Samvinnan - 01.12.1970, Blaðsíða 83
Bezta fáanlega efnið í hilluinnréttingar í geymslur, vörulagera,
vinnuborð, færibönd, vagna o. fl. o. fl.
LEITIÐ UPPLÝSINGA
LANDSSMIÐJAN
SÍMI 20680
kaupendum né lesendum til
geðs. Um það verða jafnan —
og eiga að vera — skiptar
skoðanir, þótt ritið sé að vissu
marki áróðursrit samvinnu-
manna. Ég fæ ekki betur séð
en að það haldi sér trúlega á
þeirri braut, þótt máske megi
segja að stundum hafi gætt þar
nokkurra sleggjudóma og þras-
girni, einkum í því hefti sem
helgað er menntamálum og
skólahaldi. Er slíkt máske ekki
tiltökumál. Óefað verða grein-
arhöfundar að hafa frjálst val
og láta skorinort í ljós skoðan-
ir sínar á mönnum og málefn-
um. Samvinnan er þó síður en
svo sakbitnari í þeim en lands-
málablöðin. „Stærsta“ blaðið á
það til dæmis til að birta 5 til
6 eftirmælagreinar um sama
manninn. Mun ekki finnast
dæmi slíks í erlendum blöðum.
Það er í sjálfu sér síður en svo
ámælisvert að minnast látinna
manna, en minna má þó gagn
gera. Tíminn hefir aftur á
móti þann hátt á að birta
minningargreinarnar sér í
blaði, og fer vel á því og er vin-
sælt, enda sakar þá minna um
greinafjöldann, en þarna er
saman dreginn á einn stað
mikill persónulegur fróðleikur,
auk þess sem uppfylltar eru
óskir vandafólks og kunningja
hinna látnu. Samvinnan hefir
uppá síðkastið ekki sýnt til-
burði í þessa átt. Þar með er
ekki sagt, að bægja beri burt
öllum æviþáttum úr ritinu, og
er þá að hafa í huga þá menn
innan samvinnusamtakanna,
sem einkum hafa látið að sér
kveða á þeim vettvangi eða
getið sér þar góðan orðstír.
Raunar má segja, að ritið
Hlynur hafi að mestu tekið
ómakið af Samvinnunni í þessu
efni.
Kvartanir sumra lesenda,
þar á meðal ýmissa innan
samvinnusamtakanna, um að
ritið sinni lítt eða ekki sam-
vinnumálunum, en hrúgi inn
mörgum og löngum greinum
almenns efnis, eru að litlu leyti
á rökum reistar. Ávallt munu
ein eða fleiri greinar hafa
hnigið að þeim málum bein-
línis.
Fimmta hefti yfirstandandi
árgangs, sem mér barst nýver-
ið í hendur, er hið fjölbreytt-
asta. Þar geysast fram á rit-
völlinn ekki færri en 19 höf-
undar. Greinar þeirra allra
hafa boðskap að flytja og mik-
inn fróðleik. Skoðanir þeirra
eru vissulega umdeildar eins
og gerist og gengur. Það er
vissulega þarft verk og á ein-
mitt heima í riti sem Samvinn-
unni að kynna lesendum þjóð-
83