Samvinnan - 01.12.1970, Blaðsíða 37

Samvinnan - 01.12.1970, Blaðsíða 37
ísland og EFTA — millispil Guðmundur Magnússon: Forleik EFTA-aSildar er lok- ið. Það á vel við að útfæra millispilið á þessum vettvangi, því að mér segir svo hugur um, að iðnrekendur Sambandsins skilji betur grundvallaratriði frjálsrar verzlunar en margir aðrir. Sambandsfyrirtækin á Akureyri selja bæði á innlend- um og erlendum markaði, og EFTA-aðildin hefur áreiðan- lega bætt afkomu þeirra sumra hverra. En í rauninni gildir hið sama um sölu í Reykjavik og erlendis í aðalatriðum, eða mundi tollur á fatnaði við Elliðaár og inn- flutningsbann á hreinlætisvör- um til Reykjavikur ekki hafa áhrif á verkaskiptingu og verð- lagsþróun í þessum iðngrein- um? Vil ég leyfa mér að halda því fram, að viðskiptin séu bæði Reykvíkingum og Akur- eyringum í hag, eins og þau eru, og að hið sama ætti að gilda um ísland og EFTA. Áð- ur en sjálft millispilið hefst, er ekki úr vegi að rifja upp aðal- stef forleiksins, sem síðan flétt- ast saman við áframhaldið. Þeir, sem hlynntir voru EFTA-aðild, lögðu yfirleitt höf- uðáherzlu á sömu atriði. At- hyglisvert er þó, að rökin breyttust nokkuð frá því málið bar fyrst á góma. í upphafi sátu hagsmunir sjávarútvegs í fyrirrúmi. Þegar fram liðu stundir, fluttist áherzluþung- inn yfir á nauðsyn iðnaðarins á heilbrigðri samkeppni, út- flutningsmörkuðum, og á þörf þjóðarinnar fyrir atvinnutæki- færi handa þeim tiltölulega mikla fjölda, sem koma mun á vinnumarkaðinn á næstu ár- um. Ekki má heldur gleyma óskum um aukna fjölbreytni útflutningsatvinnuveganna. Vitaskuld á aðdragandi EFTA-aðildar okkar sér sögu- legar skýringar: útflutningur iðnaðarvarningsáíslandi hefur fram til þessa verið lítill. Iðn- aðurinn hefur algerlega verið háður sjávarútvegi um gjald- eyrisöflun til kaupa á hráefn- um og tækjum. Jafnframt hef- ur iðnaðurinn hingað til verið svo lítill hluti þjóðarbúsins, að gengisskráning hefur ekki mið- azt við afkomu hans, heldur sjávarútvegs. Til þess að auð- velda sjávarútvegi róðurinn hefur hann notið næstum al- gerra tollfríðinda á erlendum rekstrarnauðsynjum. Slíkt stuðlar auðvitað að aukinní sókn í sjávarútvegi og lamar starfsþrek iðnaðarins. Vegna verndarinnar var islenzkur iðnaður settur á lægstu skör allra framleiðslugreina í land- inu. Jafnframt átti iðnaðurinn erfitt með að afla sér trausts neytenda eftir þá flausturs- smíði, sem sett var á markað- inn á stríðsárunum og upp úr stríði í skjóli innflutnings- hafta. Ekki er þess langt að minnast, að kaupandi tók í höndina á framleiðanda fyrir að láta sig hafa gólfdregil á ganginn hjá sér. En margt hef- ur breytzt síðan þá, með auknu innflutningsfrelsi og aukinni samkeppni. GULLIN TÆKIFÆRI í athugun á ástandi og horf- um í íslenzkum iðnaði, er ég gerði á vegum iðnaðarráðu- neytisins,1) fannst mér málið horfa við á eftirfarandi hátt: EFTA-aðild skapaði íslenzkum iðnaði bersýnilega gullin tæki- færi á erlendum markaði um- fram hreinar gjafir — eða verðlaun — til þeirra fyrir- tækja, sem þegar höfðu haslað sér völl í EFTA-löndum þrátt fyrir ríkjandi tollahindrun. Bágt var að segja nákvæm- lega fyrir um, á hvaða sviðum útflutningur mundi eflast, og fyrirsjáanlegt var, að fram- kvæmd hans mundi taka nokk- urn tíma vegna framleiðslu- skipulagningar, menntunar starfsfólks, uppbyggingar sölu- kerfis og annars viðbúnaðar, og að deilur mundu fyrst í stað snúast um áhrif aukins inn- flutningsfrelsis á þann iðnað, sem þegar var stundaður á landinu. Þess vegna leitaðist ég einkum við að svara spurning- unni um, hvort EFTA-aðild gæti haft veruleg áhrif til hins verra, ef við stæðum ekki í stykkinu. Niðurstaðan varð sú, að ég taldi með ólíkindum, að horft gæti til verulegra vand- ræða, en vonir stæðu til, að iðnaðurinn mundi eflast við aðildina, og færði ég ýmis rök fyrir því. Hér mun einungis vikið að þeim helztu, en að öðru leyti visast til skýrslunnar sjálfrar. RÖKSEMDIR 1) Mismunandi tollar þýða i rauninni mismunandi gengi fyrir viðkomandi vörur. Væru allir tollar felldir niður, kæmi eitt gengi til með að ráða. Þeim mun stærri hluti heildarinnar, sem iðnaðarframleiðsla verður, i) íslenzkur iðnaður og EFTA Iðnaðarráðuneytið 1989. Sevientsverksmidja ríkisins á Akranesi. 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.