Samvinnan - 01.12.1970, Side 67

Samvinnan - 01.12.1970, Side 67
legi og mönnum við slíkar aðstæður? Það var sannarlega ekki tekið út með sæld- inni að fjárfesta um 240 milljarða dollara á árunum 1952—1967, en á næstu 15 ár- um er ætlunin að fjárfesta níu sinnum hærri upphæð! Drukknar ekki allt í hávaða, mengun og mannlegri eymd, þráttfyrir peninga- gæfu og viðskiptaveltu? Þetta er hin brennandi spurning í Japan samtímans og þá jafnframt spurning allra þjóða sem leggja einhliða áherzlu á iðnþróun og hagvöxt. VÍTIN Vítin úr reynslu Japana eru sannarlega mörg og verð fyllstu íhugunar — einnig fyrir okkur íslendinga sem enn eigum tiltölulega hreint loft og vatn og ekki mjög spillta náttúru. Japanir festu 30 milljarða dollara í vél- um og verksmiðjum á árinu 1969 á sama tima og Bandaríkin vörðu 70 milljörðum dollara i sama skyni. Á hvern ferkíló- metra er því fjárfesting í vélum og verk- smiðjum 23 sinnum meiri en í Bandaríkj- unum, eða 258.000 dollarar móti 11.000 dollurum. Þetta er ein helzta orsök meng- unar lofts og lagar, og hún er margfalt verri í Japan en nokkurntíma í Banda- ríkjunum, sem þó eru nógu illa á vegi stödd. Japanir reistu fleiri íbúðir í landi sinu árið 1968 en byggðar voru í Bandaríkjun- um öllum sama ár. Þeir byggðu m. ö. o. 55 sinnum fleiri íbúðir á ferkílómetra en Bandaríkjamenn. Á þessu eina ári voru byggðar 1,6 milljón íbúðir. En það hefur gengið verr að láta heilbrigðismálin hald- ast í hendur við framkvæmdaþróunina. Til dæmis eru stór svæði í Tokíó og öllum borgum öðrum ofurseld opnum skólpræs- um og margskyns óþrifum af völdum alltof örrar þéttbýlisþróunar. Bílaumferð í Japan er orðin meirihátt- ar vandamál. Þar eru rúmlega helmingi fleiri bílar á hvern ferkilómetra en í Bandaríkjunum (21,6 á móti 9,9), og af þessu leiðir ógrynni eiturefna í loftinu. í sumar leið urðu borgaryfirvöld í Tókíó að grípa til þess bragðs að banna alla bílaumferð á tilteknum svæðum um skeið. Árið 1969 slasaðist ein milljón Japana í umferðarslysum, en í Bandarikjunum öllum var talan tvær milljónir. í Svíþjóð deyja 900 manns í bílslysum árlega, en í Japan 16 sinnum fleiri, endaþótt Japanir telji einungis með í þessum hópi þá sem láta lífið innan 24 tíma frá slysinu. Japan á heimsmet í dauðaslysum á hverja þús- und bila. Ein ástæða hinna tíðu dauðaslysa er sú, að gangstéttir eru varla til nema í miðborgum. „Lóðir eru of dýrar til að við höfum ráð á að gera gangstéttir við göt- umar“, segja yfirvöldin. Ef ekki verður að gert, munu 20 til 25 milljónir Japana slasast í umferðarslysum á næstu 15 ár- um — eða um fjórðungur núverandi íbúatölu. Bílafjöldinn í Tókíó hefur fimmfaldazt á einum áratug, en götur einungis aukizt um 6%. í Japan hófust umræður um náttúru- vernd ekki að verulegu ráði fyrr en árið 1969, endaþótt komið hefði í ljós þegar árið 1962, að sót- og öskuúrfellið yfir Tókió var 50% meira en yfir Lundúnum (15 á móti 10 tonnum á hvern ferkiló- metra). Lög gegn „reyk og eiturefnum“ voru sett árið 1962, en reykur og eiturefni voru ekki skilgreind í lögum fyrr en 1966. Löggjöf um þessi efni er sögð vera slöpp í Japan ekki síður en á íslandi, því i báð- um löndum er stjórnvöldum meir i mun að vernda hagsmuni iðnaðarins en manneskjunnar. Japanskir neytendur eru umburðarlyndir og láta bjóða sér ýmis- legt einsog neytendur á íslandi, en þegar í ljós kom i júni í fyrra, að á götum landsins ók hálf þriðja milljón lélegra og hættulegra japanskra bíla, með galla sem framleiðendur reyndu að leyna, þá brást almenningur reiður við og jafnvel þingmennirnir vöknuðu. Og meðan eitur- þokurnar héldu áfram að þéttast yfir japanska undralandinu, fóru leiðarahöf- undar dagblaðanna að varpa fram spurn- ingunni „Hverskonar þjóðfélag er það sem við lifum í?“ Sú spurning verður æ brýnni og knýr æ fastar á með tilliti til eftirfarandi staðreynda: • S;ö prósent allra japanskra karl- manna milli fertugs og fimmtugs sýna sjúkdómseinkenni, fyrst og fremst hósta. • Fimmti hver Tókíó-búi á aldrinum milli fertugs og fimmtugs er með ein- kenni þráláts lungnakvefs, sem stafar af eitrun andrúmsloftsins. í tveimur hverfum í bæjarfélaginu ítabasji í Tókió kvarta 65% íbúanna yfir ólofti og ólykt, 57% þjást af ertingu í hálsi og 29% eru með stöðugan hósta. • Um 40% af skólabörnunum í Jokka- itsjí, sem er ein af miðstöðvum olíu- iðnaðarins, kvarta yfir höfuðverk, hóstaköstum og sárindum í hálsi. • „Við syndum í óþverra" sagði stór- blaðið Asahí Sjímbún eftir að heil- brigðiseftirlitið hafði kannað allmörg fljót, sjávarstrendur og sundlaugar. Eðlilegt magn kólí-sýkla á hverja 100 rúmsentímetra er 10.000, og birt er að- vörun þegar magnið fer yfir 50.000 — en við hina vinsælu Enósjíma-bað- strönd eru 350.000 sýklar í hverjum 100 rúmsentímetrum vatns, og í Tama- fljótinu er magnið 1,6 milljón. Sam- tals 60% af fljótum og sundstöðum í Tókíó voru dæmd eitruð og óhæf til notkunar. Blaðið sagði að Tókíó-flói væri pestarbæli. • Rúmlega 100 manns veiktust alvarlega og 42 létu lífið vegna kvikasilfurseitr- unar af völdum verksmiðjuúrgangs í fljóti nokkru í Kúmamótó-héraði á árunum 1953—1960, og önnur bylgja þessa svonefnda „Mínamata-sjúk- dóms“ lagði 30 manns í rúmið á árun- um 1964—1965, og af þeim létust fimm. Kvikasilfrið barst með fisk- meti inní mannslíkamann og hlóðst þar upp smámsaman. • Alstaðar í Japan kvarta skólar yfir vaxandi heyrnarskaða og öðrum mein- semdum meðal barna af völdum hávaða, og allmargir skólar hafa gefið þær óhugnanlegu upplýsingar, að börn vaxi hægar á þeim svæðum sem lengst eru komin í iðnvæðingu. • Kadmíum-úrgangur frá verksmiðjum á stóru svæði í Tójama-héraði leiddi af sér ítaí-ítaí-sjúkdóminn („ítaí- ítaí“ merkir „mikill sársauki“), sem lagði hundruð manna að velli. HREINSITÆKJAFRAMLEIÐSLA Formælendur iðnaðarins' halda þvi gjarna fram, að iðnrekendur hafi ekki ráð á að láta setja upp nauðsynleg hreinsitæki eða nota þá brennisteins- snauðu olíu, sem kostar þrefalt meira en olían sem nú er notuð, en leiðarahöfund- ar dagblaðanna benda á, að slíkar rök- semdir fái ekki staðizt meðan atvinnu- rekendur verji árlega tveimur milljörðum dollara til risnu. Þolinmæðin er tekin að þverra. Borgarstjórinn í Tókíó heldur því fram, að það muni taka tíu ár að koma út- blæstri úr verksmiðjum í viðunanlegt horf. En flestir iðnrekendur veigra sér við að koma til móts við kröfur borgar- stjórans — og í Tókíó eru rúmlega 90.000 iðnfyrirtæki, þeirra á meðal 8.000 spúandi verksmiðjureykháfar. „Við eigum ekki annars kost en halda niðri i okkur and- anum í tíu ár og lifa i voninni, þó hún sé hverfandi lítil," sagði blaðið Jómíúrí Sjímbún. Stóru iðnfyrirtækin leggja sig þó fram um að draga úr menguninni. Það viður- kenna jafnvel hörðustu gagnrýnendur. Það eru smáfyrirtækin sem syndga mest. Hreinsitæknin er á hærra stigi í Japan en í nokkru öðru landi, og mælitækninni fleygir ört fram. En á fjárlögum rikisins fyrir fjárhagsárið 1969—70 er einungis varið 6 milljónum dollara til að berjast gegn mengun og óþrifum, á sama tíma og einkafyrirtækin hafa varið 300 millj- ónum dollara einungis til hreinsitækja. Áhuginn á þessum málum eykst jafn- framt vegna þess að hér sjá menn nýja markaðsmöguleika. Tækjabúnaður til varnar gegn mengun verður æ stærri þáttur í útbúnaði iðnfyrirtækja. Gert er ráð fyrir að aukningin verði sem hér seg- ir: árið 1965 um 1% af tækjakaupum einkafyrirtækj a, árið 1968 um 1,3% og árið 1975 um 2,5% — en það felur í sér aukningu úr 0,2 uppí 1,9 milljarða dollara árið 1975. Japanir hafa að yfirlögðu ráði gengið í berhögg við kenningu J. K. Galbraiths um „félagslegt jafnvægi“, en samkvæmt henni rotnar þjóðfélag í allsnægtum sín- um, ef ekki er skynsamlegt jafnvægi milli einkaneyzlu og sameiginlegrar neyzlu, milli einkafjárfestingar og opinberrar fjárfestingar. í seinna tilvikinu er hlut- fallið í Japan 65% á móti 35%. Galbraith er sennilega meira lesinn í Japan en Bandaríkjunum og einnig meira virtur, en Japanir eru svo heillaðir af sjálfum efnahagsvextinum, vaxtarhraðanum, að þeir vilja ekki horfast í augu við afleið- ingar hans, að minnstakosti ekki enn sem komið er. En brátt verða þeir að leggja fyrir sjálfa sig þá örlagaríku spurningu: Hve mikil auðæfi þolir land á hvern fer- kílómetra? Svarið við henni kann að skipta sköpum fyrir framtíð fólksins i landinu. 4 67

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.