Samvinnan - 01.08.1984, Blaðsíða 43

Samvinnan - 01.08.1984, Blaðsíða 43
Samvinnuhreyfingunni ber að halda umræðunni um landbúnaðar- og neytendamál á því menningarstigi, sem var á síðasta aðalfundi Sambandsins. °hóflegur. Hins vegar er kerfið þannig að slátrunina á að framkvæma á kostn- jiðarverði. Ef afgangur er kemur það hjötreikningi til góða og á að borgast ut til bændanna í kjötverðinu. Það á ekkert sláturhús að græða á slátrun og það er, þá er það vegna þess að ekki er farið eftir þeim reglum sem í gildi eru- Það er ótrúlegt að framleiðendur Sem eiga þessi hús, létu slíkt líðast atölulaust. # Lífsviðhorf jafnaðarmanna Það er mikil þversögn í því fólgin að ýmis stjórnmálaöfl í landinu sem vilja hafa skipulag og félagshyggju að leið- arljósi skuli bætast í þann hóp manna sem gagnrýnir núverandi skipulag í landbúnaðarmálum hvað harðast; gagnrýnir án þess að útskýra það kerfi sem farið er eftir til fulls. Svo að talað sé hreint út um þessi mál, veldur afstaða Alþýðuflokksins í þessu efni áhyggjum. Sá flokkur stóð að hinni merku löggjöf um mjólkur- sölumálin á sínum tíma, enda felur sölu og dreifingarkerfi landbúnaðar- vara í sér lífsviðhorf jafnaðarmanna. Því verður þess vegna ekki trúað að þeir sem aðhyllast slíkt lífsviðhorf hvar í flokki sem þeir annars standa séu ekki reiðubúnir að lagfæra agnúa þess kerfis sem í gildi er og sníða það að kröfum tímans, án þess að leggja það fyrir róða og leiða óheft markaðs- öflin til vegs í landbúnaðinum. ) Brýnt að skapa sátt að er brýnt fyrir félagshyggjumenn ð ganga að því verkefni að skapa sátt þessum málum. í samvinnuhreyfing- nni er sameiginlegur vettvangur pvte.nda oe framleiðenda. í samvinnuhreyfingunni starfar fólk úr öllum stjórnmálaflokkum. Hún er því kjörin vettvangur til þess að ræða þessi mál og skapa í þeim sátt og fylkja þeim sem aðhyllast samvinnu, jafnað- arstefnu og félagshyggju til varnar fyrir kerfi í þessum málum sem felur í sér réttlæti fyrir framleiðendur og neytendur í þéttbýli. Þessir þjóðfél- agshópar þurfa á hvor öðrum að halda. Gagnlegar umræður á síðasta aðal- fundi Sambands íslenskra samvinnu- félaga vekja vonir í þessum efnum, og samvinnuhreyfingunni ber að halda umræðunni um landbúnaðar og neyt- endamál á því menningarstigi sem þar var. Takist það má eyða þeirri tor- tryggni milli bænda og neytenda í þéttbýli, sem vanhugsuð blaðaskrif hefur vakið. í viðhorfum til skipulags landbún- aðarmála takast á tvenns konar lífsvið- horf. Annarsvegar óheft markaðs- hyggjan sem stefnir að því að fáir sterkir einstaklingar ráði í landbúnað- arframleiðslunni. Hinsvegar er félags- hyggjan sem stefnir að því að jöfnuður ríki meðal hinna mörgu sem fást við þessa framleiðslu og þeir megi með samtakamætti sínum ryðja þungum steinum úr brautinni til hagsbóta fyrir alla landsmenn. # 43

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.