Samvinnan - 01.08.1984, Blaðsíða 11

Samvinnan - 01.08.1984, Blaðsíða 11
Og samþykktir Sambandsins breyttum aðstæðum og því hefði verið eðlilegt meðal annars, að tillögur Sambands- stjórnar um samþykktarbreytingar, í framhaldi af ákvörðun hennar um breytta stjórnskipan Sambandsins, hefðu náð fram að ganga. Meirihluti aðalfundarfulltrúa vildi hins vegar að málið fengi frekari umfjöllun í kaupfé- lögunum, áður en það yrði afgreitt, og við því er ekkert að segja. Ég vona hins vegar, að málefni samvinnuhreyf- ingarinnar, markmið og leiðir, fái rækilega umfjöllun í kaupfélögunum fyrir næsta aðalfund Sambandsins, þannig að aðalfundarfulltrúarnir verði yel undir það búnir að taka ákvarðanir með heildarhagsmuni félagsmanna að leiðarljósi, - ákvarðanir byggðar á markmiðum samvinnuhreyfingarinn- ar og þeim bestu leiðum, sem færa okkur nær settu marki. ® Að vandlega athuguðu máli Telur þú, að þær skipulagsbreytingar hjý Sambandinu, sem tóku gildi 1. júlí síðastliðinn, séu til bóta og eigi eftir að efla rekstur þess? Þessar breytingar voru ákveðnar af Sambandsstjórn að vandlega athug- uðu máli og eftir að fram hafði farið mikill og vandaður undirbúningur, hæði innan fyrirtækisins og af utanað- komandi ráðgjöfum. Nýja skipulagið er ákveðið með hliðsjón af markmið- um Sambandsins og einstakra þátta í starfsemi þess. Þessi skipulagsbreyting Var einn þáttur í ákvörðun stjórnar- mnar um hvaða leiðir beri að fara að settu marki, og ég tel að hún hafi verið nauðsynleg til að ná betri árangri í rekstrinum. Ekkert skipulag gildir hins vegar að mlífu, og sífellt er nauðsynlegt að aðlaga starfshætti breyttum aðstæð- um, þar á meðal stjórnskipulagið. . Haldi samvinnuhreyfingin vöku Slnni, aðlagi sig á hverjum tíma breytt- um ytri aðstæðum og nýti hún sér þá jj'öguleika, sem samfara eru hinni Uröðu tækniþróun, þá trúi ég því, að starfsemin muni eflast og tryggja að ^nrkmiðunum verði náð. ® Nýsköpun í atvinnulífinu pm þessar mundir eru óvenju dökkar ólikur á lofti í atvinnulífi þjóðarinnar, Þar sem erfiðleikar steðja að undir- s,öðugreinum þess, sjávarútvegi og landbúmaði. Hvernig er hægt að bregð- ast við þessum mikla vanda? Við verðum að sníða okkur stakk eftir vexti. Bændur hafa af raunsæi ákveðið að takmarka framleiðslu landbúnaðar- afurða til samræmis við þarfir innan- landsmarkaðarins. Á sama hátt verð- um við öll, sem í landinu búum og byggjum afkomu okkar að verulegu leyti á sjávarútvegi og fiskvinnslu, að sjá til þess að þessar undirstöðugreinar blómgist og dafni og geti þannig áfram haldið uppi þeim lífskjörum, sem margir eru farnir að telja sjálfsagðan hlut nú á dögum. Óarðbær sjávarútvegur og fisk- vinnsla er óhugsandi til lengdar á íslandi, og því verður að finna leiðir til hagkvæmustu nýtingar fiskimið- anna, sem er og verður okkar mikil- vægasta auðlind um fyrirsjáanlega framtíð. En það þarf meira til að viðhalda þeim góðu lífskjörum, sem við þó búum enn við. Auka þarf framleiðni í öllum atvinnugreinum. Uppbygging nýrra arðbærra atvinnugreina er okk- ur nauðsynleg, bæði til að taka við vaxandi fjölda fólks, sem ár hvert leitar inn á vinnumarkaðinn, og svo ekki síður til að auka framleiðslu og útflutningstekjur landsins eða spara innflutning. Við stöndum brátt frammi fyrir því, að annað hvort aukum við framleiðslu okkar og þar með tekjur - eða draga verður verulega úr neyslunni til sam- ræmis við tekjuöflunina. Samvinnuhreyfingin vill stuðla að eflingu og nýsköpun í atvinnulífinu eftir föngum, og það er von mín, að með sameiginlegu átaki hennar, ríkis- valdsins og einkafyrirtækja takist að koma hér upp á næstu árum margvís- legum fyrirtækjum stórum og smáum í nýjum og hefðbundnum atvinnu- greinum. Ég tel til dæmis, að á sviði fiskeldis séu miklir ónýttir möguleikar fyrir hendi. Og þá á ég ekki aðeins við laxa- og álaeldi og aðrar slíkar greinar, sem mest er rætt um núna, heldur verði innan fárra ára auk þess hægt að styrkja grundvöll sjávarútvegsins með til dæmis stóreldi á þorskseiðum, sem verði sleppt í sjó, alist upp á hefð- bundnum uppeldisstöðvum við landið og síðan veidd af fiskiskipum á sama hátt og annar fiskur. Ríkisvaldið verður að hafa afskipti af þróun þessara mála. Einkum tel ég nauðsynlegt, að slík afskipti hvað nýjar atvinnugreinar varðar snerti að- stoð við fjármögnun og stóreflingu rannsókna og tilraunastarfsemi til stuðnings hinum ýmsu atvinnugrein- um. • Margra ára starf getur hrunið Er staða samvinnuhreyfingarinnar sterk eða veik um þessar mundir? Á undanförnum árum og áratugum hefur samvinnuhreyfingin byggt upp umfangsmikinn og fjölbreyttan at- vinnurekstur um land allt. Á sama tíma hefur orðið gjörbreyting á þjóð- félagslegum aðstæðum í landinu, ný samskipta- og samgöngutækni hefur rutt sér til rúms og nýir verslunar- og viðskiptahættir verið teknir upp. Þessar breytingar gera m. a. kröfur til þess að samvinnuhreyfingin endur- skoði starfsaðferðir sínar, skipulag, verkefni og verkaskiptingu og aðlagi þessa þætti breyttum ytri aðstæðum. Staða samvinnuhreyfingarinnar í dag er traust og flestar forsendur eru fyrir hendi til áframhaldandi traustrar stöðu. Til þess að svo megi verða er þó nauðsynlegt að félagsmenn og starfsmenn samvinnuhreyfingarinnar sameinist um að sífellt sé unnið eftir þeim leiðum og beitt þeim starfsað- ferðum innan hreyfingarinnar sem tryggja best hag félagsmanna og fyrir- tækja þeirra. Núverandi erfiðleikar í atvinnulífi landsmanna, sem fyrirtæki samvinnu- manna fara ekki varhluta af, undir- strika nauðsyn þess að fyllstu hag- kvæmni sé gætt og sífellt sé leitað nýrra leiða að settu marki. Margra ára uppbyggingarstarf getur hrunið til grunna á skömmum tíma ef ekki er að gætt. Ég lít því á aðsteðjandi vandamál atvinnulífsins ekki einungis sem erfið- leika sem glíma þarf við, heldur jafnframt sem tækifæri sem gerir okk- ur kleift, nú þegar ljóst er að bregðast þarf við af festu og alvöru, að færa starfsemina til betri vegar. Það er þetta sem vinna þarf að og takist vel til höfum við trausta stöðu til að viðhalda öflugu samvinnustarfi í landinu. Að lokum: Á hverju byggist trú þín á samvinnuhugsjónina? Hún byggist á kynnum mínum af mikilvægi samvinnuhreyfingarinnar fyrir lífsafkomu fjölda fólks í landinu. Hún byggist jafnframt á kynnum mín- um og reynslu af hinni fjölbreyttu starfsemi samvinnumanna og þeirri fullvissu, að með enn betra samstarfi og skipulagi á samvinnu félagsmanna um land allt er hægt að ná enn betri árangri á komandi árum - til hagsbóta fyrir samvinnuhreyfinguna og landið allt. G.Gr. 11

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.