Samvinnan - 01.04.1983, Page 18

Samvinnan - 01.04.1983, Page 18
Fyrsta verðlaunaritgerðin eftir Helga Haraldsson Meginmarkmiðið er efnalegur jöfnuður meðal landsmanna Við smíði þessarar ritgerðar varð fljótlega ljóst að umfang sam- vinnustarfseminnar í landinu er svo geysilegt og svo fjölþætt að ritgerð um það efni, sem gerði því verðug skil, krefðist lengri tíma en ég hef til um- ráða og yrði að auki mjög löng. Ég hef því valið þann kost að taka fyrir nokkra afmarkaða þætti úr upp- hafi samvinnustarfs hér á landi og úr starfsemi samvinnufélaga nú á dögum. Ég hef reynt að forðast þurra upp- talningu, á tölum og staðreyndum. Eftirtalin atriði hef ég tekið fyrir: • Félagsvakningin á síðustu öld og að- dragandinn að stofnun fyrstu sam- vinnufélaganna í landinu. • Nútíminn - þ. e.: • Sjónarmið og rök andstæðinga sam- vinnustefnunnar. • Starfsemi samvinnufélaga í sveitum og þjónusta við þær. • Hlutverk og þátttaka samvinnufélaga í viðhaldi byggðar í sveitum landsins. • Inngangur Frá upphafi byggðar á Islandi hefur samvinna verið stunduð í ýmiss konar mynd þó ekki hafi hún verið ákveðin í neinum félagslögum. Hver kannast ekki við samvinnu Njáls á Bergþórs- hvoli og Gunnars á Hlíðarenda? Dæmin um samvinnu í landinu fyrr á öldum eru mýmörg. Vafasamt hlýtur að teljast hvort landið hefði byggst án samvinnuvilja þeirra manna sem hér settust að í öndverðu. • Oformleg félagsstarfsemi Oformleg samvinna var hér við lýði fram eftir öldum. Merkilegt dæmi um slíkt er sú samvinna sem varð fastur liður í lífsbaráttu Öræfinga á ein- okunartímanum. Fyrir einokunina höfðu bændur í Öræfum viðskipti sín við kaupmenn á Höfn. Þegar einokunin komst á var verslun lögð niður á Höfn og urðu Öræfingar þá að sækja verslun á Djúpavog en þangað var bæði löng leið og erfið. En neyðin kennir naktri konu að spinna og bundust bændur sam- tökum, óformlegum að vísu, um sam- eiginlega fjárrekstra og sameiginlega afurðasölu. Þeir höfðu þann hátt á að kjósa einn eða tvo úr sínum hópi til að semja um viðskiptin fyrir sveitunga sína. Ef samningar urðu í óhag, fóru þeir jafnvel til Eskifjarðar. Stundum fóru þeir til Eyrarbakka og jafnvel til Reykjavíkur. Þessar ferðir voru farnar í einni lest. Líklegt má telja að þessi samvinna hafi komist á með einokun- inni 1602. • Fríhöndlunartímabilið (1787-1854) Rýmkun verslunarlaganna 1787 bar ekki árangur sem menn höfðu vænst. Engin verslunarfélög voru stofnuð og engir tilburðir hafðir í frammi til að s Urslit í ritgerðasamkeppni Sambandsins Sambandið efndi til ritgerðasainkeppni nieðal nemenda í níunda bekk grunnskóla og fram- haldsskólum síðastliðinn vetur. Úrslit eru nú kunn og voru þrenn verðlaun veitt, en sleppt að veita sex ritgerðum viðurkenningu, eins og boðað hafði verið. 1. verðlaun, 20.000 krónur, hlaut Helgi Haraldsson, Jaðri, Reykjadal, Suður-Þingeyjarsýslu, nemandi í Samvinnuskólan- unt að Bifröst. 2. verðlaun, 15.000 krónur, hlaut Tómas Gíslason, nemandi í Menntaskólan- um við Hamrahlíð, og 3. verðlaun, 10.000 krónur, lilaut Eyjólfur Sturlaugsson, Hrísateigi 9, Reykjavík. Dómnefnd skipuðu: Andrés Kristjánsson, Finnur Kristjánsson og Gylfi Gröndal. Verðlaunaritgerðirnar verða birtar hér í Samvinnunni, ein í senn. ♦ Helgi Haraldsson Eyjólfur Sturlaugsson 18

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.