Samvinnan - 01.04.1983, Side 34
Skógarteigur í Nýpsmó
gildi. Eru þessi landamerki á milli
Torfastaða og Ljótsstaða að læk þeim
er fellur næst fyrir utan túngarð á
Ljótsstöðum og svo ofan í á. Og að
götum þeim er liggja til Ásbrandsstaða.
Eru þessi landamerki í milli Skálaness
ins eystra og Ásbrandsstaða inn að
dröngum þeim sem standa næst fyrir
utan brunna. Seljörð í Selárdal er
Leifsstaðir heita. Skógarteig í Nýpsmó
inn syðra . . . Hálfur hvalreki og við-
reki fyrir Ljósalandi. Stillisveiður í ósi
í Vestra dal fyrir Nýpssandi".
Enn er ekki allt upp talið, en við
skulunt Iáta þetta nægja að sinni. Hér
er Iíka komið ærið efni um að hugsa,
þótt ekki sé fleira tínt til. Það er svo
sem ekki neitt hálfverk á því, að séra
Guðmundur sé loðinn um lófana, að
hann skuli eiga fjórar jarðir í Vopna-
firði, þótt ein þeirra virðist einungis
notuð til selfarar. Og sjálfir hafa Torfa-
staöir verið höfuðból á 14. öld, þar sem
þeir eiga hvalreka og viðarreka fyrir
Ljósalandi, veiði í Nýpslónum og -
„Skógarteig í Nýpsmó". En skýringin á
þessum auði er m. a. sú, að á þessum
tímum var bænhús, - hálfkirkja - á
Torfastöðum í Vopnal’irði, og það er
minnzt á bænhúsið í jarðakaupasamn-
ingi þeirra séra Guðntundar og Ólal's
bónda.
Merkilegt er það, sem sagt er í þess-
um kaupsamningi um Leifsstaði: „Sel-
jörð í Selárdal er Leifsstaðir heita".
Orðið „seljörð" gefur eindregið í skyn.
að jörðin hafi aðeins verið notuð að
sumrinu, - lil selfarar, en nafnið Leifs-
staðir bendir aftur á móti til þess, að
þar hafi verið byggð l'yrr, því að ólík-
legt er, að menn hafi haft svo mikið við
að kalla selið Leifsstaði. Sennilega hafa
Leifsstaðir byggzt mjög snemma, en
byggð lagzt af, og jörðin þá eingöngu
nýtt á suntrin, ef til vill alveg frá vori
til hausts, og haft þar í seli. Það verður
að teljast liggja vel við frá Torfastöð-
unt, þótt vegalengd sé allnokkur og yfir
breiðan háls að fara, þar sent eru flóar.
Auk þess hlýtur Seláin að hafa verið
nokkur farartálmi til þess að flytja yfir
hana á klökkum mjólk, skyr og smjör
og annað það sem óhjákvæntilega í'ylgir
seljabúskap. Einkum hefur þetta getað
verið óþægilegt í höröum vorurn, þegar
heiðarnar leysti seint og mikið vatn var
34
Hingað og þangað um
sveitina trónar skógur, svo gróskumikill og nytjagóður,
að forsjármenn kristinnar kirkju
ágirnast hann um fram ýmis önnur gæði.
í ánni fram eftir öllu surnri. En þess er
gaman að geta um leið, að suður og
niður af gamla bænum á Leifsstöðum
er hylur í Selá, sem Skipahylur heitir.
Áreiðanlega er þar gantall ferjustaður á
ánni, því að ekki koma nein önnur skip
til greina til þess að valda slíkri nafngift
svo langt uppi í landi, - og hár foss í
ánni nokkrunt kílómetrum neðar. - Það
skyldi þó ekki hafa veriö seljafólk, sem
fór þar fyrst yfir á bátum? Og líklega
hel'ur þessi skipan um nytjarnar af
Leifsstöðum staðið talsvert lengi, fyrst
sá siður náði að festast að kalla jörðina
„seljörð".
Þá erunt við kontin að því atriði í
kaupsamningi þeirra Olafs bónda og
Guðntundar presls, sem ekki er sízt
gaman að athuga. Þar er skýrt tekið
fram, að Torfastaðir eigi „skógarteig í
Nýpsrnó inum syðra". Þetta þýðir vita-
skuld það, að Nýpsmóarnir, sem síðari
tíma menn þekkja aðeins sent „venju-
lega" móa, skóglausa með öllu, - þeir
hafa verið vaxnir skógi fram um alda-
mótin 1400, og ef til vill mun lengur.
Nú getur vel verið, að ítök eins og til
dæntis skógarhögg, séu færð til bókar í
máldögum kirkna, eftir að þau eru orð-
in gagnslítil eða gagnslaus, -svona eins
og til öryggis, til þess að kirkjuvaldið
missi nú ekki spón úr askinum sínurn, ef
ítakið skyldi taka upp á því að skila
arði, síðar meir. Aftur á móti eru litlar
líkur til þess, að hlunnindi, sem eru
ekki lengur fyrir hendi, séu talin upp,
og þar með í raun og veru metin til
verðs, þegar um jarðakaup er að ræða,
þar sem hönd selur hendi, nema þá að
um það sé getið sérstaklega. Við hefð-
unt e. t. v. getað búizt við því að sjá í
kaupsamningnum klausu eitthvað á
þessa leið: „Skógarteigur í Nýpsmó
inum syðra, nú eyddur" Eða: „Má ei
lengur brúkast", eins og stundum
stendur í gömlum heimildum. En hér
er engu slíku til að dreifa. Það er ekk-
ert undan skilið, þegar Guðntundur
klerkur er að leggja jarðirnar sínar í
Vopnafirði á móti Bessastöðum í
Fljótsdal.
Hitt er svo önnur hlið á málinu, og
kenuir ekki þessu greinarkorni við, hvi-
lík afbragðsjörð Bessastaöir í Fljótsdal
hafa verið þegar á 14. öld. að þeir
skyldu ekki þykja fullgoldnir. nenta að
fyrir þá kæmu þrjár jarðir í Vopnafirði,
allar góðar, og ein þeirra höfuðból, og
þar að auki seljörð. þar sem landkostir
eru með afbrigðum miklir.
• Sjón hollari en nokkrar taugatöflur.
Eg hef ekki skril'að þessar línur til
þess að gylla Vopnafjörð fyrir mér eða
reyna að sjá hann í einhverjum óraun-
hæfum hillingum. Þess þarl' ekki. Eg
þarf ekki að hugsa mér æskusveit mína
þakta skógi til þess að mér finnist hún
fögur. - Hversu oft hef ég ekki séð fyrir
mér í huganum löngu horfnar kynslóðir
fara um sveitina þvera og endilanga, í
hinum margvíslegustu erindunt. I gleði
og sorg, í lífi og dauða. Og hestar lið-
inna tfða bera eigendur sína hvert sem
fara þarf. Göturnar, sem liggja á ská
yfir Vörðuásinn fyrir ofan Hof í
Vopnafirði eru eins og heil héraðssaga.
Þær eru þar margar hlið við hlið, sumar
afgantlar, aðrar ntun yngri. Þegar ein
var orðin óþægilega djúp. var önnur
lögð viö hlið hennar. En heim að
bænum. þar sem fyrr á tímum var heið-
iö hof, en síðar krislin kirkja, - þangaö
lágu allra leiöir. hvort sem færa þurfti
ungbarn til skírnar eða gamalmenni til
grafar.
Og nú langar mig að síðustu að
bregða upp örstuttri mynd, svona eins
og til ofurlítils mótvægis við þann eilífa
söng um hungur og eymd. leiðindi og
niðurlægingu, sent alltaf er sunginn,
þegar minnzt er á íslenzkar miðaldir.
Hjón eru að koma úr kaupstað -úr
„Vopnafjarðar höndlunarstað"- síöla
sumars, einhvern tíma á miðöldum.
Þau ríða hægt í kvöldkyrrðinni. og
klyfjahestarnir rölta heimfúsir götuna á
undan. Auövitað eiga þessi hjón sín
vandantál og sínar áhyggjur, eins og
allar manneskjur á öllum tímum. en
sjónin sent við þeim blasir og kyrrð
sumarkvöldsins eru hollari mannlegri
sál en nokkrar taugatöflur. Sveitin er
böðuð geislaflóöi hnígandi sólar. en
skuggar byrjaðir að teygja sig niður í
gil og árhvamma. Og hingað og þangað
um sveitina trónar skógur. svo grósku-
mikill og nytjagóður. aö forsjármenn
kristinnar kirkju ágirnast hann umfram
ýrnis önnur gæði þessa gjöfula og bú-
sældarlega héraðs. +