Samvinnan - 01.06.1980, Side 39
Sambandiö styrkir
Körfuknattleiks-
samband íslands
Frá blaðamannafundi þar sem kynnt var nýmæli Sambands-
ins varðandi styrkveitingu til íþróttahreyfingarinnar. —
(Myndir: Kristján Pétur Guðnason).
Kjartan P. Kjartansson, framkvæmdastjóri Skipulags- og
fræðsludeildar, afhendir Körfuknattieikssambandi íslands
styrk að upphæð 5,5 milijónir króna.
SAMBAND ísl. samvinnu-
félaga hefur allt frá
fyrstu tíð látið sér um-
hugað um öflugt iþróttalif
i landinu og veitt til þess-
arar starfsemi allverulegum
fj ármunum.
Um nokkurt skeið hafa
forystumenn samvinnu-
hreyfingarinnar velt því
fyrir sér hvort ein öflug
styrkveiting i stað dreifðra
smærri fjárveitinga myndi
ekki nýtast betur og verða
iþróttahreyfingunni til
heilla. Við frekari athugun
virtist þetta nýmæli geta
horft til bóta.
Því var ákveðið fyrir all-
löngu siðan að reyna þessa
nýbreytni fyrir árið 1980 og
varð Körfuknattleikssam-
band íslands fyrir valinu.
Ástæða þess var sú að lands-
liðsnefnd Körfuknattleiks-
sambandsins hafði þá ný-
verið farið fram á fjár-
stuðning til starfsemi þess-
arar iþróttagreinar og þar
sem það hafði sjaldan áður
hlotið styrk var það talið
vel að þessari fyrstu út-
nefningu komið.
Ef þessi nýja aðferð sann-
ar ágæti sitt er áformað að
endurnýja styrkveitinguna
að ári til annarrar íþrótta-
greinar, eða þeirrar sömu,
eftir atvikum, en styrkveit-
ingin i ár nemur 5,5 millj-
ónum króna.
Við þessa styrkveitingu
áskilur Sambandið sér
heimild til að virkja starf-
semi iþróttagreinarinnar til
upplýsinga um samvinnu-
hreyfinguna í landinu t.d.
með þvi að merkja búninga
landsliðsins með samvinnu-
merkinu og öðru þvi sem
gagnkvæmt samkomulag
næst um við forráðamenn
Körfuknattleikssambands-
ins.
Sambandið væntir þess
að þessi fjárstuðningur örvi
áhuga æsku landsins á heil-
brigðum íþróttum og verði
öllum viðkomandi til vel-
farnaðar. ♦
Nú er veitt ein öflug
styrkveiting í stað
dreifðra smærri fjár-
veitinga.
39