Samvinnan - 01.08.1984, Blaðsíða 32

Samvinnan - 01.08.1984, Blaðsíða 32
Fyrstu ár mín í Kaupfélagi Þingeyinga „Ég hef nú ekki tíma til að versla hér strax, en ég ætla að geyma pokana mína hérna“. Og hann smeygir sér inn fyrir búðarborðið og treður pokabúnti inn í hilluna hjá bögglasmjörinu. Pok- arnir virðast hreinir og eru kirfilega saman bundnir, það sé ég vel. En nú þaut í mig. Ég stekk niður af borðinu, gríp pokabúntið og fleygi því fram fyrir borðið með þeim ummælum að þeir eigi ekki heima þarna hjá smjör- inu. Þessi annars ágæti viðskiptamað- ur snöggreiddist svo að hann fór titrandi og orðlaus út úr búðinni. Sjálfsagt hefur hann aldrei fyrirgefið mér þessa meðhöndlun á pokunum. Munntóbak (skraa) var geymt í kjallaranum undir búðinni. Þar var ætíð raki í lofti svo að það þornaði ekki. Tóbakið var afgreitt til verslun- arinnar í fimm kílóa pappaöskjum, en í hverjum pappakassa voru margar smá hankir vafðar bréfi. Einhvern fyrsta vetur minn í búðinni tókum við eftir því að rifið hafði verið horn af einum pappakassanum og úr honum teknar nokkrar smá hankir. Var sýnt að hér hafði einhver ófrómur farið höndum um, en ýmsir óviðkomandi menn gengu um kjallarann. Þótti EISFAXI HESTA- FRÉTTIR 91-685316 Hestamenn, hestaunnendur! Með því að gerast áskrifandi að Eiðfaxa berast fréttirnar af því sem er að gerast ( hestamennskunni reglulega inn á heimili ykkar. Eiðfaxi flytur mánaðarlega fréttir og frásagnir í máli og myndum af öllum greinum hestamennsku í landinu og er- lendis frá. Eiðfaxi flytur alls konar fróðleik og fréttir af íslenska hestinum svo sem ræktun, kynbótum, markaðsmálum, félagsmálum hestamanna og hestaþingum. Eiðfaxi segir einnig frá sögu afrekshesta, uppeldi, tamningu, þjálfun, sjúkdómum og hestalækningum. Eiðfaxi er vandað blað að frágangi prýtt fjölda mynda. IEI-DFAXI H. Pósthólf/P.O. Box 8133 Lágmúla 5. 108 Reykjavík Sími/Phone 91-685316 Næstu 6 mánaöa áskrift kostar kr. 570 I lausasölu eintakiö kr. 110 Eldri blöö eintakiö kr. 50 okkur hér illt í efni og kom okkur Friðþjófi saman um að reyna að veiða þann sem þarna hafði gerst of fingra- langur. Fengum við okkur dyrabjöllu, sem við komum fyrir á skrifstofunni og leiddum í hana vír, sem þannig var tengdur í tóbakskassann, að væri við honum hreyft hlaut bjallan að hringja. Ekki liðu nema fáir dagar þangað til við veiddum sökudólginn. Meðal annarra góðra hluta, sem verslað var með í búðinni var romm- konfekt. Voru það smá molar með flöskulagi fylltir með rommi; innihald- ið mun hafa verið nálægt lítilli teskeið. Þetta var vinsælt munngæti og voru sumir kaupendur undra stórtækir á það. Vitnaðist að sumir neytendur vörunnar brutu súkkulaðiumbúðirnar og supu vökvann. Fannst eitt sinn dávæn hrúga af súkkulaðiflöskum undir báti niðri í fjöru, en búið var að súpa úr þeim vökvann. Söludeild verslaði að sjálfsögðu með bökunardropa, meðal annars vanilludropa, en í þeim var ofurlítið af spíritus. Nokkrir karlar, sem þótti þægilegt að komast í vímu, tóku upp á því að drekka þessa dropa. Það gerðist víst nokkrum sinnum, ef karl- arnir komu og báðu um „dropa“ án þess að tilgreina tegund, að ég seldi þeim súpulit. Ég hugsaði sem svo, að þó að hægðirnar hjá þeim yrðu máske skrautlegar á litinn næstu dægur, yrðu þeir þó aldrei fullir né vitlausir af að innbyrða rauða vökvann. Karl nokkur, Guðmundur að nafni, venju- lega kallaður Gvendur Ralli, var seig- ur viðskiptamaður í dropabransanum og mun hafa fengið sinn skammt af rauða litnum. Hann hafði á fyrri árum verið vinnumaður hjá Grími á Bessa- stöðum og um eitt skeið búsettur í Kópavogi. Þegar strákarnir á Húsavík spurðu hann hvort hann myndi ekki eftir Kópavogsfundinum fræga (1662) áleit hann að hann mundi ekki hafa verið heima fundardaginn, því hann myndi ómögulega eftir fundinum. Nú bar svo til dag nokkurn að Sigurður Bjarklind kaupfélagsstjóri mætti Gvendi á götu, karlinn var rallfullur, en Sigurður var bindindismaður og hafði andúð á ölvun. Hann snýr sér að kallinum og segir. „Hvaða fjandi er að sjá þig, Gvendur, alltaf skítfullur. Hvað drekkur þú eiginlega?" „Nú, þetta sem þið seljið í Sölu- deild.“ 32

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.