Samvinnan - 01.08.1984, Blaðsíða 22
Örn Ingólfsson, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Hafnfirðinga, og Einar Björnsson, Erlendur Einarsson á tali við fundarmenn
kaupfélagsstjóri hins nýstofnaða Kaupfélags Ólafsvíkur.
Skipulagsbreytingar
til frekari umfjöll-
unar félagsmanna
Fyrir fundinum lágu tillögur til
breytinga á samþykktum Sam-
bandsins, sem lagðar voru fram
í kjölfar skipulagsbreytinganna sem
þar eru nú að koma til framkvæmda
og kynntar hafa verið. Þessar breyt-
ingatillögur fólu það m. a. í sér að
framkvæmdastjórn Sambandsins
skyldi lögð niður, og að forstjóri
skyldi eftirleiðis ráða bæði aðstoðar-
forstjóra og framkvæmdastjóra ein-
stakra deilda, og ákveða starfssvið
þeirra innan ramma þess skipulags
sem Sambandsstjórn hefði samþykkt.
Þá var einnig ákvæði í tillögunum um
að formaður Sambandsstjórnar skyldi
starfa samkvæmt erindisbréfi sem
stjórnin setti honum.
Fljótlega kom í ljós að um þetta mál
voru nokkuð skiptar skoðanir á fund-
inum, og kom þá fram það sjónarmið
þar að skoða þyrfti málið betur, m. a.
með það fyrir augum að festa enn
frekar verksvið formanns og stjórnar
innan ramma hins nýja skipulags.
Bent var á að rétt gæti verið að fresta
endanlegri afgreiðslu málsins til næsta
aðalfundar, enda þyrfti það ekki að
standa í vegi fyrir því að fyrirhugaðar
breytingar á deildaskipulagi Sam-
bandsins kæmu til framkvæmda. Lykt-
aði málinu svo að það var afgreitt með
eftirfarandi ályktun, sem samþykkt
var með 58 atkvæðum gegn 46:
„Tillögur Sambandsstjórnar um
breytingu á skipulagi Sambandsins,
sem samþykktar voru á fundi stjórnar-
innar þann 30. mars 1984 og hafa
þegar að nokkru komið til fram-
kvæmda, beinast að því að Sambandið
geti enn betur tekist á við þann
umfangsmikla og fjölþætta rekstur,
sem það hefur með höndum, og verði
betur í stakk búið að takast á við
þróun næstu áratuga í rekstri hinna
ýmsu starfsgreina Sambandsins og þró-
un hinna félagslegu markmiða þess.
Slík skipulagsbreyting hlýtur að leiða
til markvissari stýringar yfirstjórnar
Sambandsins, en verður jafnframt að
taka verulegt tillit til félagslegrar upp-
byggingar þess og halda opnum öllum
leiðum félagsmanna til áhrifa á á-
kvarðanir og þróun þess.
Fundurinn telur því eðlilegt að hinir
félagslega kjöru fulltrúar fái tillögur
þær, sem hér liggja fyrir, til frekari
umfjöllunar, og leggur til að afgreiðslu
á þeim verði frestað, en málinu vísað
til stjórnar Sambandsins, sem sendi
það til kaupfélaganna fyrir 1. apríl á
næsta ári.“ ♦
Valur Arnþórsson, stjórnarformaður:
Við verðum að efía skilning fyrir
nauðsyn undirstöðuatvinnuveganna
~w- skýrslu sinni rakti Valur Arnþórs-
I son fyrst fjárfestingar Sambands-
JL ins á liðnu ári. Þá ræddi hann
helstu viðfangsefni Sambandsstjórnar
á síðasta starfsári, en þar hafði að
vanda mörg mál borið á góma, m. a.
útgáfustarfsemi, málefni Miklagarðs,
rekstur kaupfélaganna, skipakaup og
endurnýjun skipaflota Sambandsins,
stofnun endurmenntunarsjóðs fyrir
samvinnustarfsmenn, aukningu hluta-
fjár í samstarfsfyrirtækjum og þátt-
töku samvinnuhreyfingarinnar í ferða-
mannaþjónustu. Þá var aðild Sam-
bandsins að fiskirækt talsvert til um-
fjöllunar, sem og rafeindaiðnaður á
vegum fyrirtækisins Marel hf., mynd-
bandavæðing og skipulagsmál Sam-
bandsins. Loks skýrði hann frá nýlok-
inni úthlutun á styrkjum úr Menning-
arsjóði Sambandsins, samtals að fjár-
hæð 730 þús. kr.
í lok skýrslu sinnar ræddi Valur vítt
og breytt um rekstrarlega stöðu sam-
vinnufélaganna, sem og stöðu land-
búnaðar, sjávarútvegs og þjónustu-
greina í dreifbýli. Niðurlagsorð hans
voru þessi:
„Við samvinnumenn verðum því að
leggja hönd okkar á þann plóginn að
efla skilning fyrir nauðsyn undur-
stöðuatvinnuveganna og að hagur
þeirra verði bættur og samkeppnis-
hæfni þeirra aukin, þannig að þeir geti
áfram gegnt mikilsverðu hlutverki
sínu. Þetta gildir um sjávarútveginn,
þetta gildir um landbúnaðinn og þetta
gildir síðast en ekki síst um iðnaðinn,
sem felur í sér einn helsta vaxtarbrodd
atvinnulífsins. Jafnframt þurfum við
að vera öflugir og jákvæðir í uppbygg-
ingu nýrra atvinnuvega, og með því
að stuðla að áframhaldandi farsæld
sjálfstæðrar þjóðar í þessu góða landi.“
♦
22