Samvinnan - 01.06.1981, Qupperneq 21
Kaupfélag Sval-
barðseyrar fram-
leiðir franskar
kartöflur
KAUPFÉLAG SVALBARÐSEYRAR á Svalbarðseyri hef-
ur hafið þá nýbreytni í iðnaði að framleiða franskar
kartöflur í fallegum neytendaumbúðum — og hafa
þær hlotið góðar viðtökur. Að margra dómi eru þær betri
en ýmsar erlendar tegundir, sem verið hafa á markaðnum
hérlendis.
Það munu vera um fimm
ár síðan sú hugmynd kom
fyrst fram innan Kaupfé-
lags Svalbarðseyrar, að fé-
lagið stofnaði verksmiðju af
þessu tagi. Fyrir tveimur ár-
um var ákveðið að iirinda
þessari hugmynd í frar.i-
kvæmd og var nefnd manna
send til Noregs i því skvni.
Norðmönnum þótti hins veg-
ar ekki taka því að setja
upp verksmiðju fyrir hinn
litla íslenska markað. í
nóvembermánuði síðastliðn-
um var önnur nefnd send
til Danmerkur og hafði nú
erindi sem erfiði. Samning-
ar tókust um málið, menn
að utan komu og settu verk-
smiðjuna upp og framleiðsl-
an hófst á útmánuðum.
Verksmiðjan getur unnið
eitt tonn af frönskum kart-
Öflum á dag og þarf tvö
tonn af kartöflum til fram-
leiðslu á hverju tonni.
Smælki sem flokkunarvél
hafnar er unnt að selja veit-
ingahúsum, sem nýta það í
kartöflustöppu, og hýðið af
kartöflunum er notað í
minkafóður, svo að lítið fer
til spillis.
Byggðirnar við Eyjafjörð
eru fyrir löngu orðnar eitt-
hvert mesta kartöflurækt-
arhérað landsins, og er það
því sannarlega lofsvert
framtak og til fyrirmyndar
að leitað skuli nýrra ráða
til að auka verðmæti fram-
leiðslunnar. ♦
Sævar Hallgrímsson (til vinstri), framleiðslustjóri nýju verk-
smiðjunnar, og Karl Gunnlaugsson, kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Svalbarðseyrar.
Hér er vinnslan komin í fullan gang í verksmiðjunni, og nú fást
á markaðnum íslenzkar franskar kartöflur — og þykja góðar.
(Ljósmyndir: Magni Ársælsson).
21