Samvinnan - 01.12.1970, Page 51
leysa slík veikefni, þótt sameiginlegt átak
samvinnufélaganna sé þess umkomið. ís-
lendingar mega ekki heldur falla í þá
f eistni að fela vandasamari viðfangsefni
erlendum aðiium, sem munu án efa reyna
að ryðjast inn i islenzkt atvinnulif i æ
ríkari mæli. Til að verjast þeirri ásókn
verða samvinnufélögin nú sem fyrr sverð
og skjöldur fólksins í landinu.
VI.
Jafnframt þvi sem Sambandsfélögin
þurfa að ráðast i ný verkefni i verk-
smiðjurekstri sínum, er nauðsynlegt að
taka til athugunar, hvort ekki beri að
verða við þeirri eðlilegu kröfu samtímans
að taka upp aukið samstarf við starfs-
fólkið um stjórn og stefnu verksmiðj-
anna og tilhögun á öllu, sem varðar að-
búnað starfsfólks og vinnuskilyrði. Sam-
vinnufélögin eiga á þessu sviði, eins og
svo mörgum öðrum, að ríða á vaðið, enda
samrýmist slíkt þátttökulýðræði mjög
þeirri lýðræðislegu hugsjón, sem sam-
vinnustefnan er grundvölluð á. Þannig
yrðu líkur til að treysta enn betur sam-
band starfsfólksins og stjórnenda verk-
smiðjanna. Skapa aukinn áhuga allra,
sem við þær vinna, fyrir velgengni þeirra.
Og síðast en ekki sizt, að láta öllum
starfsmönnum liða sem bezt. Jafnframt
því sem bætt aðbúð og hollustuhættir á
vinnustað auka á velferð fólksins, veitir
starfið þvi meiri lifsfyllingu, ef það er
þátttakendur í þeim ákvörðunum, sem
varða starf þess. Þátttökulýðræði er
miklu líklegra til að reynast þýðingar-
mikið, þar sem félagslegt framtak á í
hlut, en ef um einkaaðila er að ræða, í
þessu efni tel ég vænlegast að leita fyrir-
mynda til Norðmanna, sem um nokkurt
skeið hafa gert tilraunir með samstarfs-
nefndir á vinnustöðum.
VII.
Eins og ég gat um í upphafi greinar-
innar, taka óvildarmenn samvinnustefn-
unnar sér titt í munn, að samvinnufélög-
in heyri fortiðinni til. Slíka sleggjudóma
óttast samvinnumenn ekki. Þeir vita að
hugsjón samvinnustefnunnar er í fullu
gildi. En þrátt fyrir það þykir samvinnu-
mönnum þó mest um vert að geta sýnt
árangur i verki: að samvinnufélögin eigi
erindi við samtíðina og leysi þau verk-
efni, sem mestu varða um framtið lands
og lýðs. Iðnaður samvinnumanna er veg-
legur varði við braut alhliða framfara-
sóknar landsmanna. Hann sýnir, svo ekki
verður um villzt, árangur samvinnu-
starfsins og hið margþætta hlutverk þess
í þjóðlífi okkar. 4
Ilinar spánnýju spunavélar Gejjunar.
51