Samvinnan - 01.08.1984, Side 27
Starfsmenn KÞ árið 1928. Fremri röð: Pétur Sigfússon, Sigurður Bjarklind, Benedikt Jónsson fra Auðnum. Aftari röð:
Hjalti Illugason, Guðmundur Guðjónsson, Birgir Steingrímsson, Jón Flóventsson, Þonr Fnðgeirsson, Steingrímur
Hallgrímsson, Friðþjófur Pálsson, Sigurður Gunnlaugsson og Sigurður Knstjansson.
® Búðin var einskonar klúbbur
Af Friðþjófi hef ég það helst að segja,
aö hann var ætíð frá okkar fyrstu
ynnum hið ljúfasta prúðmenni, sem
eg hef þekkt. Og víst leiðbeindi hann
mer um margt fyrstu starfsdaga mína
1 búðinni. Friðþjófur var lista skrifari
°g nótur sem hann skrifaði voru
nanast listaverk.
. Og reynsludagar mínir í nýja starf-
án þess að nokkuð bæri út af.
g gerði mitt besta og ég fann að augu
usbónda míns, Péturs Sigfússonar,
ylgdust með mér. Að nokkrum tíma
1 num tjáði hann mér að sér virtist vel
°rfa með störf mín. Það gladdi mig
d sjálfsögðu, og ég mat Pétur alltaf
m,kils. Hann var að mínum dómi
raustur maður, sem gekk að hverju
l ar^ með einbeitni og festu. Mér var
ann ætíð góður, og ég tel hann hafa
'er'ð einn af mínum bestu vinum. Ég
saknaði hans mikið, þegar hann hvarf
rra stórfum hjá kaupfélaginu.
Pó allt gengi óhappalaust að kalla
>'nr mér í nýja starfinu voru fyrstu
agarnir mér miklir kvalardagar. Ég
Pjáðist af svæsnum höfuðverk eins og
0 t hafði verið á undangengnum van-
heilsuárum. Fyrstu vikuna var hann
svo slæmur að mér flaug í hug að ég
yrði að hætta í vistinni. En ég harkaði
af mér og svo fór að vist mín hjá
kaupfélaginu entist í 45 ár, við búðar
og skrifstofustörf til ársins 1935, en
síðan sem gjaldkeri til ársins 1973.
Pegar ég kom fyrst til starfa hjá
Kaupfélagi Þingeyinga voru starfs-
menn Söludeildar, en svo var búðin
ævinlega kölluð, Pétur Sigfússon sölu-
stjóri, Friðþjófur Pálsson, sem vann
jöfnum höndum við afgreiðslu og
skrifstofustörf, og Sigurður Gunn-
laugsson frá Siglufirði, kallaður
Sigurður þriðji af Húsvíkingum, en
hann var þá að hætta störfum hjá
keupfélaginu eftir skamma vist og
hverfa til síns heima. (Sigurður 1. og
2. voru þeir Sigurður Bjarklind og
Sigurður gamli Kristjánsson í Stein-
holti, þó ekki nefndir svo í tali
manna). í stað Sigurðar þriðja var ég
nú ráðinn. Aðrir starfsmenn Kaupfé-
lags Þingeyinga voru: Sigurður
Bjarklind, kaupfélagsstjóri, Birgir
Steingrímsson og Benedikt frá Auðn-
um, allir starfandi á aðalskrifstofum
kaupfélagsins. í pakkhúsi réði Stein-
grímur Hallgrímsson í Túnsbergi
ríkjum; þar afgreiddi hann pöntunar-
vörur til félagsmanna. Steingrímur
var afburða starfsmaður; verkin léku
í hendi hans, hann var ágætur skrifari
og stálpenninn dansaði á pappírunum,
þegar hann skrifaði úttekt viðskipta-
mannanna í kladdann sinn. Hann gaf
ekki nótur en afritaði reikningana úr
kladdanum tvisvar til þrisvar sinnum á
ári og sendi viðskiptamönnunum. Jón
Flóventsson annaðist skipaafgreiðslu
og hafði á hendi kolaafgreiðslu ásamt
fleiru. Guðmundur Guðjónsson og
Hjalti Ulugason unnu við kembivélar
kaupfélagsins yfir vetrartímann.
Árið eftir að ég byrjaði að vinna í
Söludeild réðist þangað Haukur
Jónsson, dóttursonur Benedikts frá
Auðnum. Hann var hið mesta prúð-
menni og rækti starf sitt ágætlega.
Hann tók við timburafgreiðslu og
glerskurði af Sigurði gamla í Stein-
holti. Skömmu síðar réðist ung og
lífsglöð stúlka til afgreiðslu í búðinni,
fyrsti kvenmaðurinn sem starfaði hjá
kaupfélaginu, það var Birna Stein-
grímsdóttir frá Sandhólum; hún rækti
störf sín vel. Ég held að allur karlpen-
27