Samvinnan - 01.05.1976, Page 21
upp sögur og ævintýri frá ár-
jéðst brátt sem starfsmaður
íá þekktri verkfræðistofu í
eykjavík og gat sér gott orð
Sem ötull og glöggur verkfræð-
mSur, enda hafði ég búist við
Pví, þar sem mér var fullkunn-
^t, að gáfur hans og góðir
sefileikar voru meiri en fram
°mu i klæðaburði hans og
ytra útliti. Ég frétti líka ann-
aö og þag sem ég hafði ekki
meira en svo búist við. Skömmu
eftir heimkomuna hafði Pét-
ur kvænst og fengið, eins og
við höfðum svo oft haft á
°rði í gamanmálum á erlendri
grund, góða og hirðusama
°nu, sem hjálpaði honum
yggilega til að vera eins og
uðrir menn í klæðaburði og
snyrtimennsku.
^ar mér sagt, að hann væri
orðinn sem allt annar maður,
euda vekti þessi góða eiginkona
rans yfir útliti hans og klæðn-
aSi ems og góð móðir yfir barni
Smu- Bar þessum kunningjum
mmum saman um að Hildur,
eir svo hét konan, hefði unnið
reint kraftaverk á Pétri á fá-
Um árum.
Svo bar það við einu sinni,
Pegar ég var i Reykjavik i
s uttri heimsókn, að ég hitti
. r a götu, og eins og nærri
ma geta var þetta fagnaðar-
undur hjá okkur eftir öll þessi
ar- Skröfuðum við saman um
neima og geima og rifjuðum
unum, sem við vorum samtiða
erlendis. Ég tók strax eftir þvi,
að hann var mjög snyrtilega
klæddur og þokkalegur í öllu
ytra útliti í algjörri mótsetn-
ingu við það sem gerðist á fyrri
tíð. Gladdist ég með sjálfum
mér yfir þessari breytingu og
þóttist sjá að hrósyrði sameig-
inlegra vina okkar um ágæti
konu hans væru á gildum rök-
um reist.
Við gengum saman um stund
og röbbuðum um allt milli
himins og jarðar eins og vænta
mátti eftir öll þessi ár. Að síð-
ustu stakk svo Pétur upp á því,
að ég skryppi heim með hon-
um. Lét ég til leiðast, þar sem
ég hafði lokið erindum mínum
og útréttingum i borginni
þennan dag. Settumst við þvi
næst upp i gljáfægða bifreið
Péturs og innan skamms var
staðnæmst við fallegt einbýl-
ishús í útjaðri borgarinnar.
Hress og glaður bauð hús-
bóndinn mér inn og þar kom
kona hans til móts við okkur
og heilsaði okkur með fögnuði.
Bauð hún mig sérstaklega vel-
kominn sem einn af fornvin-
um og skólafélögum Péturs og
lét sér einkar annt um að mér
liði vel þessa stund, sem ég
dvaldist á heimili þeirra. Inn-
an dyra angaði allt af þrifnaði
og snyrtimennsku, svo að auð-
séð var að húsmoðirin lá ekki
á liði sínu við að halda heim-
ilinu sem fegurstu. Auk þess
báru innanstokksmunir góðum
smekk og rúmum efnahag fag-
urt vitni. Við settumst í mjúka
hægindastóla í stofunni, sötr-
uðum ilmandi kaffi og töluð-
um og hlógum af hjartans lyst.
Það gladdi mig sannarlega sem
gamlan vin Péturs, að sjá
hversu gott var með þeim
hjónum og hvað heimili þeirra
var myndarlegt. Tíminn leið,
án þess að ég tæki eftir því,
og innan skamms var komið
að kvöldverðartima. Ætlaði ég
þá að fara, en við það var ekki
komandi, svo að ég tafði leng-
ur og snæddi með þeim kvöld-
verð. Meðan við vorum að
borða, barst það i tal, að hjón-
in ætluðu að skreppa í leikhús
á eftir, og spurði Hildur þá,
hvort ég væri ekki til með að
koma líka. Ég sagði sem var,
að slíkt gæti ekki gengið, þar
sem ég hefði engan miða og
sjálfsagt væri allt uppselt fyr-
ir löngu. En með því að hún
var auðsjáanlega dugnaðar-
kona og vön að ráða fyrir sjálfa
sig og aðra, hlustaði hún litt
á mótbárur mínar, heldur
sneri sér að símanum og
hringdi i leikhúsið. Eftir and-
artak kom hún aftur og var
harla glöð. Fyrir einhverja til-
viljun hafði verið laust sæti
á sama bekk og þau hjónin
höfðu keypt miða sina. —
Ég varð þvi að taka góðu boði
þessara heiðurshjóna og ég
held að þeim hafi þótt reglu-
lega vænt um að ég skyldi
geta komið með þeim.
Ég sat einn um stund i stof-
unni, meðan þau hjónin
brugðu sér afsiðis til að búa
sig í leikhúsið. Heyrði ég að
Hildur var i baðherberginu, en
Pétur i svefnherberginu. Dyrn-
ar inn i stofuna stóðu opnar,
svo að ég komst ekki hjá þvi
að heyra hvað fram fór. Pétur
kallaði alltaf öðru hverju til
konu sinnar og spurði hvar
þetta eða hitt væri, en hún
svaraði að vörmu spori og
sagði honum nákvæmlega fyr-
ir verkum við klæðnaðinn.
Gekk honum auðheyrilega vel
við að tina á sig spjarirnar,
enda naut hann dyggilegrar
aðstoðar konu sinnar, sem gaf
ákveðin fyrirmæli líkt og dug-
legur verkstjóri. Að siðustu
kallaði hún til hans og bað
hann nú að muna eftir að setja
á sig hálsbindið og kvaðst
hann skyldi gera það.
Loks var allt tilbúið, en þá
vorum við orðin heldur sein
fyrir, svo að við flýttum okkur
út í bílinn og ókum i skyndi
niður að Þjóðleikhúsi. Við
hröðuðum okkur inn og lögðum
af okkur yfirhafnir i flýti i
fatageymslunni, tókum númer
og gengum inn. Ljósin höfðu
verið slökkt og sýningin var
rétt byrjuð, en ekki höfðum
við misst af neinu, sem máli
skipti. Við fundum strax sæti
okkar, vörpuðum andanum
léttar eftir hlaupin og flýtinn
og létum fara vel um okkur.
Leikritið var bráðskemmtilegt
og þótti mér verulega vænt um
að hafa fengið þetta tækifæri
til að sjá það. Átti ég það að
þakka Pétri fornvini minum,
og þó einkum Hildi, konu hans.
Tíminn leið hratt og brátt
var fyrsti þáttur úti. Við geng-
um fram i hléinu og skröfuðum
saman um verkið. En þarna
frammi í fatageymslunni,
hrökk Hildur allt í einu við
eins og rekinn hefði verið í
hana rlítingur, náfölnaði og
hrópaði lágt að Pétri: „Guð
minn góður. Hvað hefurðu nú
gert mér? Sjáðu bara sjálfur
í speglinum þarna“. Pétur varð
strax vandræðalegur, enda var
geðshræring konu hans ekki
einleikin. Hann sneri sér að
speglinum. Það var ekki um
að villast. Ég stóð þarna fyrir
aftan hann og sá það lika.
Hann var með tvö hálsbindi,
annað rautt og hitt blátt, hvort
utan yfir öðru. Með snöggum
handtökum ýtti Hildur honum
inn á næsta snyrtiherbergi og
þaðan kom hann von bráðar
aftur og þá aðeins með eitt
bindi um hálsinn eins og vera
bar. Kona hans, sem enn var
i talsverðri geðshræringu,
horfði rannsakandi á hann og
sagði með miklum þunga, en
samt sýndist mér eins og
brygði fyrir einhverjum góð-
viljuðum kímniglampa í aug-
um hennar: „Ef þetta hefði
verið einhver annar en þú,
Pétur, þá hefði það getað kost-
að hjónaskilnað." Meira sagði
hún ekki og Pétur sagði ekkert
og var heldur niðurlútur. Ég
reyndi að horfa í aðra átt og
sagði heldur ekki orð.
í þessu var hringt og við
gengum aftur inn. Ljósin dofn-
uðu og brátt voru þau alveg
slökkt. Heimur leikhússins tók
okkur til sin, svo að við
gleymdum brátt öllu öðru og
nutum sýningarinnar i ríkum
mæli. Að þvi loknu kvaddi ég
þessi góðu hjón með þakklæti
og hver sneri til sins heima.
En stundum hefur það hvarfl-
að að mér siðan, hvar vinur
minn, Pétur, mundi á vegi
staddur, ef ekki nyti við hans
ágætu eiginkonu, sem passar
upp á hlutina og heldur öllu
á réttum kili. ♦
21