Samvinnan - 01.08.1984, Page 28
Fyrstu ár mín í Kaupfélagi Þingeyinga
ingurinn hafi verið svolítið skotinn í
Birnu; hún var svo kát og falleg og hló
svo skemmtilega. Um svipað leyti
bættist Sigfús Jóelsson frá Syðstabæ í
Húsavík í afgreiðslumannahópinn.
Sigfús var góður starfsmaður og hinn
besti drengur. Dálítið var hann rauður
og sýndi viðleitni til þess að lita mig,
en ekki hafði liann þar erindi sem
erfiði; ég tók ekki lit. Birna og Sigfús
giftust síðar og bjuggu langan tíma á
Reyðarfirði, þar sem hann var skóla-
stjóri.
Allt þetta fólk voru prýðilegir starfs-
félagar og minnist ég ætíð samvinn-
unnar við það með óblandinni ánægju.
Búðin var opnuð klukkan níu á
morgnana og lokað var henni klukkan
sjö. Oft kom fyrir að sveitamenn
leituðu eftir því að fá afgreiðslu á
sunnudögum og eftir lokunartíma, og
minnist ég þess ekki að slíku væri
nokkru sinni neitað.
All mikið bar á því að Húsvíkingar
slæddust inn í búðina án þess að
versla. Þótti þeim gott húsaskjólið og
mátti segja að þarna myndaðist eins
konar klúbbur. Þar ræddu þeir um
útgerðina í bænum og önnur bæjar-
mál, um hagi nágrannans og helstu
slúðursögur, sem á gangi voru. Hefði
verið gaman að eiga nú á segulbandi
ýmislegt, sem þar bar á góma, og oft
höfðum við skemmtun af þeim spak-
vitringaræðum, sem þarna voru
fluttar. Þarna létu karlarnir líka oft
fjúka í hendingum.
# Laun okkar voru lækkuð
Öll úttekt viðskiptamanna var færð í
reikninga. Nótur voru skrifaðar í búð-
inni, sem gengu síðan upp á skrifstof-
una og voru þar endurskoðaðar. Það
var kallað að „revidera“; minna en
latína dugði ekki um það starf. Nót-
urnar voru síðan færðar inn í höf-
uðbækur, fjandans mikla doðranta,
þar sem einhver listaskrifari hafði
ritað nöfn viðskiptamannanna yfir
blaðsíðu hvers einstaklings. Nóturnar
voru svo eftir innfærsluna lesnar sam-
an við höfuðbókarfærslurnar. Höfuð-
bókarreikningarnir voru svo afritaðir
þrisvar á ári og sendir hlutaðeigend-
um. Þetta voru kreppuár og peningar
sáust naumast, og viðskiptamenn
kaupfélagsins stórskuldugir velflestir,
og kaupfélagið mjög illa stætt fjár-
hagslega. Til dæmis um hvað lítið var
af peningum í umferð vil ég geta þess,
að á fyrstu árum mínum í kaupfélag-
inu varð ég þess nokkrum sinnum var,
er skemmtisamkomur voru haldnar,
að ýmsir Húsvíkingar leituðu til Péturs
og báðu hann að hjálpa sér um aura
til þess að þeir gætu keypt sig inn á
samkomuna, en aðgangseyrir mun
venjulega hafa verið ein króna. Var
þá stundum svo ástatt að Pétur gat um
engan eyri hjálpað og var þá málum
bjargað með millifærslu. Ótrúleg saga
en sönn.
Árið 1931 mun verðfall á fram-
leiðsluvörum bænda og sjómanna hafa
orðið mest á þeim krepputíma, sem
yfir gekk. Þá munu dilkar bænda hafa
gert um 8,00 krónur. Hallaðist þá
hagur kaupfélagsins mjög, og varð þá
að ráði að lækka laun okkar starfs-
manna þess. Ég hafði haft 2.400,00
Alltaf jafn gómsætt þegar
^ búa á til betri mat
Kartöfluskífur og franskar kartöflur
frá kartöfluverksmiðjunni
Svalbarðseyri
einungis úrvals hráefni
KAUPFÉLAG
SVALBARÐSEYRAR
sími (96) 25800