Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1976, Blaðsíða 19

Samvinnan - 01.05.1976, Blaðsíða 19
Á SAMBAIMDSSLÓÐLM Í KAIPMW\AI IÖI'\ Saga Sambandsins er nátengd þessum stöðum. Þar hafa fjölmargir íslenzkir samvinnumenn lifað og starfað, sumir áratugum saman, eins og til dæmis Oddur Rafnar og Óli Vilhjálmsson. Þeir tveir voru lengst starfsmenn Sambandsins í Kaupmannahöfn. Skrifstofa Sambandsins í Kaupmannahöfn var stofnuð 1915 í einu herbergi á Farvergade 15, en sama ár fékk hún stærra og betra húsnæði að Nybrogade 28 ÁriS 1915 urðu tímamót í sögu Sambands íslenskra samvinnufélaga. Þá var Hallgrímur Kristinsson skip- aður erindreki og helgaði Sambandinu starfskrafta sína upp frá því. Síðast í apríl 1915 tók hann sér far með gufuskipinu ,,Flóru“ til Bergen. Eftir viðkomu á venjulegum höfnum hér- lendis hélt skipið til hafs frá Fáskrúðsfirði 29. apríl. Þrátt fyrir styrjaldarástand gekk ferðin vel og áfallalaust. Frá Bergen fór Hallgrímur yfir Svíþjóð og til Kaupmanna- hafnar, en þangað var ferð- inni heitið. Honum tókst að reka nokkur verzlunarerindi strax í Noregi og hélt því áfram, þegartil Kaupmanna- hafnar kom. Jafnframt leit- aði hann að húsnæði fyrir skrifstofu Sambandsins, sem nú skyldi sett á stofn. Eftir tíu daga leit tókst honum að fá leigt herbergi í Farvergade 15, skammt frá Ftáðhústorginu. Þarna var sem sagt til húsa fyrsti vísir að skrifstofu Sambandsins á erlendri grund. Hallgrímur var allánægð- ur með herbergið í fyrstu, en gerði sér brátt Ijóst, að það gat naumast verið til fram- búðar. í septembermánuði sama ár hefur hann fengið nýtt og betra húsnæði, að Nybrogade 28 — „tvö her- bergi allstór, mjög sólrík og skemmtileg og útsýni snot- urt“, eins og hann se.gir í bréfi. Síðar var Hafnarskrifstofa Sambandsins til húsa á fjór- um stöðum til viðbótar: Tordenskjoldsgade 29, Laxe- gade 14, Strandgade 25 og Njalsgade 13. Tímarnir breytast fljótt. Nú er ekki lengur skrifstofa í kóngsins Kaupinhöfn — heldur í Lundúnum og Ham- borg. Myndirnar á þessari opnu teljast því sögulegar minjar, en þær tók Hermann Þorsteinsson, forstöðumað- ur Lífeyrissjóðs SÍS. ♦ 18 19

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.