Samvinnan - 01.04.1983, Side 33
Um landnám var ísland
skógi vaxið milli fjalls og fjöru, og
nytjaskógar voru hér víða langt
fram eftir öldum.
|S||| .AX** '«J
vitað og viðurkennl, að þeir völdu sér
ekki lökustu bitana á nægtaborði
lífsins, guðsmennirnir. Petta þýðir með
öðrum orðum það, að á öllum þessum
stöðum hefur verið svo mikill skógur
langt fram eftir öldum, að forsjármenn
kirkjunnar á Refsstað hafa talið sér akk
í því að ásælast hann, fremur en ýmis
önnur hlunnindi sem völ var á í sveit-
inni, og víst var timbur alltaf mikil
nauðsynjavara, hér á landi eins og ann-
ars staðar. Og Refsstaðarkirkja á
reyndar líka rekaítök á ströndunum
báðum megin fjarðarins. En um
skóginn er ekki öll sagan sögð.
• Skógarteigur í Nýpsmó
Nú skulum við yfirgefa Vopnafjörð
um stund og bregða okkur austur yfir
fjöll og heiðar, austur á Fljótsdalshér-
að.
Við erum stödd á Bessastöðum í
Fljótsdal. Það er sunnudagur 10. nóv-
ember, sunnudagurinn næsti fyrir Mar-
teinsmessu, árið 1398, - fyrir nærri sex
hundruð árum. Þeir standa þar í jarða-
kaupum, Ólafur bóndi Jónsson og séra
Guðmundur Þorsteinsson. Ólafur selur
Guðmundi presti jörðina Bessastaði í
Fljótsdal fyrir Torfastaði í Vopnafirði,
en vitundarvottar eru Jón prestur
Oddsson, Jón Finnbjarnarson, Þorkell
Snorrason, Hrafn Bergfinnsson og Jón
Andrésson. Hvaða menn eru þetta?
Við vitum það ógjörla, og skulum una
því um sinn, að þeir séu okkur aðeins
nöfn á blaði, því að erindi okkar hing-
að er annað en að hnýsast í persónu-
sögu einstaklinga. Það er kaupsamning-
urinn, sem þeir eru að gera, gömlu
mennirnir, sem hefur vakið áhuga
okkar, og að honum skulum við huga.
Það, sem fyrst vekur athygli okkar
er, hve geysilega dýru verði Guðmund-
ur prestur kaupir Bessastaði. Við skul-
um gera okkur heimakomin og lesa dá-
lítinn kafla úr kaupsamningnum. Hann
lítur þannig út, færður til nútíma staf-
setningar:
„Hér í mót gefur Guðmundur prestur
Þorsteinsson fyrr greindum Ólafi
Jónssyni jörð að Torfastöðum í Vopna-
firði og þar með jarðir tvær, er Skála-
nes heita með öllum þeim gögnum og
gæðum sem öllum þessum fyrr nefn-
dum jörðum fylgir, og hann varð
fremst eigandi að. Og þar á ofan xx kú-
33