Samvinnan - 01.08.1984, Síða 19

Samvinnan - 01.08.1984, Síða 19
ritstörf, og heyri ei til þeirra verksviðs. Menn halda að þær eigi að gera grauta, sauma spjarir og gera sitthvað innanbæjar og svo eigi annað. Vér eigum reyndar tvö dálítil ljóðasöfn eptir konur, en þau eru þeim til lítils ágætis, og hafa ekkert frumlegt eða fagurt í sér fólgið.“ «Sanngjarn“, sem var Valtýr Guð- mundsson síðar prófessor, tók upp hanskann fyrir Torfhildi og birtist andsvar hans í ísafold sama ár. Aðeins skulu lokaorðin tilgreind hér: „Það er eptirtektarvert að óskóla- gengin kona skuli fyrst verða til þess að skýra fyrir oss sögu vora, þar sem svo mikill fjöldi er af lasrðum mönnum, er hafa Iátið það hgjört, og það væri sannarlega órjettlátt af oss, ef vjer ætluðum að drepa slíkar tilraunir með vanþakk- l®ti, og með því að heimta af konum þá fullkomnun, sem vjer með engum rjetti getum heimtað.“ Eins og fram hefur komið urðu vinslit milli Torfhildar og Rannveigar Briem nokkrum árum eftir útkomu Brynjólfs Sveinssonar biskups. Rann- veig telur að framkoma Torfhildar hafi breyst við það að hasla sér völl á rithöfundarsviðinu. Rannveig segir í bréfi til Eggerts bróður síns um þessa fyrrverandi vinkonu sína: (30. apríl 1889): „Mér finnst að sú frægð, sem hún ímyndar sér að hafa fengið með ritstörfum sínum, ekki hafa verkað vel á hana. Hún er í allmiklum metum hjá almenningi, en ekki hefur henni heppnast að eignast vini eða kunningja, sem hænast að persónu hennar." 21 ári eftir útgáfu Brynjólfs Sveins- sonar biskups lítur Torfhildur yfir farinn veg, og segir svo í Draupni: „. . . þegar ég samdi Brynjólf biskup Sveinsson, þá þurfti ég eng- ar áhyggjur af bera fyrir lífsnauð- synjum og hafði þar af leiðandi yfir nægum tíma að ráða, sömuleiðis peninga til að gefa hann út í heilu Iagi, þá var ég sömuleiðis tiltölulega ung, 35 ára, og andi minn og heilsa lítið lömuð. Svo hafði ég, þá er ég var í annarri heimsáifu, ákafa heim- þrá. Allt hér heima fannst mér vera svo göfugt og fagurt, já og nærri því guðdómlegt. Ogmeðþærhugsjónir fyrir sálaraugunum skrifaði ég upp hjá mér margar af þeim greinum, sem ég seinna fléttaði utan um og hafði í Brynjólf biskup. Sömuleiðis „Landið mitt“, gerði ég áður við líkt tækifæri, og notaði það svo í hann. En það sem kemurfrá hjarta, leitar vanalega að hjarta og finnur það.“ Hér verður að sinni látið staðar numið að gera grein fyrir ævi og verkum Torfhildar Þorsteinsdóttur Hólm, þessa mikilvirka brautryðjanda sem gerði ritstörf að ævistarfi fyrst ís- lendinga svo vitað sé. ♦ elur þú þig hafa allar þær upp- lýsingar sem þú þarft á að halda til að geta lifað og starfað sem sannur samvinnumaður? Eða finnst þér stundum eins og verið sé að leyna þig einhverju? Kannaðu málið. Helgarpósturinn leggur hlustir við því sem talað er í háifum hljóð- um. Hann les tíðindin og tíðarand- ann af vörum þjóðarinnar. Helgar- pósturinn vinnur með þér... HELGARPOSTURINN ÁRMÚLA 36 SÍMI 81511 19

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.