Samvinnan - 01.08.1984, Blaðsíða 13

Samvinnan - 01.08.1984, Blaðsíða 13
Eg veit ekki hvað máfunum fannst um þetta, en fyrir eyrunum á mér fóru að óma seiðandi hljómar, sem hlutu að vera eftir Claude Debussy . . . þarna voru á boðstólum. Enda er Steingrímur í Fiskhöllinni, eins og flestir munu vita, allra fisksala skemmtilegastur og gáfaðastur og andríkastur. Ég var bæði hress og endurnærður þegar ég gekk af fundi hans út í glitrandi frostlognið og austur hafnarbakkann. Á leiðinni mætti ég nokkrum atvinnulausum verkamönnum. Þeir voru daufir í dálkinn. Kolakraninn var líka daufur í dálkinn. Ég heyrði að hann var orðinn þreyttur. Kolakraninn, blessaður karlinn. hað halda sjálfsagt flestir að hann sé alveg tilfinningalaus - eða hafi að minnsta kosti stáltaugar af því hann er úr stáli. En ég veit betur. Og ég hef lengi vitað betur. Það er langt síðan ég fór að leggja mig fram um að skilja Kolakranann, sálgreina hann. Langt síðan ég komst að þeirri niðurstöðu að hann er miklu viðkvæmari en margir þeir sem lægri eru í loftinu. Hann hefur átt sína drauma, fagra drauma sem hafa ekki rætzt frekar en svo margir aðrir fagrir draumar. Ef Davíð Stefánsson hefði átt heima hér í Reykjavík en ekki norður á Akureyri væri fyrir löngu búið að yrkja átakan- legt snilldarljóð um Kolakranann. Það er ég viss um. Því að Kolakraninn hefur alla sína kolakranatíð verið að harma hlutskipti sitt. Honum hefur aldrei fundizt hann vera á réttri hillu í h'finu. Sannleikurinn er sá að hann hefur alltaf undir niðri talið það ósam- boðið virðingu sinni að vera í kola- vinnu. Og er það allt mikil tragedía. Svo var klukkan orðin sex og dags- verki Kolakranans lokið. Hann gat farið að hvíla sig og láta sig dreyma. Mikið var það gott. Ég hafði stanzað hjá kassaskrifli þar sem stóðu þrír máfar og horfðu út á rennislétta höfnina. Þeir litu til mín rétt sem snöggvast en héldu svo áfram að horfa út á höfnina. Ég fór líka að horfa út á höfnina. Við horfðum allir út á höfnina. Á móti okkur, grandamegin hafnar- mnar, skinu ljós í lanternum og luktar- staurum og það lágu frá þeim titrandi rákir eins og þandir strengir yfir til okkar um höfnina þvera. Hún var eins og hljómborð í stórum flygli. Ég veit ekki hvað máfunum fannst um þetta, en fyrir eyrunum á mér fóru að óma seiðandi hljómar, seiðandi lýrískir hljómar sem hlutu að vera eftir Claude Debussy. Þetta var sama stemmning- in. Svo kom lóðsbáturinn og renndi sér í gegnum strengina og gerði úr þeim urmul af iðandi geislum, ná- kvæmlega eins og þegar Debussy er allt í einu orðinn leiður á allri lýrikk- inni og tvístrar tónunum svo að úr verður disharmónía. Lóðsbáturinn hvarf sem leið lá út úr höfninni, og geislaflóðið safnaðist aftur í strengi sem stilltust smátt og smátt, - og það komst á kyrrð og ró í huga Debussy. Teikningar eftir Kjartan Guðjónsson listmálara 13

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.