
taki og stjórnun þeirra, sem i
iðnaðinum starfa, og að þeir,
sem fjármagninu ráðstafa,
tryggi sem heilbrigðasta notk-
un þess til arðvænlegra fram-
kvæmda.
Þorvarður Alfonsson.
Á verðlagi ársins 1960 Fjármunamyndun í iðnaði 1961—1969,
í millj. kr. 1961 1962 1963 1964 1965 1966 1967 1968 1969
Iðnaður skv. áðurn. skilgr. 111 138 200 213 206 275 280 183 187
Álbræðsla — — — — — — 174 453 485
Samtals 111 138 200 213 208 275 454 636 672
Á verðlagi hvers árs í millj. kr. Iðnaður skv. áðurn. skilgr. 126 174 263 316 329 477 480 394 511
Álbræðsla — — — — — — 290 885 1317
Samtals 126 174 263 316 329 477 770 1279 1828
Magnbreyting í % + 24,3 + 44,9 + 6,5 -l 3,3 + 33,4 + 65,1 + 40,0 + 5,7
Hlutdeild í heildarfjár- munamyndun atvinnuvega % 11,6 12,2 12,6 11,0 11,8 13,3 20,4 38,6 53,5
34