Samvinnan - 01.12.1970, Side 70

Samvinnan - 01.12.1970, Side 70
eru af öðrum sjálfboðaliðum í vanþróuðu löndunum, nema hvað aðstæðurnar eru ömurlegri. Ég heimsótti litinn skóla í nyrzta héraðinu, Uige, sem liggur að landamærum Kongó-lýðveldisins. Þar var allur fjallshrygg- urinn í þriggja eða fjögurra kílómetra fjarlægð á valdi fjöl- menns og velbúins liðsafla uppreisnarmanna, sem beittu ógnum með mjög góðum árangri. Tvær ungar portúgalskar stúlkur höfðu, að þvi er þær héldu fram, á hendi kennslu flóttamanna sem snúið hefðu aftur og barna þeirra — þ. e. a. s. nokkurra þeirra sem flúið hafa frá Norður-Angóla til Kongó-Kinshasa siðan 1961. Um 70.000 velþjálfaðir portúgalskir hermenn eru nú í nýlend- unni til að berjast við innfædd uppreisnaröfl i norður-, austur- og suðaustur-héruðum Angóla. Samt sem áður hefur uppreisnin ekki verið brotin á bak aftur. Öðru nær, frelsishreyfingarnar virðast vera öflugri en nokkru sinni fyrr. í desember 1968 lýsti yfirmaður portúgalska herforingjaráðsins yfir þvi, að nauðsyn bæri til að auka liðsaflann i nýlendunum. í áramótaboðskap sínum til landhers, flughers og flota sagði hermálaráðherrann, Sá Viana Rebelo hershöfðingi, í sambandi við ástandið í nýlend- unum: „Liðið ár hefur verið ár mikils erfiðis og mikilla bardaga fyrir herinn . . . Ég kemst ekki hjá þvi að álykta, að árið sem er framundan (1969) verði jafnerfitt og árið sem rennur út í dag.“ Tvær helztu uppreisnarhreyfingarnar eru UPA og MPLA. UPA er skammstöfun á Uniáo das Populaeöes de Angola (Þjóðasam- band Angóla), sem er i vinfengi við stjórnina í Kinshasa. Hreyf- ingunni er stjórnað af heldur duglitlum en ákaflega metnaðar- gjörnum manni frá Norður-Angóla, Holden Roberto að nafni. Hann er 46 ára gamall og hefur að þvi er virðist aðeins eitt markmið í lífinu: að halda áfram að vera leiðtogi þeirrar frelsis- hreyfingar sem gæti orðið öflugust i Angóla. Hann er sagður gerspilltur, og sama á við um marga undirmenn hans. Margar ábyrgðarstöður i hreyfingunni hafa verið faldar ættingjum hans og vinum. Hneyksli hafa verið tíð, og það er sennilega rétt, sem talsmenn MPLA halda fram, að UPA hafi efnt til fjöldamorða á stuðnir.gsmönnum MPLA. Það er staðreynd, að UPA fékk því framgengt að MPLA var hrakin frá Kongó-Kinshasa, með þeim afieiðingum að hreyfing dr. Agostinhos Netos hefur síðan neyðzt til að skipuleggja starfsemi sína frá Kongó-Brazzaville og uppá síðkastið frá Dar-es-Salaam. Ef satt skal segja hefur MPLA orðið að fara ólöglega yfir kongólsk landsvæði til að komast til Norður-Angóla. Á liðnum áium hefur MPLA orðið veigamesta fielsishreyfing i Angóla. Skammstöfunin stendur fyrir Movimento Popular de Libertacáo de Angola (Alþýðuhreyfingin til frelsunar Angóla). Þetta er eina starfandi frelsishreyfing í Angóla sem hefur mögu- leika á að ná til allra héraða landsins og allra þjóðfélagshópa. Portúgalar saka MPLA um kommúnisma eða hlýðni við komm- únista. Það er firra. Hreyfingin er sósialisk i sama skilningi og ríkisstjórniinar i Alsír og Tanzaniu, svo tekin séu tvö dæmi. MPLA hóf starfsemi sína árið 1956 með því að nokkrar forboðn- ar frelsishieyfingar tóku höndum saman og sameinuðust, en 1959 voru nokkur hundruð félagar úr hreyfingunni handteknir fyrir „landráð“, þ. e. a. s. fyrir að láta í ljós óskir um sjálfstæði landsins. 57 leiðtogar hreyfingarinnar voru sendir i fangelsi, þeirra á meðal núverandi leiðtogi hennar, dr. Agostinho Neto (sem er líka bezta ljóðskáld Angóla). Neto slapp úr greipum portúgölsku lögreglunnar og hefur lifað i útlegð síðan. Hann er lágvaxinn maður, 48 ára gamall, talar hægt og alvarlega, kemur fyrir sjónir sem heiðarlegur og einbeittur maður. Einsog flestir eldri félagar hreyfingarinnar er hann kynblendingur, en þel- dekkri en þeir flestir. Agostinho Neto kveðst binda miklar vonir við nýju vígstöðvarn- ar í Austur-Angóla og bætir við: „Við trúum því, að brátt muni okkur auðnast að dreifa uppreisninni um allt landið. Við njótum stuðnings innfæddra ibúa í nálega allri nýlendunni og margra embættismanna i þjónustu portúgölsku nýlendustjórnarinnar, sem sumir hverjir eru í háum embættum og veita okkur fjár- hagsstuðning í baráttunni.” MPLA berst einkum á fernum vígstöðvum: á Cabinda-svæðinu fyrir norðan mynni Kongó-fljóts, i Norður-Angóla, og í austur- hluta og sunnanverðum miðhluta landsins, semsé i hinum víð- áttumiklu héruðum Moxico og Cuando Cubango. Þessi héruð eru skemmst á veg komin af öllum héruðum Angóla: járnbrautir eru SkœruliSar MPLA í Austur-Angóla. þar engar, vegir mjög fáir og negraþjóðflokkarnir þar ákaflega frumstæðir. Landið er flatt — víðáttumiklar sléttur þaktar mannhæðar háu grasi, tjarnir og mýrlendi. Héruðin liggja að Katanga, Zambiu og Suðvestur-Afriku. Það er frá Zambíu sem MPLA fer herferðir sínar inní héruðin og þrengir sér æ dýpra inni landið. Portúgalska herstjórnin hefur áhyggjur af miklum landvinn- ingum MPLA á þessum vígstöðvum. Einungis með mjög veruleg- um herafla yrði unnt að ná aftur svæðum nálægt landamærum Zambíu sem uppreisnarmenn hafa þegar á valdi sinu. MPLA kveðst hafa komizt alla leið til borganna Vila Serpa Pinto og Silva Pörto, en sú síðarnefnda er um 800 kilómetra frá landa- mærum Zambíu. Þegar Portúgalsstjórn skipaði nýjan yfirhershöfðingja i Angóla á liðnu ári, birtu hin drottinhollu dagblöð i Lúanda venjulegar lofgreinar um persónuleika hans og hermannsdyggðir. Angólska tímaritið Notícias, sem er ekki alltaf sérlega auðsveipt, bætti við tviræðri lokalinu: „Og við treystum þvi, að Guð verði á yðar bandi, hershöfðingi.“ 4 70

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.