Samvinnan - 01.08.1984, Blaðsíða 34

Samvinnan - 01.08.1984, Blaðsíða 34
Minnisvarði um Egil Thorarensen Höggmynd af Agli Thorarensen Eftir Jón Gísla Högnason Laugardaginn 7. júlí 1984 var afhjúpaður minnisvarði á Sel- fossi af Agli Gr. Thorarensen, fyrrum kaupfélagsstjóra Kaupfélags Arnesinga, og bar það upp á alþjóða- dag samvinnumanna. Minnisvarðinn er brjóstmynd, gerð af Einari Jónssyni myndhöggvara frá Galtafelli árið 1947, sem komið var fyrir á blágrýtis- stöpli og staðsettur er við suðaustur- horn Vöruhúss Kaupfélags Árnes- inga. Að framkvæmdinni stóðu Kaup- félag Árnesinga, Mjólkurbú Flóa- manna, bæjarstjórn Selfoss og Af- mælissjóður Dvalarheimilisins Áss Hveragerði. Gísli Sigurbjörnsson for- stjóri heimilisins var mikill hvatamað- ur að framkvæmdinni. # Stóð við stóru orðin Egill Grímsson Thorarensen var fædd- ur að Kirkjubæ á Rangárvöllum 7. janúar 1897; höfðingjasonur úr víð- lendu söguríku héraði og var 5. maður frá Skúla landfógeta Magnússyni. Sagði Egill við þann sem þetta ritar, að hann myndi líkastur Skúla sinna ættmenna. Mun Egill Gr. Thorarensen einn mesti hugsuður og athafnamaður, sem Rangárþing hefur alið frá dögum Oddaverja. Á unga aldri hneigðist hugur Egils til sjávarins. Hann hugðist verða skipsstjórnarmaður og var þá einn þeirra sem í forustusveit voru fyrir bættum kjörum sjómanna. En skapanornir skipta um svið eða voru það hollvættir sunnlenskra sveita? Egill leitar annars hugðarefnis. Hann aflar sér verslunarþekkingar og gerist kaupmaður í Sigtúnum við Ölf- usá. Síðar lætur hann verslunina af hendi við nýstofnað kaupfélag, er hlaut nafnið Kaupfélag Árnesinga og verður kaupfélagsstjóri þess allt til síns endadægurs 15. janúar 1961. Kaupfélag Árnesinga tók til starfa um áramót 1930-1931. Um veturinn er Egill að brjótast í ófærð vestur yfir Hellisheiði á leið til útlanda að gera 34 innkaup fyrir kaupfélagið og segir þá við bílstjóra félagsins, Vigfús Guð- mundsson: „Það er um að gera að framkvæma á meðan maður hefur mennina með sér, og þetta skal verða milljóna fyrirtæki." Það var stórt orð þá milljón, en Selfossbær er til vitnis um að við þau orð var staðið. # Faðir Þorlákshafnar Á vetrardaginn síðasta 1934, fór Egill út í Þorlákshöfn á uppskipunarbátn- um á Eyrarbakka. Hann var þá að skoða staðinn sem hann kaupir fyrir hönd Kaupfélags Árnesinga af Lands- bankanum fyrir 28.500 krónur, og í apríl í vor eru fimmtíu ár síðan. Höfn heilags Þorláks og byggðin umhverfis höfnina sýnir, að þar var vel að verki staðið, sem mun talið til mestu og merkustu afreka Egils Gr. Thorarensen. „Hann er óumdeilan- lega faðir Þorlákshafnar,“ sagði Sæ- mundur Þorláksson frá Hrauni í Ölf- usi. Árið 1937 kaupir Kaupfélag Árnes- inga höfuðbólið Laugardælur með hjá- leigum. Árið 1948 voru fyrstu húsin á Selfossi hituð upp með heitu vatni frá Laugardælum, sem gat þó aðeins kall- ast aukaafurð höfuðbólsins. Samhliða voru byggingaframkvæmdir hafnar á jörðinni við hæfi stórbýlis, og hafinn stórbúskapur með hefðbundnum og nýjum búgreinum eins og svína- ali- fugla og loðdýrarækt. Laugardælur skyldu verða lyftiafl sunnlenskum landbúnaði með tilraunum og alhliða búvísindum. Sú hugmynd naut ekki skilnings hjá sunnlenskum bændum. Árið 1952 fær Búnaðarsamband Suðurlands Laugardæli á leigu hjá Kaupfélagi Árnesinga og hóf þar búskap, afkvæmarannsóknir og fóð- urtilraunir. Var Búnaðarsambandinu gefinn kostur á að eignast höfuðbólið, en það hafnaði boðinu. Þó frá Laugardælum stafi ekki í framtíð þeim vitaeldi er í upphafi var ætlað um sunnlenskar byggðir, verður hlutverk höfuðbólsins þeim mun stærra og þýðingarmeira í framtíðar- uppbyggingu bæjarins við brúna. Egill Gr. Thorarensen var í flestu á undan sinni samtíð, en hann hugði að fortíð í sínum framkvæmdum, og hann mun lifa í verkum sínum. ♦

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.