Samvinnan - 01.04.1983, Side 15

Samvinnan - 01.04.1983, Side 15
smiðjan tók ti! starfa í desember sama ár. I þessu nýja húsnæði var einnig samkomusalur fyrir starfsfólk í verk- smiðjum Sambandsins. Nú var skinna- verksmiðjan orðin í fjórum deildum, gærurotun, sútun, skógerð og hanska- gerð og var síðan rekin í því horl'i undir nafninu Skinnaverksmiðjan Iðunn. Ég var verksmiðjustjóri frá upp- hafi, og gegndi því starfi um áratuga skeið. Notuðuð þið innlent hráefni í skóna? Já, yfirleðrið mátti heita eingöngu innlent, úr nauta- og hrosshúðum, en sauðskinn var notað í fóður. Sólaleðrið var aftur á móti lengi vel innflutt, en á síðari árum sútuöum við þó nokkuð af sólaleðri. Það hefur alltaf verið nóg að gera og afköstin mikil? Já, það var nóg að starfa, en um af- köstin geta menn lesið í opinberum gögnum. En ég get til gamans tekið hér tölur frá einu löngu liðnu ári, árinu 1940. Gærurotunin fór aðeins fram á veturna, svo hér á ég við veturinn 1939-40. Þetta ár voru afullaðar 7149 gærur. Sútuð voru 7792 sauðskinn, 4977 nauts- og kýrhúðir, 2841 hrosshúð, 1070 tryppahúðir, 2758 kálfskinn, 2612 loðsútuð gæruskinn, 2400 lambskinn, 400 selskinn, og 965 önnur skinn loðsútuð. Auk alls þessa sútuðu verksmiðjurnar fyrir aðra 1763 húðir og skinn. Þetta ár unnu 24 menn að sútuninni hjá okkur. I skógerðinni voru þetta sama ár búin til rösklega 60 þúsund pör af alls konar skóm á karlmenn og unglinga, eða um það bil 200 pör til jafnaðar hvern vinnudag. Aö þessu unnu alls 64 manneskjur, bæði konur og karlar. Framleiðsla hanskagerðarinnar var 4423 pör, fingravettlingar og belgvett- lingar karla og kvenna. Að þeirri fram- leiðslu unnu 8 stúlkur. • Betri aðstæður eftir brunann. En nú hefur þetta ekki allt verið ein- tómur dans á rósum, enda ekki við því að búast, á svo löngitm tíma? Nei, það er alveg rétt. Bruninn mikli í ársbyrjun 1969 var mikið áfall, en það var þó lán í óláni, að ekki uröu nein slys á mönnum í þeim eldsvoða. Ég sagöi í blaðaviðtali skömmu eftir þann atburð, að þegar yrði búið að endur- byggja verksmiðjuna, endurnýja þær vélar sem skemmdust, og yfirleitt að lagfæra það sent aflaga fór, þá yrðu komnar hér allt aðrar og betri aðstæður en voru áður. Þetta hafa reynst orð að sönnu. Samvinnuiðnaðurinn hér á Akureyri hefur sannað á eftirminnilegan hátt gamla málsháttinn, mjór er mikils vísir. Litli sprotinn, sem var gróöursettur hér fyrir sextíu árum, varð að stóru tré. + 15

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.